Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Qupperneq 39
SAKAMÁL 395. júlí 2019
Karen Ingala Smith og Women ś Aid (Kvennahjálp) eiga heiðurinn af verkefninu,
en það er tilkomið vegna þarfar á því að að taka á banvænu ofbeldi karla gegn
konum. Verkefnið miðar að því að finna einkenni kvendrápa, aðstæður sem leiða
til þeirra og hjálpa til við að draga úr þeim.
Verkefnið hófst í febrúar árið 2015 og er byggt á upplýsingum Smith sem hún hafði
safnað saman á blogsíðu sinni, fyrsta skýrslan kom út í desember árið 2016. Smith
hefur síðan í janúar árið 2012 safnað saman upplýsingum af netinu um fréttir
þar sem konur eru drepnar af mönnum, meðal annars úr tölfræði lögreglunnar,
fréttum og skýrslum. Smith safnaði saman upplýsingum um gerendur, málsatvik,
þar á meðal dagsetningu, nöfn aðila, lögregluumdæmi, börn viðkomandi, skráða
ástæðu og morðvopn.
séu engar nýjar upplýsingar í máli
Stratford.
Melanie Hall
Melanie Hall, 25 ára, hvarf kvöldið
9. júní 1996 í Bath og fann verka-
maður líkamsleifar hennar við
hraðbraut 13 árum seinna.
Hall, sem starfaði sem rit-
ari við Royal United-spítalann í
Bath, Somerset, var að skemmta
sér á Cadillacs-næturklúbbnum
sem staðsettur er á Walcot-stræti,
kvöldið sem hún hvarf. Síðast sást
til hennar kl. 01.10 um nóttina þar
sem hún sat á stól við dansgólfið.
Í mars árið 2014 óskaði lög-
reglan eftir upplýsingum um hvít-
an Golf Gti, sem var með tengingu
við Pentwn-svæði í Cardiff, en lög-
reglan taldi bílinn hafa þýðingu í
málinu.
45 ára gamall karlmaður, sem
var ekki verið nafngreindur, var
handtekinn í júní árið 2016 grun-
aður um morðið. Hafði hann mætt
sjálfviljugur á lögreglustöð í Wilts-
hire og óskað eftir að tala við þann
sem fór með rannsókn málsins.
Lögreglan gaf hins vegar út yfirlýs-
ingu í september sama ár að hon-
um hefði verið sleppt án ákæru.
Handtaka hans kom í kjölfar yf-
irlýsingar frá foreldrum Hall þar
sem þau buðu 50 þúsund pund af
eigin fé sem verðlaun fyrir nýjar
upplýsingar í máli hennar, 20 árum
eftir hvarf hennar.
Sarah Davenport, leynilög-
reglumaður í lögreglunni í Avon og
Somerset, gaf nýlega út yfirlýsingu
og óskaði eftir nýjum upplýsingum
í máli Hall.
„Óleystum morðmálum er
aldrei lokað. Málin eru skoðuð
reglulega til að athuga hvort ný
tækni, eins og framfarir í DNA-
-tækni, geti leitt eitthvað nýtt í ljós.
Við erum einstaklega þakklát al-
menningi fyrir alla hjálp frá þeim
og við fáum oft símtöl með nýj-
um upplýsingum, jafnvel varðandi
sum af okkar elstu óleystu málum.
Hvarfið og morðið á Melanie
Hall er enn óleyst. Koma verð-
ur refsingu yfir morðingja henn-
ar til að fjölskylda hennar geti öðl-
ast sátt. Ég vil hvetja alla sem búa
yfir upplýsingum um hver drap
Melanie, eða hvers vegna hún var
drepin, til að stíga fram núna. Upp-
lýsingar sem virðast lítilvægar geta
verið lykillinn að lausn málsins.“
Debbie Linsley
Debbie Linsley, 26 ára, fannst
látin 23. mars 1988 í lest sem kom
frá Orpington í Bromley, London,
þegar lestin stöðvaði á Viktoríu-
stöðinni.
Linsley, sem starfaði sem hótel-
stjóri í Edinborg, var að heimsækja
foreldra sína og Gordon, bróður
sinn, sem hugðist ganga í hjóna-
band skömmu síðar.
Hún steig um borð í lestina í
Petts Wood í Suðaustur-London
og sat í gamaldags sex manna
vagni, en dyr voru á báðum hliðum
vagnsins.
Hermt er að frönsk au-pa-
ir stúlka hafi heyrt öskur eft-
ir að lestin fór frá Brixton í Suður-
-London. Lestin kom á lestarpall 2
og klukkan 14.50 fundu starfsmenn
lík Linsley um borð. Talið er að
hún hafi verið myrt með 12–18 cm
hníf sem lögreglan hefur enn ekki
fundið. Yfir 1.200 yfirlýsingar vitna
hafa verið teknar og fleiri en 650
einstaklingar útilokaðir sem mögu-
legir sakborningar á þeim tíma sem
rannsóknin hefur staðið yfir.
Linsley barðist við morðingja
sinn og fannst DNA hans í blóð-
slóð á vettvangi. Engin samsvörun
fannst í alþjóðlegum DNA-gagna-
banka og rannsóknarlögreglan
notaði nýja aðferð í mars á þessu
ári til að reyna að finna og bera
kennsl á morðingja hennar. Not-
uðu þeir svokallaða fjölskyldu-
leit til að reyna að finna einhvern
sem gæti verið skyldur gerandan-
um. Hvöttu þeir einnig almenning
til að hugsa til baka til dagsins sem
Linsley var myrt til að reyna að sjá
hvort þeir myndu eftir einhverju.
Þrátt fyrir allt hefur lögreglunni
þó ekki tekist að finna morðingja
hennar og engar nýjar upplýsingar
hafa komið fram tengdar morðinu.
n
Kaffihlaðborð ýmsar útfærslur, Pinnamatur,
smurt brauð, tertur, o.fl. fyrir erfidrykkjuna
Afgreitt á einnota fötum
tilbúið á borðið
Erfidrykkja
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
„ÓLEYSTUM MORÐMÁLUM ER ALDREI LOKAГ
Jill Dando var skotin til hana fyrir utan íbúð
sína í Fulham í Vestur-London árið 1999.
Lamplugh, 25 ára, hvarf árið 1986, en hún yfirgaf skrifstofu sína til að hitta óþekktan
viðskiptavin að nafni Herra Kipper. Lögreglan telur að Kipper sé John Cannan, dæmdur
morðingi.
Melanie Hall var 25 ára þegar hún hvarf
kvöld eitt þegar hún var úti að skemmta sér.
Líkamsleifar hennar fundust 13 árum seinna.
Debbie Linsley 26
ára fannst látin 23. mars
1988 í lest við komu
hennar á Viktoríustöðina
í London.