Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Side 4
4 5. júlí 2019FRÉTTIR
Aðförin að pulsunni
S
varthöfði hélt framan af
viku að hún yrði frekar tíð-
indalítil. Allir uppteknir við
að maka á sig sólarolíu og
nýta örugglega alla mögulega sól-
argeisla. Grilla í Crocs-urunum
sínum og hlusta á Stál og hnífur í
botni. Ósköp venjuleg vika í lífi Ís-
lendings um sumar. Sú varð nú al-
deilis ekki raunin.
Svarthöfða svelgdist á
morgunuppáhellingunni og
kaffi korgurinn frussaðist yfir
eldhúseyjuna þegar hann sá að nú
væri ekki lengur móðins að fá sér
pulsu eftir sund. Það verður víst
enginn pulsuvagn við Sundhöll-
ina í Reykjavík. Hvaða djöfulsins
mannvonska er það?! Hvað næst?
Enginn landi í Breiðholtinu?
Nú er Svarthöfði ekkert gefinn
fyrir að leggja leið sína niður í mið-
bæ Reykjavíkur. Svarthöfði hefur
einfaldlega ekki áhuga á lunda-
böngsum og rándýrum hræátu-
fiski með fitugum frönskum. En
þegar að pulsuvagninn var bann-
aður var honum nóg boðið. Því-
lík aðför að þjóðarrétti Íslendinga
hefur ekki sést fyrr né síðar.
Ekki er hægt að kenna
lattelepjandi snobburunum í 101
með sína skósíðu trefla einum um
því þetta átti víst að vera eitthvað
gúrmet, hvernig sem það svo sem
er borið fram. Stjörnukokkur ætl-
aði að gefa svöngum sundgestum
pulsu venju samkvæmt.
Svarthöfði leggur til að sam-
félagið rísi upp og mótmæli
þessari aðför að pulsunni. Hvers
á hún að gjalda? Svarthöfði efast
reyndar um að pulsan hafi áhuga
á að prófa eitthvað nýtt eins og
hunangsgljáðan rauðlauk og sús
víd remúlaði, en það má alla-
vega leyfa henni að njóta vafans.
Þetta er nú eftir allt saman pulsan
okkar allra og hún á betra skilið
frá pulsuhöturunum í ráðhúsinu.
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Stafirnir M & M í sælgætinu eru upp-
hafsstafir Mars og Murrie sem bjuggu
sælgætið til upphaflega.
Nintendo framleiddi fyrst spilastokka.
Keanu Reeves var verslunarstjóri
pastaverslunar í Toronto í Kanada
áður en hann varð kvikmyndaleikari.
Krókódílar eru litblindir.
Kettir verja 66% af ævi sinni
sofandi.
Hver er
hann
n Fæddur á þessum
degi 1959 og er því 60
ára í dag.
n Hann gaf út plötuna
Kettlingar, með hljóm-
sveitinni Hendes verden.
n Í apríl lenti hann í leiðinlegu
atviki á skíðum í Chamonix í
Frakklandi.
n Hann er tónlistarmaður og
leikari.
n Hann lék í annarri seríu Ófærðar
eftir að hafa í nokkur ár verið fjarri
sviðsljósinu.
SVAR: VALDIMAR ÖRN FLYGENRING,
TÓNLISTARMAÐUR OG LEIKARI
„MIKILL URGUR
OG ÓÁNÆGJA Í
STARFSMÖNNUM“
n Um 300 starfsmenn IKEA fengu ekki bónus greiddan
H
já mörgum fyrirtækjum
þekkist það að greiða starfs-
fólki bónusa af ýmsu tagi,
til dæmis fyrir mætingu,
fyrir góðan árangur í starfi, þegar
fyrirtækið nær ákveðnum mark-
miðum og annað slíkt.
IKEA hefur í nokkur ár greitt
starfsmönnum sínum bónus fyr-
ir mætingu, svokallaðan viðveru-
bónus. Greiðslan er ekki skyldu-
greiðsla samkvæmt kjara- og/
eða ráðningarsamningum heldur
einfaldlega úrræði sem yfirmenn
IKEA gripu til á sínum tíma til að
hvetja starfsfólk sitt til að mæta
oftar í vinnu og koma í veg fyr-
ir miklar fjarvistir starfsmanna
vegna veikinda.
Heimildarmaður DV sem er
starfsmaður hjá IKEA segir að
bónusinn hafi fyrst í stað ver-
ið greiddur út einu sinni á ári,
en seinna hafi því verið breytt og
hann greiddur út tvisvar á ári, um
mánaðamót júní/júlí með launum
fyrir júnímánuð og um mánaða-
mót desember/janúar með laun-
um fyrir desember. Heimildar-
maður DV vill ekki koma fram
undir fullu nafni þar sem hann
óttast um starfsöryggi sitt hjá IKEA
og segir orðrétt „þeir sem hafa ver-
ið með eitthvað múður, hafa yfir-
leitt verið látnir fara“, við skulum
því kalla hann Jón hér eftir.
„Síðustu áramót var bónusinn
greiddur og því gerðu starfsmenn
ráð fyrir að fá hann einnig greidd-
an núna,“ segir Jón, en þegar laun-
in fyrir júnímánuð voru greidd
föstudaginn 28. júní kom í ljós að
bónusinn fylgdi ekki með.
„Ég spurði yfirmann minn
hvort hann vissi eitthvað um
þetta og hann vissi ekkert meira
en ég,“ segir Jón, sem unnið hef-
ur hjá IKEA í nokkur ár og segir
hann mikinn urg og óánægju vera
hjá starfsmönnum vegna máls-
ins. „Þetta var eina málið sem var
rætt hér í kaffi- og matartímum á
mánudaginn.“
Allir starfsmenn IKEA hafa
fengið bónusinn greiddan, hvort
sem þeir eru í fullu starfi eða
hlutastarfi, en Jón segir um 300
manns vinna í heild hjá fyrirtæk-
inu. „Þeir sem eru hér í hlutastarfi,
hafa fengið hann greiddan í sam-
ræmi við starfshlutfall,“ segir Jón.
