Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Blaðsíða 12
KYNNING
Vinnuljós og öll ljós á bíla
ET Verslun, Klettagörðum 11, er á meðal leiðandi aðila í sölu á ljósabúnaði fyrir ökutæki og
vinnuvélar, þar á meðal eru ljós
kastarar, vinnuljós og afturljós.
Eigendur breyttra jeppa, vinnu
véla og vörubíla eru á meðal helstu
viðskiptavina verslunarinnar sem sér
þeim fyrir öllum þeim ljósum sem þá
vanhagar um og kappkostar að selja
gæðaljós undir þekktum merkjum á
sanngjörnu verði.
ET Verslun selur framljós, afturljós,
hliðarljós, vinnuljós og ljóskastara.
Meðal merkja eru bandarísku Rigid
ljósin sem slegið hafa í gegn á
Íslandi fyrir frábæra endingu. Einnig
má nefna sænska merkið LEDSON
sem sérhæfir sig í framleiðslu á
díóðuljósum, meðal annars díóðu
ljóskösturum, vinnuljósum og perum.
Vinsælasti kastarinn í dag kallast
Pollox og kemur einmitt frá LED
SON, um er að ræða 9“ díóðu(LED)
kastara sem lýsir upp endurskinið á
vegstikum í 850 metra fjarlægð.
Nær allir breyttir jeppar eru með
aukaljós og eigendur slíkra öku
tækja ganga að góðu úrvali og
framúrskarandi gæðum í ET Verslun,
hvort sem um ræðir kastara, vinnu
ljós, bakkljós eða inniljós. ET Verslun
er þekkt fyrir góða þjónustu við
jeppaeigendur og var nýlega með
bás á jeppasýningu Ferðaklúbbsins
4X4.
Jafnframt er ljósaúrvalið hjá ET
Verslun ekki síðra þegar kemur að
hliðarljósum og afturljósum sem
eru fáanleg í mörgum stærðum og
gerðum.
ET Verslun hefur verið starfandi í
yfir 26 ár og hefur því mikla reynslu
af þjónustu við bíleigendur og
eigendur annarra ökutækja, til dæmis
vinnuvéla. Fyrir utan ljósaúrvalið er
verslunin framarlega í framboði á
vagnavarahlutum, vökvabúnaði og
mörgu öðru. Ávallt kappkostar ET
Verslun að koma fram með nýjungar
sem gagnast eigendum ökutækja vel.
Sem fyrr segir er verslunin til húsa
að Klettagörðum 11. Opið er virka
daga frá kl. 8 til 18 og laugardaga
frá 10 til 14. Sjá nánar á et.is undir
Verslun og á Facebooksíðunni ET
Verslun.
ET VERSLUN: