Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 34
34 FÓKUS 12. apríl 2019 MANNDRÁP OG ALVARLEGIR GLÆPIR KVENNA Á ÍSLANDI Framhald frá síðasta tölublaði „Hann þvingaði tungunni upp í mig og þetta voru ósjálfráð viðbrögð Í mars í fyrra hlaut hin ástralska Nara Walker 12 mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás og stórfellt ofbeldisbrot í nánu sambandi en níu mánuðir voru skilorðsbundnir. Nara var sakfelld fyrir að hafa veist með ofbeldi að eiginmanni sínum að kvöldi 9. nóvember 2017 og bíta í tungu hans þannig að hún fór í sundur. Þá var hún einnig sakfelld fyrir að hafa veist með ofbeldi að konu sem var gestur á heimili þeirra hjóna. Nara og þáverandi eiginmaður hennar, sem er frá Frakklandi, fluttust til Íslands í október árið 2016 eftir að eiginmanni hennar bauðst tímabundið starf hér á landi. Nara var í ítarlegu viðtali við DV í mars í fyrra og ræddi sína hlið á málinu. Hún kvaðst sjálf vera fórnarlamb áralangs heimilisofbeldis af hálfu eiginmanns síns og lagði áherslu á að tungubitið hafi verið ósjálfráð viðbrögð í hita leiksins. Sagði hún að eiginmaður hennar hefði beitt hana andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi í fjölmörg skipti og að fyrsta skiptið hefði verið nokkrum mánuðum eftir að samband þeirra hófst. Frásögn Nöru af atburðum kvöldsins er á skjön við framburð eiginmanns hennar og hinnar konunnar. Umrætt kvöld voru Nara og eiginmaður úti að skemmta sér ásamt umræddri konu og bandarískum karlmanni og var síðan haldið heim til þeirra hjóna. Þar áttu sér stað átök sem leiddu til þess að Bandaríkjamaðurinn yfirgaf samkvæmið. Hélt Nara því fram að eiginmaður hennar hefði byrlað henni kókaín þetta kvöld. Í samtali við DV lýsti Nara atburðarásinni þannig að eiginmaður hennar hefði meinað henni að yfirgefa íbúðina, kýlt hana margsinnis og síðan komið með andlit sitt nær hennar þannig að hún varð dauðskelkuð. Sagðist hún hafa orðið „stjörf af hræðslu“ með andlit mannsins svo nærri hennar og þegar hann hafi reynt að kyssa hana þá hafi það gerst, að hún beit helminginn af tungu hans, í einum bita. „Hann þvingaði tunguna upp í mig og þetta voru ósjálfráð viðbrögð. Ég var í áfalli.“ Þá bætti hún við á öðrum stað: „Þegar lögreglan kom á staðinn þá benti maðurinn minn á mig og sagði: „Hún gerði þetta, hún gerði þetta,“ en ég reyndi að segja þeim að ég hefði orðið fyrir árás þetta kvöld, að hann hefði ráðist á mig. Þetta endaði samt þannig að maðurinn minn og konan voru flutt á slysadeild en ég var flutt á lögreglustöð, sett í fangaklefa í 15 klukkutíma og yfirheyrð. Ég var mjög ringluð yfir því af hverju ég var tekin en ekki hann.“ Nara sagðist jafnframt hafa staðið uppi heimilislaus og allslaus eftir atvikið. Sagði hún það hafa komið henni algjörlega í opna skjöldu að hljóta dóm vegna atviksins. „Það kom mér ekki á óvart að ég skyldi vera kærð, enda skil ég að eftir að einhver hlýtur áverka þá þarf að rannsaka það og komast að niðurstöðu. Ég bjóst samt alls ekki við að fá dóm, enda gerði ég ráð fyrir að það yrði tekið til greina ofbeldið sem ég var beitt áður en þetta átti sér stað.