Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Side 18
18 PRESSAN 12. apríl 2019
B
iðin eftir niðurstöðun-
um fannst mér mjög erfið-
ur tími. Það var svo mikil
óvissa og mér fannst tíminn
endalaust lengi að líða. Ég vildi
bara fá að vita hvort þetta væri
krabbamein eða ekki,“ segir Ólöf
Gunnlaugsdóttir 42 ára, einstæð
móðir þriggja barna sem greindist
með illkynja æxli í brjósti og hol-
hönd fyrr á þessu ári. Ólöf sem er
búsett í Reykjavík með börnunum
sínum, Eydísi Örnu, 13 ára, Arnari
Mána, 11, og Nökkva Degi, 10,
fann fyrir hnút í hægra brjósti á
mánudagskvöldi þann 21. janúar.
Ólöf hafði ekki miklar áhyggjur
til þess að byrja með en ákvað þó
að fara til heimilislæknis tveimur
dögum seinna.
„Honum fannst ástæða til að
skoða þetta betur og sendi beiðni
á leitarstöðina. Viku seinna fór
ég í röntgen, ómskoðun og tek-
ið var fínnálarsýni. Læknirinn var
ekki alveg viss um hvað þetta var,
þar sem þetta leit ekki út eins og
illkynja æxli en ekki heldur eins
og vökvablaðra. Sunnudaginn 3.
febrúar hringdi læknirinn svo með
niðurstöður úr sýninu og höfðu
fundist slæmar frumur í því sem
skoða þurfti betur. Við tók erfið bið
eftir frekari rannsóknum og niður-
stöðum úr þeim. Á miðvikudegin-
um mætti ég aftur í leitarstöðina
og fór í grófnálarsýnatöku og fínn-
álarsýnatöku úr holhöndinni.“
Biðin eftir niðurstöðunum var
verst
Eftir þessa rannsókn tók enn og
aftur við erfið bið en sex dögum
síðar, þriðjudaginn 12. febrúar,
átti Ólöf tíma hjá skurðlækni á
Landspítalanum. Sá fundur átti
eftir að umturna lífi Ólafar.
„Hann staðfesti að hnúturinn
væri 2,5 sentimetra illkynja æxli og
að einnig væri æxli í holhöndinni.
Þá tóku við alls konar rannsókn-
ir og myndatökur. Lífið varð einn
tilfinningarússíbani, upp og nið-
ur, og fram undan beið mín stórt
verkefni. Í ljós kom að ég þurfti að
fara í sex lyfjameðferðir, skurðað-
gerð og geisla.“
Ólöf segir biðina eftir niður-
stöðunum hafa verið erfiðasta.
Hún upplifði mikla óvissu og vildi
fá staðfestingu á því hvort um
krabbamein væri að ræða eða
ekki.
„Því að ef þetta var krabbamein
þá vildi ég takast á við það sem
fyrst. Þegar ég fékk svo endanlega
niðurstöðu þá var ég sjálf orðin
nokkuð viss um þetta, svo það
kom mér lítið á óvart þegar lækn-
irinn greindi mér frá því að þetta
væri illkynja æxli. Fyrst eftir grein-
ingu kom stundum upp sú hugs-
un hjá mér hvernig í veröldinni
ég ætti að takast á við krabba-
meinsmeðferð. Einstæð með þrjú
börn sem ég er alfarið með ein, en
pabbi þeirra hefur ekkert verið í
þeirra lífi í mjög mörg ár.“
Ræðir um veikindin við börnin
Á sama tíma tekst Ólöf á við það
að yngri sonur hennar er einhverf-
ur og dóttir hennar á að fermast á
þessu ári.
„Ég ákvað samt hins vegar strax
að taka þessu á mjög jákvæðan
hátt og komast í gegnum þessa
baráttu með gleði og jákvæðni. Ég
er líka með svo yndislegt stuðn-
ingsnet í kringum mig sem hjálpar
heilan helling og ég er endalaust
þakklát fyrir það. Ég á frábæra
vini og yndislega fjölskyldu sem
stendur eins og klettur á bak við
mig. Mamma mín og systir hafa
fylgt mér eins og skuggi í gegnum
þetta allt saman sem er algjörlega
ómetanlegt.“
Ólöf tók þá ákvörðun að greina
börnum sínum strax frá því hvað
væri í gangi og vera ekki að bíða
með það og skapa óvissu hjá þeim.
