Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 40
40 12. apríl 2019 F rakkinn Edouard Stern var bankamaður, ekki gjaldkeri, deildarstjóri eða nokkuð slíkt. Hann var bankamaður með stóru B-i. Hann fæddist árið 1954 en fjölskylda hans var ein sú ríkasta í Frakklandi, eigandi fjár- festingarbankans Banque Stern. Faðir hans var af bankafólki kom- inn sem státaði af sögu sem náði allt aftur til 19. aldar í Frankfurt. Þegar þessi saga hefst, árið 2005, er Eduard fimmtugur, þriggja barna faðir, 38. ríkasti maður Frakklands og góður vinur Nicolas Sarkozy, sem varð forseti Frakklands um tveimur árum síðar. Skotinn í latexgalla Allt þetta tók endi þegar jarðvist Edouards lauk 28. febrúar, 2005, í þakíbúð hans í Genf í Sviss. Þar fannst Edouard bundinn við stól, íklæddur húðlitum latexgalla. Hann hafði verið skotinn fjórum sinnum. Innan skamms var lögreglan búin að handtaka Cecile Brossard, 36 ára vændiskonu sem hafði verið ástkona Edouards um fjögurra ára skeið. Þau kynntust árið 2001 þegar Cecile vann við afgreiðslu í verslun í flugstöð í París. Allar götur síðan höfðu þau hist reglulega og stundað kynlíf af miklum móð, kynlíf sem oftar en ekki einkenndist af sadóma- sókisma. Milljón dala deila Eitthvað hafði fallið á samband elskendanna eftir að Edouard gaf Cecile eina milljón Bandaríkja- dala sem hann lagði inn á reikning hennar. Hann fékk síðar bakþanka og kom með einhverjum ráðum í veg fyrir að hún kæmist í milljón- ina. Sennilega hafa heimatökin verið hæg fyrir bankamanninn. En það var kannski ekki það versta heldur hvernig hann út- skýrði ástæður gjörningsins: „Ein milljón dala er há upphæð til að greiða hóru.“ Ástin horfin Þetta allt saman kom þó ekki í veg fyrir að þau stunduðu kynlíf áfram á heimili hans, sem var fullt af kynlífsleikföngum og dýrum fornmunum. Kærleikurinn var þó horfinn hjá Cecile og að sögn voru það ekki einu sinni viðskiptahags- munir sem lágu að baki þátttöku hennar – hún var drifin áfram af hreinu og kláru hatri. Áðurnefndan dag í febrúar, 2005, lét hún til skarar skríða. Edouard gat sig hvergi hrært, ríg- bundinn í stól, þegar Cecile tók hans eigin skammbyssu og miðaði á hann af stuttu færi. Sprenging í höfðinu Fyrsta skotið hæfði Edouard á milli augnanna, annað skotið annars staðar í höfuð hans og að lokum skaut hún hann tvisvar sinnum í skrokkinn. Það liðu fjögur ár áður en réttarhöld hófust yfir Cecile og allan tímann var hún í varðhaldi. Við réttarhöldin sagði hún hvað gerst hefði þennan örlagaríka dag fjórum árum fyrr. „Kvöldið þegar þetta gerðist fannst mér sem eitthvað spryngi í höfðinu aðrir útsölustaðir Epal - Laugavegi 70 EPAL - Harpa Airport fashion - Leifsstöð Reykjavik Raincoats LAUGAVEGUR 62 www.reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com SAKAMÁL 1 maður féll fyrir hendi Bandaríkjamannsins Josephs Martins Danks eftir að hann var, árið 1988, dæmdur til 156 ára fang-elsisvistar fyrir að hafa myrt sex manns frá 6. janúar til 20. janúar árið 1987. Joseph Martin fékk viðurnefnið „Koreatown Slasher“ enda leitaði hann fórnarlamba sinna í Koreatown og nágrenni þess í Los Ang- eles. Að sögn lögreglu, áður en hendur voru hafðar í hári hans, voru árásir Josephs hnitmiðaðar og hann „stingur [fórnarlömb sín] af svo miklu afli að þau látast nánast samstundis. Hann er hrottaleg- ur og snöggur.“ MYRTUR Í LATEXKLÆÐUM Í MIÐJUM KLÍÐUM n Edouard Stern var vellauðugur bankamaður n Cecile Brossard afgreiddi í verslun n Tóku upp samband eftir að þau kynntust n Edouard særði Cecile „Ég beindi byssunni að höfðinu á honum og skaut fyrsta skotinu. Byssan var sennilega fimmtán senti- metra frá andliti hans. „Ein millj- ón dala er há upphæð til að greiða hóru. Edouard Stern Var af auðugri banka- mannaætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.