Jón bætir við að yfirmenn IKEA
hafi verið mjög stoltir af því þegar
viðverubónusinn byrjaði og fram-
takið hafi einnig vakið athygli hjá
VR.
Flestir starfsmenn IKEA eru
í Verslunarmannafélagi Reykja-
víkur, en nokkrir í Eflingu. Í sam-
tali blaðamanns við VR hefur ekk-
ert svona mál komið inn á þeirra
borð. „Það er svolítið erfitt að svara
fyrir svona mál, við höfum feng-
ið mál inn á okkar borð sem snúa
að mætingabónusum, en það þarf
bara að skoða hvert mál fyrir sig,
ráðningarsamninga og slíkt,“ segir
Stefán Sveinbjörnsson.
„Almennt séð er svigrúm þegar
um mætingabónus er að ræða og
sérstaklega þegar hann á að ná til
langs tíma,“ segir Stefán og ítrekar
að skoða þurfi hvert mál fyrir sig.
Starfsmenn mæta veikir til að
ná viðverubónus
Bónusinn er um 100.00 kr. tvisvar
á ári og er tekinn af fjárhæðinni
skattur og önnur gjöld, engu að
síður er um að ræða upphæð sem
starfsmenn hafa lagt allt kapp á
að fá greidda. „Fólk er farið að
gera ráð fyrir að fá þennan bónus
greiddan, eðlilega, og hefur gert
allt til að svo verði. Hafa þeir til
dæmis mætt í vinnu slappir, kom-
ið veikum börnum sínum fyrir
hjá ættingjum eða vinum og nýtt
fremur sumarfrísdaga sína til þess
að rýra ekki bónusinn. Komi hins
vegar til veikinda hjá starfsmanni
eða barni hans og hann hef-
ur þurft að nýta veikindadaga fer
bónusinn stiglækkandi, og hverf-
ur alveg ef starfsmaðurinn er frá í
fimm daga. Þetta var enn erfiðara
þegar bónusinn var greiddur bara
einu sinni á ári, þá mátti maður
ekki vera frá í einn dag veikur, þá
byrjaði hann strax að lækka,“ seg-
ir Jón.
Rétt er að minna hér á að sam-
kvæmt kjarasamningi VR á starfs-
maður eftir sex mánaða starf rétt
á 12 dögum vegna veikinda barna
undir 13 ára aldri, og heldur starfs-
maður launum auk vakta- og yf-
irvinnuálags. En starfsmenn hjá
IKEA hafa ekki haldið viðverubón-
usnum ef þeir eru frá vegna eigin
veikinda og/eða veikinda barna
sinna.
„Alltaf ljóst að bónusinn væri
endurskoðaður árlega“
„Bónusinn var endurskoðaður
um áramótin og ákveðið að hætta
að greiða hann út,“ segir Guðný
Camilla Aradóttir fjölmiðlafulltrúi
IKEA.
„Eftir á að hyggja hefði kannski
verið betra að hafa þetta skýrara,
það vissu allir deildarstjórar af
þessu, en kannski komst það ekki
til skila til allra starfsmanna, en
það fylgdi alltaf sögunni að bón-
usinn yrði endurskoðaður árlega.
Framkvæmdastjóri var með fund
í janúar þar sem hann útskýrði
hvernig þetta yrði næst.“
Var þetta þá bara útskýrt fyr-
ir deildarstjórunum? „Já væntan-
lega, en ef það er eitthvað í þessu
sem hefði mátt gera betur þá hefði
það verið að tryggja það betur að
allir fengju að vita þetta. Það hefði
kannski verið hægt að vinna það
betur.
Bónusinn byrjaði árið 2012
vegna þess að veikindi höfðu auk-
ist mjög og voru óútskýranlega
mikil eins og gerist og gengur hjá
fyrirtækjum og í þessum bransa.
Þetta var leið til að prófa hvort
þetta myndi koma í veg fyrir þess-
ar óútskýrðu fjarvistir. Að sjálf-
sögðu er fólk veikt þegar það er
veikt, en þetta var meira en það.
Þetta virkaði vel í svona þrjú ár, svo
fór þetta að verða aftur eins og var
og svo var þetta bara alveg hætt að
virka, sem er ástæðan fyrir að það
var ákveðið að hætta þessu.
Bónusinn er hinsvegar endur-
skoðaður árlega og ekkert búið að
ræða framhaldið. Hann kom sér
mjög vel fyrir þá sem gátu nýtt sér
þetta.“
Fórnir í hálft ár til einskis
Jón segir að mesta reiðin hjá
starfsmönnum liggi ekki í því að
bónusinn hafi ekki verið greidd-
ur heldur hvernig yfirmenn IKEA
stóðu að málinu. „Þeir hefðu alveg
getað greitt hann síðustu áramót
og tilkynnt þá að þetta væri í síð-
asta sinn sem hann væri greiddur,“
segir Jón, sem sjálfur hefur starf-
að hjá fyrirtækinu í nokkurn tíma
og því fengið bónusinn greidd-
an nokkrum sinnum. „Allir þeir
starfsmenn sem hafa mætt slappir
til vinnu, nýtt sumarfrísdaga sína
og komið veikum börnum sínum
fyrir hjá ættingjum eða vinum til
þess að geta mætt í vinnu síðast-
liðna sex mánuði færðu því fórnir
til einskis.“ n
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is