Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 38
38 FÓKUS 23. ágúst 2019 Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is SKILTAGERÐ BÍLAMERKINGAR BANNER-UP SÓLARFILMUR Ráðgjöf Hönnun Framleiðsla Uppsetning YFIRHEYRSLAN Hvar líður þér best? Heima í sófanum. Hvað óttast þú mest? Að gera ekki eitthvað sem skiptir máli. Hvert er þitt mesta afrek? Að eignast strákana mína. Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Að skera lauk í hráefnavinnslu Domino’s. Eðli málsins samkvæmt grét ég allan daginn. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Hún braut blað í sögunni. Hvernig væri bjórinn Sylvia? Góður IPA bjór með smá malti. Himneskur spjall- og trúnóbjór. Besta ráð sem þú hefur fengið? Góðir hlutir gerast hægt og gerðu alla hluti sem hræða þig eða þú færð fiðring í magann yfir. Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Klárlega að ganga frá og brjóta saman þvottinn. Besta bíómynd allra tíma? Eat, pray, love. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Að geta séð fram í tímann. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Að hætta í vinnunni og sambandi til að einbeita mér að nýjum markmiðum. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Róaðu þig og slakaðu á. Hvað getur þú sjaldnast staðist eða ert góð í að réttlæta að veita þér? Súkkulaði alla daga – alltaf! Hvað er á döfinni hjá þér? Við Eva hjá Norminu erum að fara að halda LIVE event á Hard Rock með Siggu Dögg, eftir mikla eftirspurn hlustenda, þann 1. september. Ég veit ekki hvað ég er að spá, þar sem ég get ekki talað um kynlíf, ég verð svo kjánaleg. En þetta verður fræðandi hláturskast þar sem við fáum spurningar frá hlustendum og spyrjum Siggu spjörunum úr. Miðasala er í gangi á tix.is. Sylvía Briem Friðjónsdóttir starfar sem vörustjóri og þjálfari hjá Dale Carnegie en hún stundar nám í sálfræði samhliða vinnu. Sylvíu finnst fátt fróð- legra en að kynna sér ástæður þess að fólk hegðar sér á tiltekinn hátt, en hún heldur úti hlaðvarpinu Normið þar sem áhugasamir geta kynnt sér umfjöll- unarefni hennar. Við fengum Sylvíu í yfirheyrslu helgar- innar. Sylvía Briem Friðjónsdóttir „Róaðu þig og slakaðu á M Y N D : D V/ EY Þ Ó R

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.