Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 16
16 FÓKUS 12. apríl 2019 Á mánudaginn síðastliðinn birti áhrifavaldurinn Sól- gún Diego mynd úr barna- herbergi sonar síns þar sem hún ræddi við fylgjendur sína um plaggat sem hún hafði hengt upp á vegg. Umrædd mynd er af þvottabirni. Segir hún frá því hvar hún fékk myndina og bendir á netverslunina www.akart.is. Við nánari athugun kemur í ljós að sú netverslun er í eigu unnusta Sól- rúnar. Einnig er ágreiningur uppi um hvort leyfi sé fyrir myndunum sem þar eru seldar. Inni á þekktri netverslun, Etsy. com, þar sem hönnuðir geta selt hönnun sína er hægt að kaupa nákvæmlega sömu myndirnar. Myndirnar eru þar seldar á veg- um fyrirtækis sem heitir Synplus. Þar kaupir maður skrá sem hægt er að prenta út sjálfur. Við vöruna stendur að hún sé „for personal use only“ og eru myndirnar varð- ar höfundarrétti. Myndirnar fást á tæpa átta dollara en í íslensku vefversluninni kaupir maður út- prentaða mynd í stærðinni 30×40 sentimetrar á 4.990 krónur. Inni á síðum eins og Aliexpress er hægt að fá sams konar myndir á örfáa dollara, en það fer eftir stærð. Sólrún prókúruhafi og vara- maður í stjórn Þegar DV skoðaði heimasíðuna akart.is voru þar engar upplýsingar um eigendur eða söluaðila. Enga kennitölu eða heimilisfang að sjá, aðeins netfangið akart@akart.is. Í lénaskrá hjá ISNIC er Frans Veigar Garðarsson, unnusti Sólrúnar Diego, skráður fyrir léninu. Akart.is er skráð á félagið MSF ehf. sem er í eigu Frans Veigars Garðarssonar og skráð á heimilis- fang í Mosfellsbæ þar sem Frans og Sólrún búa. Sólrún Diego er þar varamaður í stjórn og prókúru- hafi. MSF ehf. er einnig eigandi í SD Media slf. þar sem Frans og Sólrún eru prókúruhafar. Í samtali við DV segir Frans enga sérstaka ástæðu liggja að baki því að eigendur séu ekki gefnir upp á síðunni. „Ég get alveg breytt því, það er minnsta mál,“ segir hann. Fylgjandi upplifði reiði Í myndbandinu, sem Sólrún birti á Instagram Story, talar hún um myndina líkt og hún þekki ekkert til. Einnig að „gríðarlega margir“ hafi verið að spyrja út í myndina. Hún segir: „Mjög margir spurðu hvaðan hún væri. En þetta er frá netversl- un sem heitir akart.is.“ Og enn fremur: „Ég fékk nokkur svona skilaboð í dag um að einhverjir gátu ekki opnað linkinn sem ég setti með myndinni en ég skal setja hann aftur … og ég sá að þær eru á ein- hverju tilboði þannig að þið getið nýtt ykkur það.“ Myndirnar eru nú auglýstar á útsöluverði, 3.990 krónur. „Ég er 100 prósent eigandi í þessu félagi,“ segir Frans um félag- ið MSF. „Þetta kemur henni ekkert við.“ En hún er prókúruhafi og vara- maður í stjórn? „Það er einungis vegna þess að hennar rekstur fór í gegnum þetta félag áður fyrr. Hann ger- ir það ekki lengur. Það á eftir að gera breytingu hjá Ríkisskattstjóra og hún er komin með annað félag sem heitir SD Media.“ Fylgjandi Sólrúnar sem DV ræddi við upplifði reiði gagnvart því að áhrifavaldur skyldi standa að slíkri uppákomu. „Mér finnst að svona eigi ekki að viðgangast og sérstaklega ekki hjá manneskju sem er áhrifavald- ur,“ segir viðmælandinn. Ágreiningur um leyfi Ágreiningur er uppi um hvort akart.is hafi leyfi fyrir myndunum. Þegar fyrirspurn um málið var send á Synplus fengust þau svör að ekkert leyfi væri til staðar til að selja þessar myndir. Í svarinu segir: „Já, það lítur út fyrir að það sé verið að selja myndirn- ar okkar án leyf- is.“ Frans segist telja sig hafa haft samning við Synplus. Verslunin hafi verið í loft- inu í nokkra mánuði. Við DV segir hann: „Við megum selja þessar vörur ef við kaupum hverja einustu mynd sem fer þar í gegn. Við megum aftur á móti ekki fjölfalda. Við spurðum þá hvort við gætum fengið leyfi og þeir sögðu að við gæt- um keypt stakar myndir.“ n Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Sólrún Diego auglýsti net- síðu í eigu unnusta síns n Rétthafi segist ekki hafa veitt leyfi n Fylgjandi upplifði reiði„Ég er 100 prósent eig- andi í þessu félagi. Þetta kemur henni ekkert við. Þvottabjörn Skjáskot af vef Synplus hjá Etsy.com. Kristinn Haukur Guðnason Aníta Estíva Harðardóttir kristinn@dv.is / anita@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.