Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Síða 14
14 21. júní 2019FRÉTTIR
fyrir því heilagasta? Þú átt að geta
hringt eða fengið fund með ein-
hverjum sem getur útskýrt málið
fyrir þér. Það er ein af ástæðunum
fyrir því að bókin er til því það er
svo hræðilegt að þurfa að læra á
lagaramma, læra á kerfið og læra á
ráðuneyti. Þetta er bara hafsjór af
hlutum sem enginn kynnir sér fyrr
en hann þarf þess.“
Ágætt samband við barnsföð-
urinn
Bogga segir að samband þeirra
Colby sé ágætt í dag. Þegar Boggu
var dæmt forræði yfir sonum
þeirra tveimur fékk Colby rétt-
inn til að heimsækja þá og fá þá
til Bandaríkjanna í heimsóknir.
Það nýtti hann sér ekki í mörg ár
og Bogga segir það hafa tekið á
drengina. Hann hefur hins vegar
snúið við blaðinu og auk þess að fá
synina nokkrum sinnum í heim-
sókn til sín vestur um haf heim-
sótti Colby Ísland til að verja tíma
með þeim Brian og Andy.
„Mér þykir vænt um að hann
hafi komið hingað og það var í
fyrsta sinn sem við ræddum saman
að ráði. Hann var þakklátur fyrir
að ég hafi farið í málaferli. Hann
er þakklátur fyrir það að ég barð-
ist fyrir strákunum. Hann er feginn
að ég var ekki að gera þetta á ein-
hverjum frekjuforsendum. Hann
er feginn að börnin hans fengu
að alast upp hér og hann treyst-
ir mér þúsund prósent fyrir börn-
unum. Stundum lendir maður í
aðstæðum þar sem maður verður
að berjast með kjafti og klóm fyrir
velferð barnanna sinna og kannski
fyrrverandi maka líka. Hann var
ekki á góðum stað. Ég hugsa að
hann verði aldrei hundrað pró-
sent heilbrigður, ekki frekar en ég.
En mér þykir vænt um að hann
skildi koma og vildi sjá um hvað
þeirra líf snýst – sjá hvar þeir eru í
skóla, hvar þeir búa, sjá herbergin
þeirra, fara á rúntinn, kynnast vin-
um þeirra, spila tölvuleiki. Það
hlýtur að hafa tekið á fyrir hann að
koma hingað. Hann veit að Ísland
er samheldið samfélag og þjóðfé-
lag. Hann var tilbúinn að horfast í
augu við hlutina og það sagði mér
helling.“
„Ekki missa af góðu mínútunum“
Þegar Bogga flutti loksins heim með
drengina eftir tæplega þriggja ára
forræðisdeilu átti hún ekkert. Eft-
ir flutninginn heim tók við eitt ár af
málaferlum í viðbót þar sem Colby
áfrýjaði úrskurði bandarískra dóm-
stóla en hafði ekki erindi sem erfiði.
Hún var fljót að byggja sig upp með
aðstoð góðra vina og ættingja, en
þurfti í raun að byrja að plana lífið
upp á nýtt. Þessi breyting var auð-
vitað líka erfið fyrir syni hennar og
tóku við mörg ár þar sem mæðgin-
in þurftu að vinna vel og vand-
lega í sinni andlegu heilsu til að
geta virkað aftur í íslensku samfé-
lagi. Þó þau séu á góðum stað í dag
bera þau merki þessa tíma að eilífu.
Bogga segist oft hugsa um þennan
tíma en sjaldan tala um hann. Þá
liggur beinast við að spyrja Boggu:
Hvernig fór hún að þessu?
„Ég gat þetta ekki af því að ég
var svo sterk. Ég gerði þetta því ég
hafði ekki um annað að velja. Í kjöl-
farið varð ég sterk. Ég sótt einnig
styrk í þá sem stóðu með mér eins
og klettar – eitthvað sem gleym-
ist aldrei. Svo var það þessi gullna
setning sem fleytti mér áfram: Ég er
alltaf degi nær því að komast heim.
Hvað ef þetta eru bara hundrað
dagar og ég er búin með áttatíu?
Hefði ég byrjaði þetta ferli og hugs-
að: Þetta eru þrjú ár og svona margir
mánuðir, hefði ég getað þetta? Nei,
ég hefði ekki farið út í þetta. Ég er
ekkert öðruvísi en nokkur annar
með það. En það er eitt sem ég hef
haldið í síðan ég var unglingur: Fyr-
ir hverja leiðinlega mínútu í lífinu
áttu tvær góðar. Á erfiðustu tímun-
um er þetta rosalega gott hálmstrá.
Í dag líður mér eins og ég sé að fá
svo mikið til baka. Lífið getur verið
ótrúlega erfitt en ekki missa af góðu
mínútunum.“ n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
B
ogga segir að reglulega leiti til sín fólk, nánast eingöngu konur,
sem stendur í forræðisdeilu á milli landa.
