Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 14
14 23. ágúst 2019FRÉTTIR n Afar viðkvæmum persónuupplýsingum lekið á aðra nemendur í skólanum n „Strax farið að valda barninu okkar gífurlegri vanlíðan“ H vað er fagmannlegt við að hringja í barnið okkar, sem er sextán ára, og tjá því að því sem það sagði í trúnaði við kennarann sinn hafi ver­ ið lekið til minnst fjörtíu manns, bæði nemenda og foreldra þeirra, og síðan skellt á?“ spyr móðir sext­ án ára drengs sem stundar nám á almennri braut í Fjölbrauta­ skólanum í Breiðholti. Fyrir slysni var afar viðkvæmum og einkar persónulegum upplýsingum um piltinn, og fleiri nemendur, lekið á nýnema og forráðamenn þeirra. Pilturinn er greindur með dæmi­ gerða einhverfu og athyglisbrest auk fleiri raskana. Í samtali við DV segir móðir piltsins að henni finn­ ist óskiljanlegt að upplýsingaleki af þessu tagi geti átt sér stað. Hún hefur leitað til lögfræðings vegna málsins og hyggst leggja fram kæru á hendur skólanum. Skólinn hafði ekki samband, hvorki við hana né föður piltsins vegna málsins. Fullkomlega óviðeigandi DV greindi frá því á dögunum að alvarlegur gagnaleki hefði átt sér stað hjá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, FB, þann 15. ágúst síðastliðinn. Þá voru viðkvæmar persónuupplýsingar um nemend­ ur sendar á nýnema og forráða­ menn þeirra fyrir slysni, en upp­ lýsingarnar voru meðal annars um líðan nemenda, hvort þeir þyrftu aðstoð við nám og hvort fylgj­ ast ætti með þeim. Óhappið vildi þannig til að umsjónarkennari sendi tölvupóst á forráðamenn og nýnema og lét fylgja með viðhengi sem hann hélt að væri skjal með töflutíma varðandi viðtalstíma. Kennarinn sendi hins vegar rangt viðhengi, skjal með upplýsing­ um um viðtöl sem höfðu verið tekin við nemendur frá fyrri önn. Ekki þarf að taka fram að þess­ ar upplýsingar voru fullkomlega óviðeigandi og ekki ætlaðar þess­ um viðtakendum. Í framhaldinu sendi skóla­ meistari FB tölvupóst á þá nem­ endur sem urðu fyrir því að upp­ lýsingum um þá var lekið. DV hefur þann tölvupóst undir hönd­ um. Þar kemur meðal annars fram að Persónuvernd hafi verið til­ kynnt um málið og skólinn muni vinna að úrbótum á öryggismál­ um út frá væntanlegum ábending­ um frá Persónuvernd. Einnig kemur fram í tölvupóstinum að viðtakendur upplýsinganna við­ kvæmu hafi verið beðnir um að eyða umræddum tölvupósti. Þann 16. ágúst síðastliðinn var haldinn fundur með nýnemum og forráða­ mönnum þar sem sú beiðni var ít­ rekuð. „Eins og skvetta í andlitið“ „Trúnaðarupplýsingar eiga ekki að vera geymdar á sama stað og til dæmis stundaskrár annarra nemenda. Hugsaðu þér ef þú fær­ ir í vinnuna og trúnaðarmaðurinn eða sálfræðingurinn sem starfaði í fyrirtækinu væri „óvart“ búinn að senda allt persónulegt um þig, svo sem hvernig þér líður, vanda­ mál og fleira, á samstarfsmenn þína. Hvernig mundi þér líða eft­ ir á? Mundirðu mæta í vinnuna?“ spyr móðirin í samtali við blaða­ mann, en hún kýs að koma fram undir nafnleynd því hún vill hlífa syni sínum. Móðirin tekur fram að auðvitað séu ekki ekki allir eins. „Kannski hefur þetta engar af­ leiðingar fyrir einhverja, en það eru aðrir nemendur sem eru til dæmis með mikinn kvíða eða aðrar raskanir og þeir fá þetta eins og skvettu í andlitið.“ Hún furðar sig enn fremur á því að börnin sem brotið var á hafi ekki verið boðuð á fund til að ræða þessi mál og beðin afsökunar á þessum mjög svo alvarlegu mis­ tökum sem þarna áttu sér stað, heldur voru börnin sem fengu trúnaðarupplýsingarnar send­ ar boðuð á fund ásamt foreldrum sínum. Þar voru þau beðin afsök­ unar og beðin um að eyða þessum tölvupóstum „persónulega.“ Síðan var hringt í þá foreldra sem ekki mættu. Móðirin furðar sig sömuleið­ is á því að skólameistari FB skuli hafa tekið fram að hann væri ekki viss um hvort upplýsingarnar flokkist sem viðkvæmar persónu­ upplýsingar, samkvæmt stöðlum Persónuverndar, en ákveðið hafi verið að tilkynna öryggisbrestinn strax til stofnunarinnar, með að­ stoð fagaðila. „Hvernig getur hann sagt þetta en samt beðið alla afsökunar og boðað þá sem fengu þetta á fund?“ Ópersónulegur tölvupóstur Hún segir vinnubrögð skólans fyrir neðan allar hellur og gagn­ rýnir að ekki hafi verið haft sam­ band við hana, móðurina né föður piltsins vegna málsins. „Barnið er hvorki lögráða né sjálfráða og vissi ekkert hvað það ætti að gera með þessar upplýs­ ingar, sem við höfum ekki feng­ ið að sjá ennþá sem foreldrar. Það var ekki hringt í okkur, foreldrana, svo við gætum rætt málin við barnið og mögulega komið með lausnir ef því liði illa með þetta og hvort það treysti sér í skólann. Við fengum einungis ópersónulegan tölvupóst sendan þar sem hvorki barnið né við vorum nefnd á nafn, og engin áhersla lögð á að þetta ætti við okkur, og yfirsást okkur því algerlega að um okkar barn væri að ræða! Þetta virkaði nánast eins og staðlaður fjöldapóstur.“ Líkt og fyrr segir er sonur kon­ unnar greindur með ýmiss kon­ ar raskanir sem hafa háð honum gríðarlega í námi hingað til. Það var því mikill áfangi fyrir hann að hefja nám í framhaldsskóla. Þetta atvik hefur reynst gífurlegt bakslag. „Þetta er strax farið að valda barninu okkar gífurlegri vanlíðan enda er það hrætt við að verða fyrir stríðni og vill helst ekki ræða þetta. Við erum hrædd um að hann hætti í skólanum,“ segir móðirin en sem fyrr segir hefur hún sett sig í samband við lögfræðing vegna málsins. „Ég vil kæra og láta reka þennan kennara, því hver myndi láta sér detta í hug að hafa trún­ aðarmál og ­upplýsingar á sama stað og til dæmis tímatöflur? Við viljum vekja athygli á þessu máli svo þetta komi ekki fyrir aðra, og að kennarar sem og aðrir sem hafa viðkvæmar upplýsingar und­ ir höndum, geymi þær á öruggum stað og sjái til þess að aðrir komist ekki yfir þær. Sextán ára er alltaf barn í lagalegum skilningi til átján ára aldurs.“ n „Við erum hrædd um að hann hætti í skólanum Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Einhverfur piltur á meðal fórnarlamba gagnalekans í FB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.