Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Qupperneq 4
4 5. júlí 2019FRÉTTIR Aðförin að pulsunni S varthöfði hélt framan af viku að hún yrði frekar tíð- indalítil. Allir uppteknir við að maka á sig sólarolíu og nýta örugglega alla mögulega sól- argeisla. Grilla í Crocs-urunum sínum og hlusta á Stál og hnífur í botni. Ósköp venjuleg vika í lífi Ís- lendings um sumar. Sú varð nú al- deilis ekki raunin. Svarthöfða svelgdist á morgunuppáhellingunni og kaffi korgurinn frussaðist yfir eldhúseyjuna þegar hann sá að nú væri ekki lengur móðins að fá sér pulsu eftir sund. Það verður víst enginn pulsuvagn við Sundhöll- ina í Reykjavík. Hvaða djöfulsins mannvonska er það?! Hvað næst? Enginn landi í Breiðholtinu? Nú er Svarthöfði ekkert gefinn fyrir að leggja leið sína niður í mið- bæ Reykjavíkur. Svarthöfði hefur einfaldlega ekki áhuga á lunda- böngsum og rándýrum hræátu- fiski með fitugum frönskum. En þegar að pulsuvagninn var bann- aður var honum nóg boðið. Því- lík aðför að þjóðarrétti Íslendinga hefur ekki sést fyrr né síðar. Ekki er hægt að kenna lattelepjandi snobburunum í 101 með sína skósíðu trefla einum um því þetta átti víst að vera eitthvað gúrmet, hvernig sem það svo sem er borið fram. Stjörnukokkur ætl- aði að gefa svöngum sundgestum pulsu venju samkvæmt. Svarthöfði leggur til að sam- félagið rísi upp og mótmæli þessari aðför að pulsunni. Hvers á hún að gjalda? Svarthöfði efast reyndar um að pulsan hafi áhuga á að prófa eitthvað nýtt eins og hunangsgljáðan rauðlauk og sús víd remúlaði, en það má alla- vega leyfa henni að njóta vafans. Þetta er nú eftir allt saman pulsan okkar allra og hún á betra skilið frá pulsuhöturunum í ráðhúsinu. Svarthöfði Það er staðreynd að… Stafirnir M & M í sælgætinu eru upp- hafsstafir Mars og Murrie sem bjuggu sælgætið til upphaflega. Nintendo framleiddi fyrst spilastokka. Keanu Reeves var verslunarstjóri pastaverslunar í Toronto í Kanada áður en hann varð kvikmyndaleikari. Krókódílar eru litblindir. Kettir verja 66% af ævi sinni sofandi. Hver er hann n Fæddur á þessum degi 1959 og er því 60 ára í dag. n Hann gaf út plötuna Kettlingar, með hljóm- sveitinni Hendes verden. n Í apríl lenti hann í leiðinlegu atviki á skíðum í Chamonix í Frakklandi. n Hann er tónlistarmaður og leikari. n Hann lék í annarri seríu Ófærðar eftir að hafa í nokkur ár verið fjarri sviðsljósinu. SVAR: VALDIMAR ÖRN FLYGENRING, TÓNLISTARMAÐUR OG LEIKARI „MIKILL URGUR OG ÓÁNÆGJA Í STARFSMÖNNUM“ n Um 300 starfsmenn IKEA fengu ekki bónus greiddan H já mörgum fyrirtækjum þekkist það að greiða starfs- fólki bónusa af ýmsu tagi, til dæmis fyrir mætingu, fyrir góðan árangur í starfi, þegar fyrirtækið nær ákveðnum mark- miðum og annað slíkt. IKEA hefur í nokkur ár greitt starfsmönnum sínum bónus fyr- ir mætingu, svokallaðan viðveru- bónus. Greiðslan er ekki skyldu- greiðsla samkvæmt kjara- og/ eða ráðningarsamningum heldur einfaldlega úrræði sem yfirmenn IKEA gripu til á sínum tíma til að hvetja starfsfólk sitt til að mæta oftar í vinnu og koma í veg fyr- ir miklar fjarvistir starfsmanna vegna veikinda. Heimildarmaður DV sem er starfsmaður hjá IKEA segir að bónusinn hafi fyrst í stað ver- ið greiddur út einu sinni á ári, en seinna hafi því verið breytt og hann greiddur út tvisvar á ári, um mánaðamót júní/júlí með launum fyrir júnímánuð og um mánaða- mót desember/janúar með laun- um fyrir desember. Heimildar- maður DV vill ekki koma fram undir fullu nafni þar sem hann óttast um starfsöryggi sitt hjá IKEA og segir orðrétt „þeir sem hafa ver- ið með eitthvað múður, hafa yfir- leitt verið látnir fara“, við skulum því kalla hann Jón hér eftir. „Síðustu áramót var bónusinn greiddur og því gerðu starfsmenn ráð fyrir að fá hann einnig greidd- an núna,“ segir Jón, en þegar laun- in fyrir júnímánuð voru greidd föstudaginn 28. júní kom í ljós að bónusinn fylgdi ekki með. „Ég spurði yfirmann minn hvort hann vissi eitthvað um þetta og hann vissi ekkert meira en ég,“ segir Jón, sem unnið hef- ur hjá IKEA í nokkur ár og segir hann mikinn urg og óánægju vera hjá starfsmönnum vegna máls- ins. „Þetta var eina málið sem var rætt hér í kaffi- og matartímum á mánudaginn.