Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 18
18 PRESSAN 12. apríl 2019 B iðin eftir niðurstöðun- um fannst mér mjög erfið- ur tími. Það var svo mikil óvissa og mér fannst tíminn endalaust lengi að líða. Ég vildi bara fá að vita hvort þetta væri krabbamein eða ekki,“ segir Ólöf Gunnlaugsdóttir 42 ára, einstæð móðir þriggja barna sem greindist með illkynja æxli í brjósti og hol- hönd fyrr á þessu ári. Ólöf sem er búsett í Reykjavík með börnunum sínum, Eydísi Örnu, 13 ára, Arnari Mána, 11, og Nökkva Degi, 10, fann fyrir hnút í hægra brjósti á mánudagskvöldi þann 21. janúar. Ólöf hafði ekki miklar áhyggjur til þess að byrja með en ákvað þó að fara til heimilislæknis tveimur dögum seinna. „Honum fannst ástæða til að skoða þetta betur og sendi beiðni á leitarstöðina. Viku seinna fór ég í röntgen, ómskoðun og tek- ið var fínnálarsýni. Læknirinn var ekki alveg viss um hvað þetta var, þar sem þetta leit ekki út eins og illkynja æxli en ekki heldur eins og vökvablaðra. Sunnudaginn 3. febrúar hringdi læknirinn svo með niðurstöður úr sýninu og höfðu fundist slæmar frumur í því sem skoða þurfti betur. Við tók erfið bið eftir frekari rannsóknum og niður- stöðum úr þeim. Á miðvikudegin- um mætti ég aftur í leitarstöðina og fór í grófnálarsýnatöku og fínn- álarsýnatöku úr holhöndinni.“ Biðin eftir niðurstöðunum var verst Eftir þessa rannsókn tók enn og aftur við erfið bið en sex dögum síðar, þriðjudaginn 12. febrúar, átti Ólöf tíma hjá skurðlækni á Landspítalanum. Sá fundur átti eftir að umturna lífi Ólafar. „Hann staðfesti að hnúturinn væri 2,5 sentimetra illkynja æxli og að einnig væri æxli í holhöndinni. Þá tóku við alls konar rannsókn- ir og myndatökur. Lífið varð einn tilfinningarússíbani, upp og nið- ur, og fram undan beið mín stórt verkefni. Í ljós kom að ég þurfti að fara í sex lyfjameðferðir, skurðað- gerð og geisla.“ Ólöf segir biðina eftir niður- stöðunum hafa verið erfiðasta. Hún upplifði mikla óvissu og vildi fá staðfestingu á því hvort um krabbamein væri að ræða eða ekki. „Því að ef þetta var krabbamein þá vildi ég takast á við það sem fyrst. Þegar ég fékk svo endanlega niðurstöðu þá var ég sjálf orðin nokkuð viss um þetta, svo það kom mér lítið á óvart þegar lækn- irinn greindi mér frá því að þetta væri illkynja æxli. Fyrst eftir grein- ingu kom stundum upp sú hugs- un hjá mér hvernig í veröldinni ég ætti að takast á við krabba- meinsmeðferð. Einstæð með þrjú börn sem ég er alfarið með ein, en pabbi þeirra hefur ekkert verið í þeirra lífi í mjög mörg ár.“ Ræðir um veikindin við börnin Á sama tíma tekst Ólöf á við það að yngri sonur hennar er einhverf- ur og dóttir hennar á að fermast á þessu ári. „Ég ákvað samt hins vegar strax að taka þessu á mjög jákvæðan hátt og komast í gegnum þessa baráttu með gleði og jákvæðni. Ég er líka með svo yndislegt stuðn- ingsnet í kringum mig sem hjálpar heilan helling og ég er endalaust þakklát fyrir það. Ég á frábæra vini og yndislega fjölskyldu sem stendur eins og klettur á bak við mig. Mamma mín og systir hafa fylgt mér eins og skuggi í gegnum þetta allt saman sem er algjörlega ómetanlegt.