Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 19
23. ágúst 2019 KYNNINGARBLAÐ Heilsuefling í vatni MÝRIN VATNSLEIKFIMI: Vatnsleikfimi er frábær líkams-rækt sem hentar bæði full-frísku fólki og fólki með ýmis stoðkerfisvandamál, bakverki, vefja- gigt eða slitgigt. Jóna Örlygsdóttir íþróttakennari hefur um árabil boðið upp á hressandi og skemmtilega vatnsleikfimi í Mýrinni í Garðabæ (TM-höllin). „Vatnsleikfimin hjá mér er ætluð fólki á fjölbreyttum aldri, eina skil- yrðið er að njóta þess að hreyfa sig á sínum forsendum,“ segir Jóna en hennar þjálfun byggist upp á fjöl- breyttum æfingum til að auka liðleika, styrk og úthald. Áherslan í leikfiminni er lögð á að nýta vatnið sem mót- stöðu til að bæta hreyfigetu og auka líkamlega færni. Margir sem mæta eru með gigtarvandamál, bakverki og önnur stoðkerfiseinkenni, aðrir eru tiltölulega heilsuhraustir og er leikfim- in þá góð viðbót við aðra hreyfingu. „Maður getur svo margt í vatni sem ekki er gott að gera á þurru landi og ávinningurinn af því hafa vatnið sem mótstöðu er mikill. Meiðslahætta er nánast engin og líðanin eftir hreyf- ingu í vatni er alveg dásamleg.“ Jóna kennir vatnsleikfimi fimm daga vikunnar og er yfirleitt með tvo til þrjá hópa á dag. „Ég gæti þess að hafa hópana ekki of stóra, það er nauðsynlegt að hver einstaklingur fái leiðbeiningar samkvæmt sinni getu,“ segir Jóna. „Ég legg líka mikið upp úr því að kynna mér ástand hvers og eins og hafa þjónustuna eins persónulega og hægt er. Ég hef mikla og góða reynslu af þjálfun, starfaði til dæmis lengi á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, hef starfað á líkams- ræktarstöðvum og undanfarið hef ég líka verið í samstarfi við starfsendur- hæfinguna VIRK.“ Næstu námskeið í vatnsleikfiminni fara í gang þann 11. september og hægt er að nálgast allar upplýsingar á Facebook-síðunni Mýrin vatnsleik- fimi. Skráning er hafin og skal skrá sig með því að senda skilaboð á Face- book eða senda tölvupóst á net- fangið g-jona@internet.is. Auðbrekku 27, Kópavogi www.bilasprautun.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.