Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Síða 16
16 FÓKUS 12. apríl 2019
Á
mánudaginn síðastliðinn
birti áhrifavaldurinn Sól-
gún Diego mynd úr barna-
herbergi sonar síns þar
sem hún ræddi við fylgjendur
sína um plaggat sem hún hafði
hengt upp á vegg. Umrædd mynd
er af þvottabirni. Segir hún frá því
hvar hún fékk myndina og bendir
á netverslunina www.akart.is. Við
nánari athugun kemur í ljós að sú
netverslun er í eigu unnusta Sól-
rúnar. Einnig er ágreiningur uppi
um hvort leyfi sé fyrir myndunum
sem þar eru seldar.
Inni á þekktri netverslun, Etsy.
com, þar sem hönnuðir geta selt
hönnun sína er hægt að kaupa
nákvæmlega sömu myndirnar.
Myndirnar eru þar seldar á veg-
um fyrirtækis sem heitir Synplus.
Þar kaupir maður skrá sem hægt
er að prenta út sjálfur. Við vöruna
stendur að hún sé „for personal
use only“ og eru myndirnar varð-
ar höfundarrétti. Myndirnar fást
á tæpa átta dollara en í íslensku
vefversluninni kaupir maður út-
prentaða mynd í stærðinni 30×40
sentimetrar á 4.990 krónur. Inni á
síðum eins og Aliexpress er hægt
að fá sams konar myndir á örfáa
dollara, en það fer eftir stærð.
Sólrún prókúruhafi og vara-
maður í stjórn
Þegar DV skoðaði heimasíðuna
akart.is voru þar engar upplýsingar
um eigendur eða söluaðila. Enga
kennitölu eða heimilisfang að sjá,
aðeins netfangið akart@akart.is. Í
lénaskrá hjá ISNIC er Frans Veigar
Garðarsson, unnusti Sólrúnar
Diego, skráður fyrir léninu.
Akart.is er skráð á félagið MSF
ehf. sem er í eigu Frans Veigars
Garðarssonar og skráð á heimilis-
fang í Mosfellsbæ þar sem Frans
og Sólrún búa. Sólrún Diego er
þar varamaður í stjórn og prókúru-
hafi. MSF ehf. er einnig eigandi í SD
Media slf. þar sem Frans og Sólrún
eru prókúruhafar.
Í samtali við DV segir Frans enga
sérstaka ástæðu liggja að baki því
að eigendur séu ekki gefnir upp á
síðunni. „Ég get alveg breytt því,
það er minnsta mál,“ segir hann.
Fylgjandi upplifði reiði
Í myndbandinu, sem Sólrún birti
á Instagram Story, talar hún um
myndina líkt og hún þekki ekkert
til. Einnig að „gríðarlega margir“
hafi verið að spyrja út í myndina.
Hún segir:
„Mjög margir spurðu hvaðan
hún væri. En þetta er frá netversl-
un sem heitir akart.is.“
Og enn fremur:
„Ég fékk nokkur svona skilaboð
í dag um að einhverjir gátu ekki
opnað linkinn sem ég setti með
myndinni en ég skal setja hann
aftur … og ég sá að þær eru á ein-
hverju tilboði þannig að þið getið
nýtt ykkur það.“
Myndirnar eru nú auglýstar á
útsöluverði, 3.990 krónur.
„Ég er 100 prósent eigandi í
þessu félagi,“ segir Frans um félag-
ið MSF. „Þetta kemur henni ekkert
við.“
En hún er prókúruhafi og vara-
maður í stjórn?
„Það er einungis vegna þess
að hennar rekstur fór í gegnum
þetta félag áður fyrr. Hann ger-
ir það ekki lengur. Það á eftir að
gera breytingu hjá Ríkisskattstjóra
og hún er komin með annað félag
sem heitir SD Media.“
Fylgjandi Sólrúnar sem DV
ræddi við upplifði reiði gagnvart
því að áhrifavaldur skyldi standa
að slíkri uppákomu.
„Mér finnst að svona eigi ekki
að viðgangast og sérstaklega ekki
hjá manneskju sem er áhrifavald-
ur,“ segir viðmælandinn.
Ágreiningur um leyfi
Ágreiningur er uppi um hvort
akart.is hafi leyfi fyrir myndunum.
Þegar fyrirspurn um málið var
send á Synplus fengust þau svör
að ekkert leyfi væri til staðar til
að selja þessar myndir. Í
svarinu segir:
„Já, það lítur út
fyrir að það sé verið
að selja myndirn-
ar okkar án leyf-
is.“
Frans segist
telja sig hafa
haft samning
við Synplus.
Verslunin hafi
verið í loft-
inu í nokkra
mánuði. Við
DV segir hann:
„Við megum selja þessar vörur
ef við kaupum hverja einustu
mynd sem fer þar í gegn. Við
megum aftur á móti ekki
fjölfalda. Við spurðum
þá hvort við gætum
fengið leyfi og þeir
sögðu að við gæt-
um keypt stakar
myndir.“ n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Sólrún Diego auglýsti net-
síðu í eigu unnusta síns
n Rétthafi segist ekki hafa veitt leyfi n Fylgjandi upplifði reiði„Ég er 100 prósent eig-
andi í þessu félagi.
Þetta kemur henni ekkert við.
Þvottabjörn
Skjáskot af
vef Synplus
hjá Etsy.com.
Kristinn Haukur Guðnason
Aníta Estíva Harðardóttir
kristinn@dv.is / anita@dv.is