“ Ólöf tók þá ákvörðun að greina börnum sínum strax frá því hvað væri í gangi og vera ekki að bíða með það og skapa óvissu hjá þeim. „Ég sagði börnunum mjög snemma frá þessu eftir að ég fór í fyrstu sýnatökuna á leitarstöð- inni. Ég sagði þeim að það væri verið að athuga hvort þetta væri krabbamein eða eitthvað annað. Krakkar eru svo ótrúlega næmir og þeir finna á sér þegar eitthvað er í gangi. Mér fannst betra að leyfa þeim að fylgjast með held- ur en að þau væru að ímynda sér hvað væri að gerast. Auðvitað urðu þau mjög hrædd fyrst, enda er mjög óhugnanlegt að heyra að einhver sé mögulega með krabba- mein. En við ræddum þetta mik- ið og hvað þetta gæti verið. Þegar niðurstaðan kom svo, þá voru þau búin að melta þetta aðeins og það var þá miklu minna áfall fyrir þau að heyra niðurstöðuna.“ Ólöf ákvað strax að vera mjög opin um veikindi sín við börnin og leyfa þeim að ræða þau við sig eins og þau vildu. „Við höfum verið leið og fúl yfir þessu, enda er þetta hundfúlt ástand, en við höfum líka hlegið og fíflast með þetta, sem mér finnst mjög mikilvægt til þess að létta andrúmsloftið. Þau eru al- veg ótrúlega sterk og eru að tak- ast á við þetta allt saman á frá- bæran hátt. Ég er mjög stolt af þeim fyrir hvernig þau takast á við þetta.“ Fólk tekur greiningu á ólíkan hátt Ólöf hefur reynt eftir bestu getu að halda daglegu lífi þeirra gangandi og tekur þátt í því sem börnin eru að gera eins og heilsan leyfir. „Ég er núna búin með tvær lyfja meðferðir af sex og er ég í frekar kröftugri meðferð. Ég fer á þriggja vikna fresti og fæ fjögur lyf í hvert skipti. Lyfin fara ágætlega í mig en ég er svona sjö til tíu daga að ná mér góðri aftur. Svo ég næ alveg góðum dögum inni á milli, sem ég reyni að nýta vel til þess að gera allt sem þarf að gera. Eftir lyfja meðferðina er skurðaðgerð fram undan og svo geislar þar á eftir. Æxlið er búið að minnka tölu- vert sem er mjög jákvætt og það er gott að sjá að lyfin eru að hafa áhrif.“ Ólöf tók þá ákvörðun að deila reynslu sinni af veikindunum með fólki vegna þess að þegar hún var í greiningarferlinu þá fannst henni mjög hjálplegt að geta lesið sér til um aðrar konur sem gengið höfðu í gegnum það sama. „Það hjálpar mér líka í því að takast jákvætt á við þetta að vera opin með ferlið og það sem ég er að ganga í gegnum. Ég tók eftir því að fyrst voru margir sem voru örlítið hikandi í kringum mig og vissu ekki hvað þeir ættu að segja við mig. Hvort það ætti að minnast á þetta eða láta sem ekkert væri. Sem er alveg skiljanlegt. Þetta eru skrítnar aðstæður og fólk tekur því á ólíkan hátt að greinast með krabbamein.“ n Á Instagram má fylgjast með Ólöfu og baráttu henn- ar við krabbameinið undir not- andanafninu: olofgunnlaugs. KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR FYRIR HANN OG HANA „Ég vildi bara fá að vita hvort þetta væri krabbamein eða ekki“ n Ólöf Gunnlaugsdóttir er einstæð þriggja barna móðir n Greindist með krabbamein í brjósti og holhönd Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is MYND: HANNA/DV Ólöf: „Við höfum verið leið og fúl yfir þessu, enda er þetta hundfúlt ástand, en við höfum líka hlegið og fíflast með þetta.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.