Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Qupperneq 36
36 PRESSAN 21. júní 2019
Þ
ú ert versta martröð sér-
hvers barns. Þú ert það
sem allir foreldrar hræð-
ast. Þú ert ógn við samfé-
lagið.“ Þetta sagði Liesl Chapman,
dómari í Adelaide í Ástralíu ný-
lega, þegar hún dæmdi hinn 31 árs
Ruecha Tokputza í 40 ára fangelsi
fyrir gróft kynferðisofbeldi gegn 11
ungum drengjum. Þetta er þyngsti
dómur sem kveðinn hefur verið
upp í barnaníðsmáli í Ástralíu til
þessa.
Tokputz var handtekinn í um-
fangsmikilli alþjóðlegri lögreglu-
aðgerð á vegum alþjóðalög-
reglunnar Interpol en aðgerðin
gekk undir heitinu Operation
Blackwrist. Tokputz er aðeins
toppurinn á ísjakanum í þessu
umfangsmikla máli sem er stærsta
barnaníðsmál sem komið hefur
upp í heiminum. Aðeins nokkr-
ir leiðtogar alþjóðlegs barnaníðs-
hrings hafa verið handteknir og
dæmdir í því en þeir notuðu hið
svokallaða „djúpnet“ til að stunda
iðju sína.
Aðalmaðurinn og stjórnandi
heimasíðunnar, sem níðingarn-
ir notuðu, var Montri Salangam.
Hann var á síðasta ári dæmdur í
146 ára fangelsi í Taílandi fyrir að
hafa nauðgað börnum, smygl á
fólki og vörslu og dreifingu barn-
aníðsefnis. Ónafngreindur sam-
verkamaður hans og vinur Tok-
putza var dæmdur í 36 ára fangelsi.
Interpol skýrði nýlega frá að-
gerðinni á heimasíðu sinni en hún
hófst í september 2017 þegar Inter-
pol fann heimasíðu á „djúpnetinu“
en það er sá hluti netsins sem er
ekki aðgengilegur almennum not-
endum. Á heimasíðunni sást þegar
ungir drengir voru beittir kynferð-
islegu ofbeldi. Til að öðlast aðgang
að heimasíðunni þurftu notend-
ur að hafa sérstakan hugbúnað svo
ekki væri hægt að rekja slóð þeirra.
Interpol komst að því að 63.000
notendur voru skráðir á heimasíð-
unni og slóð þeirra var ekki hægt
að rekja. Þá höfðu stjórnendur síð-
unnar hulið andlit drengjanna sem
voru misnotaðir og því var ekki
hægt að bera kennsl á þá. Á heima-
síðunni sást maður með svart arm-
band en þaðan kemur nafngift lög-
regluaðgerðarinnar, Blackwrist
(svart armband), en hún beindist
að því að finna stjórnendur síð-
unnar.
Það var síðan á síðasta ári
sem vinna lögreglunnar bar
loks árangur en þá tókst tölvu-
sérfræðingum hjá bandarísku
leyniþjónustustofnuninni U.S.
Department of Homeland
Security að brjóta dulkóðun vef-
síðunnar og finna IP-tölu henn-
ar og skráningu en hún reyndist
skráð í Adelaide. Þá fór málið að
rúlla af krafti. Snemma árs voru
Montri Salangam og Ruecha
Tokputza handteknir. Aðeins
hefur verið skýrt frá nöfnum
þeirra en Interpol segir að fjöldi
manna hafi verið handtekinn í
níu ríkjum vegna málsins og að
fleiri handtökur verði gerðar. Á
sjöunda tug ríkja koma að rann-
sókn málsins.
Misnotaði frænda sinn
Salangam beitti 11 drengi kyn-
ferðislegu ofbeldi, þar á meðal
frænda sinn. Það voru myndir af
ofbeldinu gegn frændanum sem
lögreglumenn Interpol sáu fyrst
og ýttu málinu af stað. Salangam
lokkaði drengi heim til sín með
því að bjóða þeim sælgæti, mat,
fótbolta og aðgang að tölvuleikj-
um á netinu.
Tokputza játaði 50 brot gegn
11 börnum á árunum 2011 til
2018. Yngsta fórnarlambið var
aðeins 15 mánaða. Hann var
með mörg þúsund barnaklám-
sljósmyndir og myndbands-
upptökur í tölvunni sinni. Þegar
Chapman kvað upp dóm yfir
Tokputza sagði hún að hann
væri haldinn ranghugmyndum
og afbrigðilegri trú á að hann
hjálpaði börnunum, að þau
væru ánægð með að hann beitti
þau kynferðislegu ofbeldi og að
þau elskuðu hann.
„Þær mörg hundruð upptök-
ur, sem hann gerði, þegar hann
misnotaði börnin sýna aðeins
sársauka, enga ást,“ sagði hún
og að hann væri versta martröð
sérhvers barns og að samfé-
laginu stafaði hætta af honum.
„Því miður eru margir eins
og þú þarna úti en sem betur fer
komst upp um þig.“
Tugum drengja bjargað
Interpol segir að nú þegar hafi
50 drengjum verið bjargað úr
viðjum kynferðisofbeldis með
aðgerðinni. Enn er verið að
reyna að hafa upp á 100 drengj-
um til viðbótar sem Interpol tel-
ur að sæti enn ofbeldi og er ver-
ið að reyna að bera kennsl á þá.
Málið er gott dæmi um al-
þjóðlega samvinnu sem ber ár-
angur. Ólík ríki hafa starfað
saman og náð góðum árangri.
Til dæmis var það bandarísk
leyniþjónustustofnun sem náði
að brjótast í gegnum varnar-
veggi heimasíðunnar eins og
fyrr greinir. Það var tölvudeild
búlgörsku lögreglunnar sem
lokaði netþjónum síðunnar og
tölvusérfræðingar lögreglunnar
á Nýja-Sjálandi fóru handvirkt
í gegnum lista yfir þá tugi þús-
unda notenda sem voru skráðir
á síðunni.
Interpol hefur gefið sterklega
til kynna að margir eigi enn von
á óþægilegri upplifun þegar lög-
reglan sækir þá og færir til yfir-
heyrslu vegna málsins. Það væri
fólk sem hafði talið sig öruggt
vegna dulkóðunar á vefsíðunni
en hún veitir ekki neina vernd
nú. Talsmenn bandarískra yfir-
valda hafa sagt að hópur Banda-
ríkjamanna, úr efri lögum sam-
félagsins, verði væntanlega
færður fyrir dóm á næstunni.
Þar í landi hafa margir verið
handteknir vegna málsins, þar á
meðal fólk sem gegnir opinber-
um embættum. n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
STÆRSTA BARNA-
NÍÐSMÁL ÁSTRALÍU
Ruecha Tokputza Martröð sérhvers barns.
Tugum drengja bjargað í lögregluaðgerð