Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 26
Páskafjör 12. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Stórskemmtileg og fjölbreytt páskadagskrá í Fjallabyggð F jallabyggð iðar að lífi, fólki, tónlist og menningu alla páskana. Það verður nóg að gera fyrir heimamenn og alla þá sem ætla að skella sér í frí norður. Hér er ævinlega tekið vel á móti öllum enda eru menn hér almennt gestrisnir fram úr hófi,“ segir Linda Lea Bogadóttir, markaðs- og menningarfulltrúi Fjallabyggðar. Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar árið 2006. Fjallabyggð býr að stórbrotinni náttúrufegurð í „faðmi fjalla blárra“, eins og skáldið sagði, þar sem möguleikar á sviði útivistar og tómstunda eru hreint óþrjótandi. Náttúran er ávallt innan seilingar, hvort heldur haldið er í gönguferðir, farið á skíði, veitt í vötnum, ám eða sjó. Einnig er þar fjölbreytt menningarlíf og upplífgandi andrúmsloft og þar búa um 2.100 manns. Páskadagskráin hefst strax föstudaginn 12. apríl með Sigló Freeride-keppninni í Skarðinu á Siglufirði, leiksýningu og tónleikum KK & föruneytis á Kaffi Rauðku. Dagana 12. og 13. apríl verða 100 ár liðin frá mannskæðustu snjóflóðum í Hvanneyrarhreppi og verður atburðanna minnst með göngu á vegum Síldarminjasafnsins að Evanger verksmiðjunni og einnig verður helgistund í Siglufjarðarkirkju og í Héðinsfirði. Veitingastaðir, gallerí og söfn á Siglufirði og Ólafsfirði bjóða líka upp á góða dagskrá alla páskana. Skíðaðu út alla páskana Í Fjallabyggð og nágrenni er nægur snjór í fjöllunum og alls staðar hægt að finna tækifæri og aðstöðu til útiveru. Á veturna er staðurinn skíðaparadís og draumur útivistarmannsins. Fjöllin í kringum Fjallabyggð tilheyra hinum tilkomumikla Tröllaskaga sem er án alls efa besta fjallaskíðasvæði landsins, með sín háu fjöll og mikla snjó. Bæði skíðasvæðin verða opin alla daga með endalaust páskafjör í brekkunum fyrir alla fjölskylduna. Í Skarðinu á Siglufirði verður leikjabraut, ævintýraleið, bobb-braut, hólabrautir, pallar, páskaeggjamót, lifandi tónlist og grill svo eitthvað sé nefnt. Einnig verður lögð þriggja kílómetra göngubraut á Hólssvæði. Það sama má segja um skíðasvæðið Tindaöxl, en þar verður opið alla páskana. Bárubrautin verður troðin og mikil tónlist og stemning verður í fjallinu. Upplýsingar um skíðasvæðin má finna á vefsíðum þeirra, skardsdalur.is og skiol. fjallabyggd.is. Menning og listir Fyrir þá sem fýsir í menningu og listir verður úr nægu að velja, en þar má helst nefna að Alþýðuhúsið á Siglufirði verður með tónleika og listasýningu í Kompunni. Vinnustofa Abbýar verður sömuleiðis opin. Listasýning verður í Listhús Gallerí á Ólafsfirði. Í Ljóðasetrinu á Siglufirði verður ljósmyndasölusýning Ljósmyndaklúbbs Fjallabyggðar, lestur Passíusálma og margt fleira. Leikfélag Fjallabyggðar er þessa dagana að sýna í Tjarnarborg í Ólafsfirði gamanleikritið Bót og betrun og verður m.a. sýning á skírdag. Segull67 Brugghús verður með kynningu og smökkun. Apres Ski verður á Sigló hótel alla dagana og á Kaffi Rauðku verða Stebbi og Eyfi með tónleika á laugardeginum fyrir páska. Nú og svo verður boðið upp á lifandi tónlist á Torginu og að sjálfsögðu allir veitingastaðir opnir. Ekki má svo gleyma helgistundum í kirkjunum, bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði. Það er því af nógu að taka í Fjalllabyggð á páskahelginni og er um að gera að skella sér í heimsókn. Í Ólafsfirði og á Siglufirði er fjöldi góðra gistimöguleika þar sem hægt er að gera vel við sig og eiga saman notalegar stundir í fallegu umhverfi. „Hér eru líka ótal veitingahús þar sem bragða má ljúfmeti af sjó og landi,“ segir Linda. Það er um að gera að skella sér í Páskaferðalag til Fjallabyggðar og upplifa þar afslappað andrúmsloft, ósnortna náttúrufegurð og skapa sér þar saman ógleymanlegar minningar. Öll páskadagskráin sem og nánari upplýsingar um gististaði, útivistarfyrirtæki, söfn og fleira má nálgast á og í gegnum vefsíður Fjallabyggðar; fjallabyggd.is, visittrollaskagi.is og á Facebook: Fjallabyggð. n Mynd: Jón Steinar Ragnarsson. Mynd: Hrólfur. Mynd: Guðný Ágústsdóttir. Síldarminjasafnið á Siglufirði. Mynd: Hrólfur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.