Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Page 19
23. ágúst 2019 KYNNINGARBLAÐ
Heilsuefling í vatni
MÝRIN VATNSLEIKFIMI:
Vatnsleikfimi er frábær líkams-rækt sem hentar bæði full-frísku fólki og fólki með ýmis
stoðkerfisvandamál, bakverki, vefja-
gigt eða slitgigt. Jóna Örlygsdóttir
íþróttakennari hefur um árabil boðið
upp á hressandi og skemmtilega
vatnsleikfimi í Mýrinni í Garðabæ
(TM-höllin).
„Vatnsleikfimin hjá mér er ætluð
fólki á fjölbreyttum aldri, eina skil-
yrðið er að njóta þess að hreyfa sig
á sínum forsendum,“ segir Jóna en
hennar þjálfun byggist upp á fjöl-
breyttum æfingum til að auka liðleika,
styrk og úthald. Áherslan í leikfiminni
er lögð á að nýta vatnið sem mót-
stöðu til að bæta hreyfigetu og auka
líkamlega færni. Margir sem mæta
eru með gigtarvandamál, bakverki
og önnur stoðkerfiseinkenni, aðrir eru
tiltölulega heilsuhraustir og er leikfim-
in þá góð viðbót við aðra hreyfingu.
„Maður getur svo margt í vatni sem
ekki er gott að gera á þurru landi og
ávinningurinn af því hafa vatnið sem
mótstöðu er mikill. Meiðslahætta er
nánast engin og líðanin eftir hreyf-
ingu í vatni er alveg dásamleg.“
Jóna kennir vatnsleikfimi fimm
daga vikunnar og er yfirleitt með tvo
til þrjá hópa á dag. „Ég gæti þess
að hafa hópana ekki of stóra, það er
nauðsynlegt að hver einstaklingur fái
leiðbeiningar samkvæmt sinni getu,“
segir Jóna. „Ég legg líka mikið upp
úr því að kynna mér ástand hvers
og eins og hafa þjónustuna eins
persónulega og hægt er. Ég hef mikla
og góða reynslu af þjálfun, starfaði
til dæmis lengi á Heilsustofnun NLFÍ
í Hveragerði, hef starfað á líkams-
ræktarstöðvum og undanfarið hef ég
líka verið í samstarfi við starfsendur-
hæfinguna VIRK.“
Næstu námskeið í vatnsleikfiminni
fara í gang þann 11. september og
hægt er að nálgast allar upplýsingar
á Facebook-síðunni Mýrin vatnsleik-
fimi.
Skráning er hafin og skal skrá sig
með því að senda skilaboð á Face-
book eða senda tölvupóst á net-
fangið g-jona@internet.is.
Auðbrekku 27, Kópavogi
www.bilasprautun.is