Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 12. apríl 2019 A uk Bergþóru hafa frá árinu 1974 níu konur hlotið dóma fyrir manndráp hér á landi, þar af ein tvisvar sinnum. Munda Pálín Enoksdóttir varð kunningja sínum, Jóhannesi Þorvaldssyni, að bana á heimili sínu á Suðurlandsbraut þann 25. október 1974. Veitti hún honum áverka með hníf með því að skera hann á háls og stinga hann fyrir ofan viðbein og herðablað, og stuttu síðar réðst á hún á hann aftur með vasahníf og litlum skærum og stakk hann. Munda hafði áður verið vistuð á geðdeild en hún hafði tvisvar áður hlotið kæru fyrir að ráðast á fólk með eggvopni. Munda var ódæmd ósakhæf. Munda losnaði úr haldi árið 1985 en sex árum síðar, í febrúar 1991, stakk hún sambýlismann sinn Óskar Þórðarson til bana á heimili sínu í Reykjavík. Hún hringdi í kjölfarið á Kleppsspítala og játaði á sig verknaðinn. Hún var aftur talin ósakhæf vegna geðröskunar og var dæmd til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Hún eyddi ævinni meira og minna inni á stofnunum og síðustu árunum á réttargeðdeildinni að Sogni. Í febrúar 1979 stakk Jenný Kristín Grettisdóttir eiginmann sinn, Árelíus Viggósson, til bana á heimili sínu við Skólavörðustíg í Reykjavík. Hjónin voru við það að skilja á þessum tíma en til átaka kom á milli þeirra eftir dansleik. Endaði það með því að Jenný Kristín greip hníf og stakk Árelíus í bringuna. Hún hringdi sjálf á sjúkrabíl í kjölfarið og viðurkenndi strax við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa stungið eiginmann sinn. Það hefði þó ekki verið ásetningur hennar að bana honum. Hún hlaut fimm ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur en Hæstiréttur þyngdi síðar dóminn í fimm og hálft ár. Í janúar 1981 varð Björg Benjamínsdóttir eiginmanni sínum að bana með því að hella yfir hann bensíni þar sem hann lá í áfengisdauða, og bera síðan að honum eld. Björg hafði áður sent tvö ung börn þeirra á brott úr íbúð fjölskyldunnar í Kötlufelli í Breiðholti. „Kötlufellsmálið“ svokallaða varð umtalað í samfélaginu og vildu sumir meina að gjörðir Bjargar væru réttlætanlegar þar sem eiginmaður hennar hafði verið afar drykkfelldur og komið illa fram við hana. Björg var engu að síður talin sakhæf og hlaut 16 ára fangelsisdóm. Dómurinn var síðar mildaður í 14 ár. Árið 1991 var 15 ára stúlka dæmd til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að hafa ásamt 17 ára pilti orðið Úlfari Úlfarssyni, 28 ára, að bana. Stúlkan lokkaði Úlfar með sér inn í húsasund þar sem pilturinn sló hann í höfuðið þannig að Úlfar féll. Höfuð hans skall utan í steintröppur með þeim afleiðingum að hann hlaut banvæna höfuðáverka. Í janúar 1992 varð Jónína Sigríður Guðmundsdóttir sambýlismanni sínum, Hafsteini Smára Halldórssyni, að bana á heimili þeirra í Vestmannaeyjum. Jónína var þá tvítug að aldri. Höfðu þau setið við drykkju ásamt fleirum þegar til rifrildis kom á milli þeirra. Að lokum tók Jóna upp flökunarhníf og stakk Hafstein í í brjóstið. Hnífstungan var svo djúp að hnífurinn gekk inn að hjarta hans. Jónína var talin hafa banað Hafsteini af ásettu ráði en það var metið til refsilækkunar að hún var ung að aldri og framdi verknaðinn í mikilli reiði og geðshræringu. Hún hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í héraðsdómi en Hæstiréttur þyngdi síðan dóminn í sex ár. Í október 2002 var Sigurhanna Vilhjálmsdóttir dæmd fyrir að stinga sambýlismann sinn, Steindór Kristinsson, í bringu og kvið með þeim afleiðingum að hann lést 18 dögum síðar. Verknaðurinn var framinn í ölæði og kom fram við réttarhöldin að Steindór hefði beitt Sigurhönnu ofbeldi fyrr um kvöldið. Hún hlaut að lokum átta ára fangelsisdóm. Árið 2004 varð Hildur Árdís Sigurðardóttir 12 ára gamalli dóttur sinni að bana með því að stinga hana margsinnis. Þá veittist hún einnig að eldri syni sínum með hníf og veitti sjálfri sér áverka. Eldri syni hennar tókst við illan leik að flýja út úr íbúðinni og hringja á lögreglu. Hildur hafði lengi glímt við alvarleg, geðræn veikindi. Hún var dæmd ósakhæf og gert að sæta öryggisgæslu á réttargeðdeildinni að Sogni. Í júlí 2011 fæddi hin litháenska Agné Krataviciuté sveinbarn á hótelherbergi á Hótel Fróni í Reykjavík. Hún veitti litla drengnum því næst skurðáverka og þrengdi síðan að hálsi hann þar til hann lést. Agné var þá 22 ára gömul og starfaði sem hótelþerna á hótelinu. Barnið fannst skömmu síðar í ruslagámi. Málsvörn Agné fyrir héraðsdómi byggði meðal annars á því að and legt og lík am legt ástand hennar hefði verið slíkt eft ir óvænta fæðingu barnsins að hún hefði enga stjórn haft á gjörðum sín­ um eða vitneskju. Hún hefði ekki áttað sig á því að hún væri þunguð og fæðingin hefði reynst henni gífurlegt áfall. Agné neitaði ætíð sök í málinu. Hún hlaut tveggja ára fangelsi í héraði en Hæstiréttur þyngdi síðar dóminn um eitt ár. Þá varð hin pólska Danuta Kaliszewska sambýlismanni sínum að bana á heimili í Hafnarfirði í febrúar 2015. Stakk hún sambýlismann sinn, sem einnig var pólskur, í hægri hlið líkamans þannig að hnífurinn gekk inn í hægra lunga hans og blæddi úr lunganu með þeim afleiðingum að hann lést. Bæði voru þau í annarlegu ástandi. Danuta neitaði sök í málinu en geðlæknir sem bar vitni fyrir dómi sagði Danutu ekki eiga við geðræn vandamál að stríða, né væri hún siðblind. Hún var að lokum dæmd í 16 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. 10 KONUR FEGURÐ ENDING MÝKT Kostirnir eru ótvíræðir: • Fallegra hús • Ekkert viðhald Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is VEGGKLÆÐNINGAR Fyrir allar gerðir húsa, ný jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða Munda Pálín EnoksdóttirHelgarpósturinn 24. maí 1984. Agné Krataviciuté DV 23. maí 2012.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.