Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 14
14 12. apríl 2019FRÉTTIR dögunum og tók þar myndir sem fylgja fréttinni. Segir Baldur að sér hafi verið mjög brugðið og segist hann þó ýmsu vanur í þessum efn- um, en hann var lengi gæslumað- ur á Kleppi í gamla daga og sinnti erfiðustu sjúklingum auk þess að hafa starfað í öryggisgæslu. „Þarna eru aðeins tveir að störf- um hverju sinni og ekki raunhæf- ur möguleiki að kalla út bakvakt ef eitthvað kemur upp á. Þetta er stórhættulegt og ég mun leggja til í borgarstjórn að gistiskýlinu verði lokað,“ segir Baldur enn fremur. Vilja sprautufíklana og neyslurýmin út Tómas bendir á að starfsmenn hafi enga þjálfun eða menntun til að takast á við sprautufíkla. „Við erum ekki þjálfuð til að tak- ast á við þetta skaðaminnkandi hlutverk,“ segir hann. Stórhættu- legt ástand skapist og starfsmenn þurfi að standa í handalögmál- um við yfirgangssama aðila úr hópi sprautufíklanna. Venjulegir menn, ekki í neyslu, sem þarna gista komist ekki á klósettið fyrir fíklunum, nema starfsmenn hafi áður barið á dyr og komið þeim út. Þetta valdi miklu álagi. Á meðan sprautufíklar fá þarna aðstöðu til neyslu er áfengi tekið af alkóhólistum sem nýta sér gisti- skýlið. Starfsmenn vilja hins vegar sjá hvorugt á staðnum. „Okkar krafa er að farið sér eftir því sem stendur á skilti inni í hús- inu, að neysla vímuefna og áfeng- is sé ekki leyfð í húsinu,“ segir Tómas. Hann setur sig ekki á móti skaðaminnkunarstefnunni en vill að neyslurými séu einfaldlega annars staðar – tilvist þeirra í gisti- skýlinu sé fráleit. „Ég hef ekkert á móti skaða- minnkandi aðferðum, en neyslu- rými er einn hlutur og gistiskýli annar.“ Mikið ofbeldi á sér stað innan gistiskýlisins þegar verst lætur og sprautufíklar eru oftast þeir sem vaða yfir aðra íbúa gistiskýlisins. Starfsmenn lenda hvað eftir annað í átökum við þá og eiga mjög erfitt með að halda ró og friði í húsinu þegar verst lætur. „Ég tel þá starfsemi sem þarna fer fram vera kolólöglega og stór- hættulega,“ segir Baldur. „Þetta hús er í raun tifandi tímasprengja og mér finnst bara með ólíkindum hvað viðgengst þarna.“ Ekki náðist í Þór Gíslason, for- stöðumann Gistiskýlisins við Lindargötu, við vinnslu fréttarinn- ar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. n Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu. Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur. Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig. Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570 VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR Óboðlegt ástand Starfsfólk vill neyslurýmin út. Baldur (t.v.) og Tómas MYND: HANNA/DV Brotin rúða Oft kemur til átaka í gistiskýlinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.