Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 24
Páskafjör 12. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ EN D U R H U G SUN PL OK K U M HV ERFI SGÖNGUR DAGSKRÁ Ferðafélag Íslands www.fi.is Þátttaka í umhverfisviku er ókeypis og allir velkomnir UMHVERFISVIKA FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS 2019 25. apríl: Setning umhverfisviku Ganga umhverfis Elliðaárdal og súpa í boði Vakandi 26. apríl: Umhverfis pub-quiz í samvinnu við FÍ Ung: Hvað veist þú um umhverfismál? 27. apríl: Gönguskórnir ganga aftur Skiptimarkaður og fataviðgerðir í Mörkinni 6 28. apríl: Stóri plokkdagurinn 2019 Ferðafélag Íslands tekur þátt um land allt 29. apríl: Ganga umhverfis Helgafell í Hafnarfirði Grænn lífstíll 30. apríl: Ganga umhverfis Úlfarsfell Drögum úr plastnotkun 1. maí: Ganga umhverfis Elliðavatn Minnkum kolefnisfótsporið 2. maí: Undir, yfir og allt um kring Fyrirlestrakvöld í Mörkinni 6 Göngur í þágu umhverfisins Í tilefni af degi umhverfisins 25. apríl ætlar Ferðafélag Íslands að blása til umhverfisviku dagana 25. apríl–2. maí. Markmið umhverfisvikunnar er að vekja fólk til umhugsunar um umhverfismál, stuðla að bættri umgengni við náttúru Íslands og hvetja félaga til að tileinka sér vistvæna lifnaðarhætti. „Við ætlum til að mynda að láta til okkar taka á Stóra plokkdeginum 28. apríl, bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og í deildunum okkar um allt land,“ segir Heiðrún Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá FÍ. Að auki verður fjöldinn allur af skemmtilegum viðburðum í boði í umhverfisvikunni sem má sjá á dagskránni hér. „Frítt verður í alla viðburði umhverfisvikunnar, bæði fyrir félaga og aðra áhugasama. Við ætlum þá að ganga umhverfis Helgafell og Úlfarsfell en einnig kringum Elliðavatn og umhverfis Elliðaárdal. Í hverri göngu verða sérfræðingar með í för sem fræða þátttakendur um ýmsa þætti umhverfismála en hver ganga hefur ákveðið þema. Þetta er táknrænn gjörningur sem vísar í umhverfið en minnir okkur jafnframt á mikilvægi þess að skoða hlutina frá sem flestum hliðum, og einblína ekki bara á toppinn. Vonin er að allir fari heim með aukna vitund um eigin umhverfisspor, rjóða vanga og bros á vör.“ Páskaferð á Snæfellsjökul FÍ verður með skemmtilega og krefjandi göngu um páskana. Ætlunin er að ganga á Snæfellsjökul og farið verður upp á tvo af hundrað hæstu tindum landsins. Áætlað er að farið verði 18. apríl, en ef veður aftrar för eru föstudagurinn langi og laugardagurinn til vara. Nýtt! Ferðafélag Íslands er með nýtt verkefni sem nefnist Útideildin. Deildin er ætluð þeim sem eru í meðalgóðu gönguformi, vilja hittast reglulega og stunda skemmtilega og fjölbreytta útivist á besta tíma ársins, apríl–október. Ert þú morgunhani? Fjallganga í upphafi dags. FÍ býður upp á stórskemmtilegar gönguferðir í morgunsárið 6.–10. maí. Göngurnar eru fríar og byrja klukkan sex á morgnana. Sjá nánar um morgungönguviku á fi.is. Ekki fara í hundana! FÍ er með skemmtilegar 1½–2 klukkustunda gönguferðir fyrir hundaeigendur. Göngurnar byrja klukkan 18.00 og eru þátttakendur beðnir um að mæta vel búnir með hundana í ól. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Allar upplýsingar um gönguferðir, námskeið og verkefni fást á heimasíðu Ferðafélags Íslands fi.is Félagið er staðsett að Mörkinni 6, 108 Reykjavík. Opnunartími er frá 10–17 alla virka daga. Sími: 568-2533 Tölvupóstfang: fi@fi.is Fylgstu með á Facebook: Ferðafélag Íslands og Instagram: Ferðafélag Íslands n FERÐAFÉLAG ÍSLANDS:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.