Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Qupperneq 22
Sumarnámskeið 14. júní 2019KYNNINGARBLAÐ
Á nýju ári er alveg tilvalið að skella sér á sundnámskeið og hjá Sundskóla Sóleyjar er af
ýmsu að taka. „Við erum með ung-
barnasund, barnasund, einkatíma,
skriðsundnámskeið og vatnsleikfimi
fyrir fullorðna. Börn allt frá tveggja
mánaða aldri og upp í tólf ára sækja
einnig fjölbreytt námskeið hjá mér allt
árið,“ segir Sóley, eigandi sundskólans,
ungbarnasundkennari og íþrótta-
kennari. Sundskóli Sóleyjar hefur verið
starfandi í yfir 20 ár og hefur starf-
semin vaxið jafnt og þétt. „Þetta er
fullt starf hjá mér í dag sem er ágætt
því þetta er það skemmtilegasta sem
ég geri,“ segir Sóley. Hjá sundskólan-
um starfar einnig Ragnheiður Sæ-
mundsdóttir, ungbarnasundkennari
og íþróttakennari.
Sjálfsörugg í sundi
Ungbarnasund kom til sögunnar í
kringum árið 1990 og hefur lengi verið
vinsælt. Að sögn Sóleyjar hefur hins
vegar mesti vöxturinn undanfarin ár
verið í barnasundi. Slík tómstunda-
iðkun barna hefur margvíslega kosti
fyrir utan þá að vera holl hreyfing.
Til dæmis er afar gott fyrir börn að
stunda sundnámskeið áður en þau
fara í skólasund því það gerir þau að
sterkari einstaklingum og þau verða
miklu sjálfsöruggari í skólasundinu.
Enn fremur eru barnanámskeiðin,
sem og ungbarnasundið, sannköll-
uð gæðastund fyrir fjölskylduna því
foreldrar eru alltaf með barninu í
lauginni, nema þegar um einkakennslu
er að ræða.
Mikilvægt að halda sundinu við
„Það er líka mjög mikilvægt að
viðhalda kunnáttunni. Það hefur komið
fyrir að ég fái til mín fólk á ungbarna-
námskeið og svo kemur það aftur með
barnið á barnanámskeið fjórum árum
síðar. En í millitíðinni er barnið orðið
vatnshrætt. Það er því mikilvægt að
fjölskyldan fari reglulega í sund eða
barnið haldi áfram á námskeiðum eftir
ungbarnasundið,“ segir Sóley.
Meiri árangur ofan í lauginni
Námskeiðin fara fram í tveimur sund-
laugum, önnur er á Hrafnistu í Hafnar-
firði en hin á Hrafnistu í Kópavogi.
„Okkar markmið er að kenna börnum
að synda í gegnum leik, þannig að
þau upplifi ekki þessa hefðbundnu
sundkennslu með kennarann uppi á
bakkanum. Í sundkennslunni förum við
Ragnheiður báðar ofan í laugina með
öllum. Það á einnig við um fullorðna
fólkið í skriðsundinu og vatnsleikfiminni
að þar er ég líka ofan í lauginni. Ég tel
mig ná betri árangi með því að vera
í augnhæð við nemendurna, sama á
hvaða aldri þeir eru, hvort sem þeir
eru tveggja mánaða eða sjötíu ára,“
segir Sóley.
Sundkennsla á landsbyggðinni
„Við förum einnig út á land með
kennsluna okkar og bjóðum lands-
byggðarbörnunum sömu þjónustu og
börnunum hér í bænum. Það er svo
gaman að leyfa börnunum á lands-
byggðinni að upplifa ævintýrið sem
ég er með í gangi í sundlauginni. Þá
kennum við tvær helgar á hverjum
stað og börnin mæta tvisvar á dag í
sund. Síðast í nóvember fórum við til
dæmis í Búðardal,“ segir Sóley.
Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni sundskoli.is og ástæða til að
hvetja foreldra til að skoða hana vel.
Þar eru mjög fróðlegar upplýsingar
um námskeiðin auk þess sem hægt
er að skrá sig á námskeið á vefnum.
Skráning og kennsla er nú þegar hafin
og ekki ekki seinna vænna að skrá sig
fyrir nýja árið.
Sjá einnig Facebook-síðuna Sund-
skóli Sóleyjar. n
Það sem þjálfunin færir þér:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu
• Þú kemur hugmyndum þínum betur á framfæri og eykur
áhrif þín
• Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og styrkir sambönd
• Jákvæðara viðhorf og minni kvíði
Námskeið hefjast/;
10 til 12 ára 11. júní 9.00 til 12.30 8 virka daga í röð
10 til 12 ára 7. ágúst 9.00 til 12.30 8 virka daga í röð
13 til 15 ára 18. júní 10.00 til 13.30 8 virka daga í röð
13 til 15 ára 7. ágúst 14.00 til 17.30 8 virka daga í röð
16 til 19 ára 4. júní 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
16 til 19 ára 7. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
20 til 25 ára 27. maí 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
20 til 25 ára 6. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
Skráðu þig í ókeypis
kynningartíma á dale.is
eða í síma 555 7080
Upplifðu, njóttu
og skapaðu
tækifæri
Copyright © 2019 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Gen next_050819_iceland 5x10
10 til 12 ára
10 til 12 ára
13 til 15 ára
13 til 15 ára
16 til 19 ára
til 19 ára
20 il 25 r
20 til 25 ára
7. ágúst
23. sept.
7. ágúst
19. sept.
7. ágúst
18. sept.
6. ágúst
17. sept.
9.00 til 12.30
17.00 til 20.00
14.00 til 17.30
17.00 til 20.30
18.00 til 22.00
18.00 til 22.00
18.00 til 22.00
18.00 til 22.00
8 virka daga í röð
8 skipti með viku millibili
8 virka daga í röð
8 skipti með viku millibili
tvisvar í viku
8 skipti með viku millibili
tvisvar í viku
8 skipti með viku millibili
Gæðastund fyrir fjölskylduna
SUNDSKÓLI SÓLEYJAR:
: