Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Side 22
Sumarnámskeið 14. júní 2019KYNNINGARBLAÐ Á nýju ári er alveg tilvalið að skella sér á sundnámskeið og hjá Sundskóla Sóleyjar er af ýmsu að taka. „Við erum með ung- barnasund, barnasund, einkatíma, skriðsundnámskeið og vatnsleikfimi fyrir fullorðna. Börn allt frá tveggja mánaða aldri og upp í tólf ára sækja einnig fjölbreytt námskeið hjá mér allt árið,“ segir Sóley, eigandi sundskólans, ungbarnasundkennari og íþrótta- kennari. Sundskóli Sóleyjar hefur verið starfandi í yfir 20 ár og hefur starf- semin vaxið jafnt og þétt. „Þetta er fullt starf hjá mér í dag sem er ágætt því þetta er það skemmtilegasta sem ég geri,“ segir Sóley. Hjá sundskólan- um starfar einnig Ragnheiður Sæ- mundsdóttir, ungbarnasundkennari og íþróttakennari. Sjálfsörugg í sundi Ungbarnasund kom til sögunnar í kringum árið 1990 og hefur lengi verið vinsælt. Að sögn Sóleyjar hefur hins vegar mesti vöxturinn undanfarin ár verið í barnasundi. Slík tómstunda- iðkun barna hefur margvíslega kosti fyrir utan þá að vera holl hreyfing. Til dæmis er afar gott fyrir börn að stunda sundnámskeið áður en þau fara í skólasund því það gerir þau að sterkari einstaklingum og þau verða miklu sjálfsöruggari í skólasundinu. Enn fremur eru barnanámskeiðin, sem og ungbarnasundið, sannköll- uð gæðastund fyrir fjölskylduna því foreldrar eru alltaf með barninu í lauginni, nema þegar um einkakennslu er að ræða. Mikilvægt að halda sundinu við „Það er líka mjög mikilvægt að viðhalda kunnáttunni. Það hefur komið fyrir að ég fái til mín fólk á ungbarna- námskeið og svo kemur það aftur með barnið á barnanámskeið fjórum árum síðar. En í millitíðinni er barnið orðið vatnshrætt. Það er því mikilvægt að fjölskyldan fari reglulega í sund eða barnið haldi áfram á námskeiðum eftir ungbarnasundið,“ segir Sóley. Meiri árangur ofan í lauginni Námskeiðin fara fram í tveimur sund- laugum, önnur er á Hrafnistu í Hafnar- firði en hin á Hrafnistu í Kópavogi. „Okkar markmið er að kenna börnum að synda í gegnum leik, þannig að þau upplifi ekki þessa hefðbundnu sundkennslu með kennarann uppi á bakkanum. Í sundkennslunni förum við Ragnheiður báðar ofan í laugina með öllum. Það á einnig við um fullorðna fólkið í skriðsundinu og vatnsleikfiminni að þar er ég líka ofan í lauginni. Ég tel mig ná betri árangi með því að vera í augnhæð við nemendurna, sama á hvaða aldri þeir eru, hvort sem þeir eru tveggja mánaða eða sjötíu ára,“ segir Sóley. Sundkennsla á landsbyggðinni „Við förum einnig út á land með kennsluna okkar og bjóðum lands- byggðarbörnunum sömu þjónustu og börnunum hér í bænum. Það er svo gaman að leyfa börnunum á lands- byggðinni að upplifa ævintýrið sem ég er með í gangi í sundlauginni. Þá kennum við tvær helgar á hverjum stað og börnin mæta tvisvar á dag í sund. Síðast í nóvember fórum við til dæmis í Búðardal,“ segir Sóley. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni sundskoli.is og ástæða til að hvetja foreldra til að skoða hana vel. Þar eru mjög fróðlegar upplýsingar um námskeiðin auk þess sem hægt er að skrá sig á námskeið á vefnum. Skráning og kennsla er nú þegar hafin og ekki ekki seinna vænna að skrá sig fyrir nýja árið. Sjá einnig Facebook-síðuna Sund- skóli Sóleyjar. n Það sem þjálfunin færir þér: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Þú kemur hugmyndum þínum betur á framfæri og eykur áhrif þín • Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og styrkir sambönd • Jákvæðara viðhorf og minni kvíði Námskeið hefjast/; 10 til 12 ára 11. júní 9.00 til 12.30 8 virka daga í röð 10 til 12 ára 7. ágúst 9.00 til 12.30 8 virka daga í röð 13 til 15 ára 18. júní 10.00 til 13.30 8 virka daga í röð 13 til 15 ára 7. ágúst 14.00 til 17.30 8 virka daga í röð 16 til 19 ára 4. júní 18.00 til 22.00 tvisvar í viku 16 til 19 ára 7. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku 20 til 25 ára 27. maí 18.00 til 22.00 tvisvar í viku 20 til 25 ára 6. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku Skráðu þig í ókeypis kynningartíma á dale.is eða í síma 555 7080 Upplifðu, njóttu og skapaðu tækifæri Copyright © 2019 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Gen next_050819_iceland 5x10 10 til 12 ára 10 til 12 ára 13 til 15 ára 13 til 15 ára 16 til 19 ára til 19 ára 20 il 25 r 20 til 25 ára 7. ágúst 23. sept. 7. ágúst 19. sept. 7. ágúst 18. sept. 6. ágúst 17. sept. 9.00 til 12.30 17.00 til 20.00 14.00 til 17.30 17.00 til 20.30 18.00 til 22.00 18.00 til 22.00 18.00 til 22.00 18.00 til 22.00 8 virka daga í röð 8 skipti með viku millibili 8 virka daga í röð 8 skipti með viku millibili tvisvar í viku 8 skipti með viku millibili tvisvar í viku 8 skipti með viku millibili Gæðastund fyrir fjölskylduna SUNDSKÓLI SÓLEYJAR: :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.