Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS 5. júlí 2019
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf
www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant
Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem
ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar
stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Þetta kostar að lifa eins
og í eina viku
Nýir áhrifavaldar spretta
upp nánast í hverjum
mánuði og keppast við
að sýna fylgjendum
sínum á Instagram frá
sínu „daglega lífi“ sem
er uppfullt af lúxus,
utanlandsferðum,
rándýrum merkjavör-
um og veitingastaða-
heimsóknum. Þó það sé
ekki alltaf tekið fram er
mikið um duldar aug-
lýsingar á samfélags-
miðlum og áhrifavaldar
fá það gefins sem þeir
gera eða kaupa, eða fá
greitt fyrir, þó þeir gefi
það ekki alltaf upp. Það
skekkir því raunveruleik-
ann talsvert. Við á DV
tókum saman hvað vika
í lífi áhrifavalds myndi
kosta ef ekkert væri
gefins eða greitt fyrir.
Mánudagur
Litun og klipping: 23.000 kr.
Gervineglur: 9.000 kr.
Litun og plokkun: 6.000 kr.
Augnháralenging: 18.000 kr.
Hádegismatur: 3.000 kr.
Kaupa kort á námskeið í líkamsrækt: 15.000 kr.
Kvöldmatur: 4.000 kr.
Samtals: 78.000 kr.
Þriðjudagur
Próteinsjeik eftir æfingu: 1.000 kr.
Spa eftir æfingu með hálftíma nuddi: 10.000 kr.
Hádegismatur: 3.000 kr.
Kaupa ný æfingaföt: 22.000 kr.
Kaffihús með öðrum áhrifavöldum: 2.000 kr.
Sundferð: 1.000 kr.
Kvöldmatur: 5.000 kr.
Samtals: 44.000 kr.
Miðvikudagur
Fylla á próteinduft og önnur fæðubótarefni: 25.000 kr.
Spa eftir æfingu án nudds: 6.000 kr.
Hádegismatur (nesti): 1.000 kr.
Kaupa nýja æfingaskó: 25.000 kr.
Húðslípun á andliti og hálsi: 15.000 kr.
Kvöldmatur: 4.000 kr.
Samtals: 76.000 kr.
Fimmtudagur
Sundferð: 1.000 kr.
Hádegismatur: 3.000 kr.
Kaupa föt fyrir djammið: 15.000 kr.
Þriggja rétta kvöldverður með vínpörun: 23.000 kr.
Nokkrir kokteilar á bar: 8.000 kr.
Leigubíll heim: 5.000 kr.
Samtals: 55.000 kr.
Föstudagur
Stakur tími í trimmform: 4.000 kr.
Hádegismatur: 4.000 kr.
Kaffihúsaferð með umboðsmanninum: 3.500 kr.
Kaupa nýja hælaskó: 23.000 kr.
Út að borða, einn réttur, ekkert vín: 6.500 kr.
Samtals: 41.000 kr.
Laugardagur
Kaupa brúnkusprey: 8.000 kr.
Kaupa aðrar snyrtivörur: 12.000 kr.
Kaupa nýtt bikiní: 8.000 kr.
Hádegismatur: 3.000 kr.
Spa með klukkutíma nuddi: 15.000 kr.
Kvöldmatur, eldað heima: 3.000 kr.
Kaupa freyðivínsflösku: 14.000 kr.
Samtals: 63.000 kr.
Sunnudagur
Dögurður á veitingastað: 5.000 kr.
Bóka og borga ferð til Tenerife í viku
með hóteli í gegnum ferðaskrifstofu:
300.000 kr.
Vax á fótleggjum, undir höndum og
brasilískt vax: 15.000 kr.
Varafyllingarsprautur: 50.000 kr.
Kvöldmatur: 5.000 kr.
Samtals: 375.000 kr.
Heildarkostnaður við vikuna: 732.000 kr.
Inn í þessa útreikninga er ekki tekinn kostnaður við húsnæði,
bíl eða almennt heimilishald. Það er því ljóst að manneskja
sem myndi vilja tileinka sér lífsstíl áhrifavalda, án þess að fá allt
eða hluta gefins, myndi þurfa að vera með svimandi há laun,
eða fimm til sex milljónir hið minnsta. Sem dæmi má nefna að
mánaðarlaun bankastjóra Íslandsbanka eru rúmar 3,6 milljónir
og laun forsætisráðherra rúmar tvær milljónir.