Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS 12. apríl 2019 Verðlaunaleikur: Þekkirðu börnin? Veglegir barnabókapakkar að gjöf frá Bókabeitunni B arnamenningarhátíð fer fram í Reykjavík dagana 9.– 14. apríl. Leiðarljós hennar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi að menn- ingu barna, með börnum og fyrir börn. Fjölmargir og fjölbreyttir við- burðir fara fram um alla borg í grunn-, leik- og listaskólum, ásamt frístundamiðstöðvum. Einnig fer dagskrá fram í Hörpu og Ráðhús- inu. Í tilefni hátíðarinnar taka fjöl- margir Facebook-notendur þátt og birta barnamynd af sér sem prófíl- mynd á samfélagsmiðlinum. Það var því tilvalið að fá leyfi nokkurra þekktra einstaklinga og efna til leiks í samstarfi við Bókabeituna, sem gefur út skemmtilegar og áhugaverðar barna- og unglinga- bækur, eftir bæði innlenda og er- lenda höfunda. Þekkir þú þessa 10 einstak- linga? Sendu okkur svörin fyrir fimmtudaginn 18. apríl með bréf- pósti til DV, Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, á netfangið fokus@ dv.is eða í gegnum Facebook-síðu Fókuss. Við drögum út tvo heppna vinn- ingshafa fimmtudaginn 18. apríl og fær hvor þeirra veglegan barna- bókapakka með fimm barnabók- um frá Bókabeitunni að gjöf. n 1 2 3 4 5 6 7 8 Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.