“ Allir starfsmenn IKEA hafa fengið bónusinn greiddan, hvort sem þeir eru í fullu starfi eða hlutastarfi, en Jón segir um 300 manns vinna í heild hjá fyrirtæk- inu. „Þeir sem eru hér í hlutastarfi, hafa fengið hann greiddan í sam- ræmi við starfshlutfall,“ segir Jón. Jón bætir við að yfirmenn IKEA hafi verið mjög stoltir af því þegar viðverubónusinn byrjaði og fram- takið hafi einnig vakið athygli hjá VR. Flestir starfsmenn IKEA eru í Verslunarmannafélagi Reykja- víkur, en nokkrir í Eflingu. Í sam- tali blaðamanns við VR hefur ekk- ert svona mál komið inn á þeirra borð. „Það er svolítið erfitt að svara fyrir svona mál, við höfum feng- ið mál inn á okkar borð sem snúa að mætingabónusum, en það þarf bara að skoða hvert mál fyrir sig, ráðningarsamninga og slíkt,“ segir Stefán Sveinbjörnsson. „Almennt séð er svigrúm þegar um mætingabónus er að ræða og sérstaklega þegar hann á að ná til langs tíma,“ segir Stefán og ítrekar að skoða þurfi hvert mál fyrir sig. Starfsmenn mæta veikir til að ná viðverubónus Bónusinn er um 100.00 kr. tvisvar á ári og er tekinn af fjárhæðinni skattur og önnur gjöld, engu að síður er um að ræða upphæð sem starfsmenn hafa lagt allt kapp á að fá greidda. „Fólk er farið að gera ráð fyrir að fá þennan bónus greiddan, eðlilega, og hefur gert allt til að svo verði. Hafa þeir til dæmis mætt í vinnu slappir, kom- ið veikum börnum sínum fyrir hjá ættingjum eða vinum og nýtt fremur sumarfrísdaga sína til þess að rýra ekki bónusinn. Komi hins vegar til veikinda hjá starfsmanni eða barni hans og hann hef- ur þurft að nýta veikindadaga fer bónusinn stiglækkandi, og hverf- ur alveg ef starfsmaðurinn er frá í fimm daga. Þetta var enn erfiðara þegar bónusinn var greiddur bara einu sinni á ári, þá mátti maður ekki vera frá í einn dag veikur, þá byrjaði hann strax að lækka,“ seg- ir Jón. Rétt er að minna hér á að sam- kvæmt kjarasamningi VR á starfs- maður eftir sex mánaða starf rétt á 12 dögum vegna veikinda barna undir 13 ára aldri, og heldur starfs- maður launum auk vakta- og yf- irvinnuálags. En starfsmenn hjá IKEA hafa ekki haldið viðverubón- usnum ef þeir eru frá vegna eigin veikinda og/eða veikinda barna sinna. „Alltaf ljóst að bónusinn væri endurskoðaður árlega“ „Bónusinn var endurskoðaður um áramótin og ákveðið að hætta að greiða hann út,“ segir Guðný Camilla Aradóttir fjölmiðlafulltrúi IKEA. „Eftir á að hyggja hefði kannski verið betra að hafa þetta skýrara, það vissu allir deildarstjórar af þessu, en kannski komst það ekki til skila til allra starfsmanna, en það fylgdi alltaf sögunni að bón- usinn yrði endurskoðaður árlega. Framkvæmdastjóri var með fund í janúar þar sem hann útskýrði hvernig þetta yrði næst.“ Var þetta þá bara útskýrt fyr- ir deildarstjórunum? „Já væntan- lega, en ef það er eitthvað í þessu sem hefði mátt gera betur þá hefði það verið að tryggja það betur að allir fengju að vita þetta. Það hefði kannski verið hægt að vinna það betur. Bónusinn byrjaði árið 2012 vegna þess að veikindi höfðu auk- ist mjög og voru óútskýranlega mikil eins og gerist og gengur hjá fyrirtækjum og í þessum bransa. Þetta var leið til að prófa hvort þetta myndi koma í veg fyrir þess- ar óútskýrðu fjarvistir. Að sjálf- sögðu er fólk veikt þegar það er veikt, en þetta var meira en það. Þetta virkaði vel í svona þrjú ár, svo fór þetta að verða aftur eins og var og svo var þetta bara alveg hætt að virka, sem er ástæðan fyrir að það var ákveðið að hætta þessu. Bónusinn er hinsvegar endur- skoðaður árlega og ekkert búið að ræða framhaldið. Hann kom sér mjög vel fyrir þá sem gátu nýtt sér þetta.“ Fórnir í hálft ár til einskis Jón segir að mesta reiðin hjá starfsmönnum liggi ekki í því að bónusinn hafi ekki verið greidd- ur heldur hvernig yfirmenn IKEA stóðu að málinu. „Þeir hefðu alveg getað greitt hann síðustu áramót og tilkynnt þá að þetta væri í síð- asta sinn sem hann væri greiddur,“ segir Jón, sem sjálfur hefur starf- að hjá fyrirtækinu í nokkurn tíma og því fengið bónusinn greidd- an nokkrum sinnum. „Allir þeir starfsmenn sem hafa mætt slappir til vinnu, nýtt sumarfrísdaga sína og komið veikum börnum sínum fyrir hjá ættingjum eða vinum til þess að geta mætt í vinnu síðast- liðna sex mánuði færðu því fórnir til einskis.“ n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.