Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 36
36 PRESSAN 21. júní 2019 Þ ú ert versta martröð sér- hvers barns. Þú ert það sem allir foreldrar hræð- ast. Þú ert ógn við samfé- lagið.“ Þetta sagði Liesl Chapman, dómari í Adelaide í Ástralíu ný- lega, þegar hún dæmdi hinn 31 árs Ruecha Tokputza í 40 ára fangelsi fyrir gróft kynferðisofbeldi gegn 11 ungum drengjum. Þetta er þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp í barnaníðsmáli í Ástralíu til þessa. Tokputz var handtekinn í um- fangsmikilli alþjóðlegri lögreglu- aðgerð á vegum alþjóðalög- reglunnar Interpol en aðgerðin gekk undir heitinu Operation Blackwrist. Tokputz er aðeins toppurinn á ísjakanum í þessu umfangsmikla máli sem er stærsta barnaníðsmál sem komið hefur upp í heiminum. Aðeins nokkr- ir leiðtogar alþjóðlegs barnaníðs- hrings hafa verið handteknir og dæmdir í því en þeir notuðu hið svokallaða „djúpnet“ til að stunda iðju sína. Aðalmaðurinn og stjórnandi heimasíðunnar, sem níðingarn- ir notuðu, var Montri Salangam. Hann var á síðasta ári dæmdur í 146 ára fangelsi í Taílandi fyrir að hafa nauðgað börnum, smygl á fólki og vörslu og dreifingu barn- aníðsefnis. Ónafngreindur sam- verkamaður hans og vinur Tok- putza var dæmdur í 36 ára fangelsi. Interpol skýrði nýlega frá að- gerðinni á heimasíðu sinni en hún hófst í september 2017 þegar Inter- pol fann heimasíðu á „djúpnetinu“ en það er sá hluti netsins sem er ekki aðgengilegur almennum not- endum. Á heimasíðunni sást þegar ungir drengir voru beittir kynferð- islegu ofbeldi. Til að öðlast aðgang að heimasíðunni þurftu notend- ur að hafa sérstakan hugbúnað svo ekki væri hægt að rekja slóð þeirra. Interpol komst að því að 63.000 notendur voru skráðir á heimasíð- unni og slóð þeirra var ekki hægt að rekja. Þá höfðu stjórnendur síð- unnar hulið andlit drengjanna sem voru misnotaðir og því var ekki hægt að bera kennsl á þá. Á heima- síðunni sást maður með svart arm- band en þaðan kemur nafngift lög- regluaðgerðarinnar, Blackwrist (svart armband), en hún beindist að því að finna stjórnendur síð- unnar. Það var síðan á síðasta ári sem vinna lögreglunnar bar loks árangur en þá tókst tölvu- sérfræðingum hjá bandarísku leyniþjónustustofnuninni U.S. Department of Homeland Security að brjóta dulkóðun vef- síðunnar og finna IP-tölu henn- ar og skráningu en hún reyndist skráð í Adelaide. Þá fór málið að rúlla af krafti. Snemma árs voru Montri Salangam og Ruecha Tokputza handteknir. Aðeins hefur verið skýrt frá nöfnum þeirra en Interpol segir að fjöldi manna hafi verið handtekinn í níu ríkjum vegna málsins og að fleiri handtökur verði gerðar. Á sjöunda tug ríkja koma að rann- sókn málsins. Misnotaði frænda sinn Salangam beitti 11 drengi kyn- ferðislegu ofbeldi, þar á meðal frænda sinn. Það voru myndir af ofbeldinu gegn frændanum sem lögreglumenn Interpol sáu fyrst og ýttu málinu af stað. Salangam lokkaði drengi heim til sín með því að bjóða þeim sælgæti, mat, fótbolta og aðgang að tölvuleikj- um á netinu. Tokputza játaði 50 brot gegn 11 börnum á árunum 2011 til 2018. Yngsta fórnarlambið var aðeins 15 mánaða. Hann var með mörg þúsund barnaklám- sljósmyndir og myndbands- upptökur í tölvunni sinni. Þegar Chapman kvað upp dóm yfir Tokputza sagði hún að hann væri haldinn ranghugmyndum og afbrigðilegri trú á að hann hjálpaði börnunum, að þau væru ánægð með að hann beitti þau kynferðislegu ofbeldi og að þau elskuðu hann. „Þær mörg hundruð upptök- ur, sem hann gerði, þegar hann misnotaði börnin sýna aðeins sársauka, enga ást,“ sagði hún og að hann væri versta martröð sérhvers barns og að samfé- laginu stafaði hætta af honum. „Því miður eru margir eins og þú þarna úti en sem betur fer komst upp um þig.“ Tugum drengja bjargað Interpol segir að nú þegar hafi 50 drengjum verið bjargað úr viðjum kynferðisofbeldis með aðgerðinni. Enn er verið að reyna að hafa upp á 100 drengj- um til viðbótar sem Interpol tel- ur að sæti enn ofbeldi og er ver- ið að reyna að bera kennsl á þá. Málið er gott dæmi um al- þjóðlega samvinnu sem ber ár- angur. Ólík ríki hafa starfað saman og náð góðum árangri. Til dæmis var það bandarísk leyniþjónustustofnun sem náði að brjótast í gegnum varnar- veggi heimasíðunnar eins og fyrr greinir. Það var tölvudeild búlgörsku lögreglunnar sem lokaði netþjónum síðunnar og tölvusérfræðingar lögreglunnar á Nýja-Sjálandi fóru handvirkt í gegnum lista yfir þá tugi þús- unda notenda sem voru skráðir á síðunni. Interpol hefur gefið sterklega til kynna að margir eigi enn von á óþægilegri upplifun þegar lög- reglan sækir þá og færir til yfir- heyrslu vegna málsins. Það væri fólk sem hafði talið sig öruggt vegna dulkóðunar á vefsíðunni en hún veitir ekki neina vernd nú. Talsmenn bandarískra yfir- valda hafa sagt að hópur Banda- ríkjamanna, úr efri lögum sam- félagsins, verði væntanlega færður fyrir dóm á næstunni. Þar í landi hafa margir verið handteknir vegna málsins, þar á meðal fólk sem gegnir opinber- um embættum. n EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is STÆRSTA BARNA- NÍÐSMÁL ÁSTRALÍU Ruecha Tokputza Martröð sérhvers barns. Tugum drengja bjargað í lögregluaðgerð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.