“ Mál Nöru rataði aftur í fjölmiðla í desember síðastliðnum þegar Lands rétt ur þyngdi dóminn yfir henni úr árs fang elsi í 18 mánuði, þar af 15 mánuði skil­ orðsbundna. Hæstirétt ur hafnaði í kjölfarið mál skots beiðni hennar. Blásið var til þögulla mótmæla fyrir utan fangelsið á Hólmsheiði þegar Nara mætti þangað til að hefja afplánun þann 20. febrúar síðastliðinn. Þá hafa vinir Nöru í heimalandi hennar blásið til undirskriftasöfnunar henni til stuðnings auk þess sem móðir hennar hefur skrifað bréf til íslenskra ráðamanna og farið fram á að dóttir hennar verði náðuð. Þ ann 23. júlí árið 2000 varð Bergþóra Guðmundsdóttir manni að bana í íbúð að Leifsgötu 10 í Reykjavík. Bergþóra og Hallgrímur Elísson voru gestkomandi í íbúðinni og höfðu setið við drykkju ásamt húsráðanda og öðrum gesti. Á einhvern hátt tókst Hallgrími að reita Bergþóru til reiði og í kjölfarið kom til átaka á milli þeirra. Endaði það með því að Bergþóra réðst á Hallgrím þar sem hann lá á dýnu á gólfi íbúðarinnar og þrengdi að hálsi hans með þeim afleiðingum að hann lést. Bergþóra hélt ávallt fram sakleysi sínu í málinu en framburður hennar við yfirheyrslur og fyrir dómi var þónokkuð breytilegur, og sama gilti um framburð annarra vitna í málinu. Þrátt fyrir það var talið óyggjandi að Bergþóra hefði banað Hallgrími þetta kvöld. Héraðsdómur taldi að það hefði ekki verið ásetningur Bergþóru í upphafi að deyða Hallgrím en þar sem atlaga hennar gegn honum var svo ofsafengin þá leit dómurinn svo á að um hefði verið að ræða ásetningsverk, í lagalegum skilningi. Þann 30. mars 2001 var Bergþóra dæmd til 14 ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæstiréttur Íslands staðfesti dóminn í júní sama ár. Bergþóra kom frá Ísafirði og hlaut síðar viðurnefnið Ísafjarðar­Begga. Í apríl 2005 birtist ítarlegt viðtal við Bergþóru í helgarblaði DV en þá var hún í Kvennafangelsinu í Kópavogi. Fram kom að líf hennar hefði ekki alltaf verið dans á rósum. Hún ólst upp við drykkju og óreglu og átti í erfiðleikum vegna ofvirkni og athyglisbrests, sem hún fékk aldrei greiningu á. Hún var ung þegar hún leiddist út í neyslu áfengis og fíkniefna og eignaðist tvö börn sem síðar var komið fyrir á fósturheimilum. Hún var svokölluð síbrotakona og komst stöðugt í kast við lögin. Í viðtalinu kom fram að allt frá því að Bergþóra var smástelpa hefði hún lært að bíta frá sér ef að henni var sótt .„Ég  læt ekki vaða yfir mig og ef  ég  á nokkra  möguleika  á að verjast, geri ég það. Einn liðurinn í  því  er að vera ekki að skæla vegna örlaga minna.“ DV heldur áfram umfjöllun um alvarlega glæpi framda af konum. Nokkuð sjaldgæft er að konur fremji alvarlega glæpi á Íslandi, svo sem manndráp, ofbeldisglæpi og kynferðisbrot. Undanfarna fimm áratugi hafa nokkrar konur komist í kastljós fjölmiðla í tengslum við alvarleg sakamál. Þetta eru sögur þeirra. KÖLLUÐ ÍSAFJARÐAR-BEGGA Ísafjarðar-Begga DV 2. apríl 2005. BEIT TUNGUNA ÚR EIGINMANNI SÍNUM Nara Walker Áströlsk kona sem beit tunguna úr eiginmanni sínum. EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.