„Undantekningarlaust svara ég og reyni að hjálpa. Gef
þessu fólki bókina mína og reyni eftir bestu getu að svara öll-
um þeirra spurningum,“ segir hún og bætir við að þessi mál komi
miklu oftar upp en fólk gerir sér grein fyrir. „Það eru ekki öll mál sem
lenda í fjölmiðlum. Langt því frá.“
Börnin heim
Þó hafa nokkrar forræðisdeil-
ur íslenskra kvenna og erlendra
barnsfeðra leitað í fjölmiðla, en
það þekktasta er án efa mál Halim
Al og Sophiu Hansen. Halim
Al og Sophia giftu sig árið 1984
en áður höfðu þeim fæðst tvær
dætur, þær Dagbjört og Rúna.
Árið 1990 fór Halim Al með dæt-
urnar í frí til heimalands síns,
Tyrklands, og sneri ekki aftur
með dæturnar. Þjóðin fylgdist
vel með forræðisdeilunni sem
fylgdi í kjölfarið þar sem fyrr-
verandi hjónin létu margt mið-
ur fallegt um hvort annað falla.
Halim Al sagði Sophiu drekka of
mikið og sakaði hana um fram-
hjáhald á meðan staðhæft var að Halim Al beitti dætur sína ofbeldi.
Svo fór að Halim Al fékk forræði yfir dætrunum sem hafa örsjaldan
síðan hitt móður sína.
Líflátshótanir og klækjabrögð
Mál Snæfríðar Baldvinsdóttur
var einnig mjög áberandi fyr-
ir rúmum áratug, en hún og
ítalski fréttamaðurinn Marco
Brancaccia, deildu hatrammlega
um forræðið yfir dóttur þeirra.
Svo hart var deilt að Jón Baldvin
Hannibalsson, faðir Snæfríð-
ar, fullyrti að Marco hefði hót-
að að drepa hann og eiginkonu
hans, Bryndísi Schram, á ein-
um tímapunkti. Þá sagði Marco
að Jón Baldvin hefði nýtt völd
sín innan íslensks stjórnkerfis
til að auðvelda Snæfríði að nema dóttur þeirra á brott
á heimili þeirra í Mexíkó. Þá sagðist Marco vita mörg leyndarmál Jóns
Baldvins og Bryndísar en fékk ekki tækifæri til að ljóstra þeim upp í
réttarsal.
Flóttinn frægi
Annað mál sem vakti gríðarmikla athygli var deila Hjördísar Svan Að-
alheiðardóttur við dansk-
an barnföður sinn. Hjördís
flúði með dætur sínar tvær
frá ofbeldisfullum barns-
föður haustið 2013. Flótt-
anum voru gerð góð skil í
íslenskum fjölmiðlum en
Hjördís keyrði í liðlega sól-
arhring þar til hún komst
á stað í Skandinavíu þar
sem hún fór huldu höfði í
fimm vikur. Með hjálp föð-
ur síns og fleiri nástaddra
náðist að láta sækja Hjör-
dís á einkaflugvél og flytja
hana til Íslands með dæt-
urnar. Flóttinn með stúlk-
urnar var dæmdur ólög-
legur og í kjölfarið var
Hjördís dæmd í átján
mánaða fangelsi. Barns-
faðirinn kærði brottnámið og krafðist þess
að dæturnar yrðu fluttar til Danmerkur. Hjördís sat í fangelsi en kæru
barnsföður hennar var vísað frá vegna formgalla. Því fengu stúlkurnar
að búa á Íslandi en það var ekki fyrr en á síðasta ári sem Hjördís fékk
forræði yfir dætrum sínum eftir sáttameðferð hjá sýslumanni. Eina
skilyrði barnsföður hennar fyrir því að veita henni forræði yfir stúlk-
unum var að hún myndi aldrei biðja um fjárhagsaðstoð vegna þeirra.
Harkaleg aðgerð
Forræðisdeila finnska rithöfundarins Maariu Päivinen og íslensk
barnsföður hennar er nýjasta málið af þessu tagi sem hefur fangað
athygli landsmanna. Árið 2017 mættu lögreglumenn heim til Maariu
í Finnlandi og ætluðu að taka eins og hálfs árs gamlan son hennar af
henni sökum þess að senda átti soninn til Íslands á grundvelli Haag-
-samkomulagsins um brottnám barna. Þótti aðgerðin harkaleg og
var því einnig fjallað um málið í finnskum fjölmiðlum. Átti að senda
snáðann í athvarf en að endingu fékk Maaria að fylgja honum þangað
og því næst fóru mæðginin saman til Íslands. Maaria dvaldi í Kvenna-
athvarfinu í marga mánuði á meðan á forræðisdeilunni stóð og kærði
barnsföður sinn fyrir að brjóta á henni. Loks var henni dæmd óskipt
forsjá yfir syninum og áfrýjunarbeiðni barnsföðursins hafnað. n
Algengara en fólk heldur
Ein af umfjöll-
ununum um
mál Boggu í DV
á sínum tíma.
Forræðisdeila Marco og S
næ-
fríðar á forsíðu DV árið 20
05.
Hjördís prýddi forsíðu Mannlífs í
fyrra þar sem hún sagði sína sögu.
Halim Al á forsíðu DV árið 1996 ásamt
dætrunum Dagbjörtu og Rúnu.