„Ég sagði börnunum mjög
snemma frá þessu eftir að ég fór
í fyrstu sýnatökuna á leitarstöð-
inni. Ég sagði þeim að það væri
verið að athuga hvort þetta væri
krabbamein eða eitthvað annað.
Krakkar eru svo ótrúlega næmir
og þeir finna á sér þegar eitthvað
er í gangi. Mér fannst betra að
leyfa þeim að fylgjast með held-
ur en að þau væru að ímynda sér
hvað væri að gerast. Auðvitað
urðu þau mjög hrædd fyrst, enda
er mjög óhugnanlegt að heyra að
einhver sé mögulega með krabba-
mein. En við ræddum þetta mik-
ið og hvað þetta gæti verið. Þegar
niðurstaðan kom svo, þá voru þau
búin að melta þetta aðeins og það
var þá miklu minna áfall fyrir þau
að heyra niðurstöðuna.“
Ólöf ákvað strax að vera mjög
opin um veikindi sín við börnin
og leyfa þeim að ræða þau við sig
eins og þau vildu.
„Við höfum verið leið og fúl
yfir þessu, enda er þetta hundfúlt
ástand, en við höfum líka hlegið
og fíflast með þetta, sem mér
finnst mjög mikilvægt til þess að
létta andrúmsloftið. Þau eru al-
veg ótrúlega sterk og eru að tak-
ast á við þetta allt saman á frá-
bæran hátt. Ég er mjög stolt af
þeim fyrir hvernig þau takast á
við þetta.“
Fólk tekur greiningu á ólíkan
hátt
Ólöf hefur reynt eftir bestu getu að
halda daglegu lífi þeirra gangandi
og tekur þátt í því sem börnin eru
að gera eins og heilsan leyfir.
„Ég er núna búin með tvær
lyfja meðferðir af sex og er ég í
frekar kröftugri meðferð. Ég fer á
þriggja vikna fresti og fæ fjögur lyf
í hvert skipti. Lyfin fara ágætlega í
mig en ég er svona sjö til tíu daga
að ná mér góðri aftur. Svo ég næ
alveg góðum dögum inni á milli,
sem ég reyni að nýta vel til þess
að gera allt sem þarf að gera. Eftir
lyfja meðferðina er skurðaðgerð
fram undan og svo geislar þar á
eftir. Æxlið er búið að minnka tölu-
vert sem er mjög jákvætt og það
er gott að sjá að lyfin eru að hafa
áhrif.“
Ólöf tók þá ákvörðun að deila
reynslu sinni af veikindunum með
fólki vegna þess að þegar hún var
í greiningarferlinu þá fannst henni
mjög hjálplegt að geta lesið sér til
um aðrar konur sem gengið höfðu
í gegnum það sama.
„Það hjálpar mér líka í því að
takast jákvætt á við þetta að vera
opin með ferlið og það sem ég er
að ganga í gegnum. Ég tók eftir
því að fyrst voru margir sem voru
örlítið hikandi í kringum mig og
vissu ekki hvað þeir ættu að segja
við mig. Hvort það ætti að minnast
á þetta eða láta sem ekkert væri.
Sem er alveg skiljanlegt. Þetta eru
skrítnar aðstæður og fólk tekur
því á ólíkan hátt að greinast með
krabbamein.“ n
Á Instagram má fylgjast
með Ólöfu og baráttu henn-
ar við krabbameinið undir not-
andanafninu: olofgunnlaugs.
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR HANN OG HANA
„Ég vildi bara fá að vita hvort
þetta væri krabbamein eða ekki“
n Ólöf Gunnlaugsdóttir er einstæð þriggja barna móðir n Greindist með
krabbamein í brjósti og holhönd
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
MYND: HANNA/DV Ólöf: „Við höfum verið leið og fúl yfir
þessu, enda er þetta hundfúlt ástand,
en við höfum líka hlegið og fíflast með
þetta.“