Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Side 38
38 FÓKUS 23. ágúst 2019
Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
BÍLAMERKINGAR
BANNER-UP
SÓLARFILMUR
Ráðgjöf
Hönnun
Framleiðsla
Uppsetning
YFIRHEYRSLAN
Hvar líður þér best?
Heima í sófanum.
Hvað óttast þú mest?
Að gera ekki eitthvað sem skiptir máli.
Hvert er þitt mesta afrek?
Að eignast strákana mína.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Að skera lauk í hráefnavinnslu Domino’s. Eðli málsins samkvæmt
grét ég allan daginn.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Hún braut blað í sögunni.
Hvernig væri bjórinn Sylvia?
Góður IPA bjór með smá malti. Himneskur spjall- og trúnóbjór.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Góðir hlutir gerast hægt og gerðu alla hluti sem hræða þig eða þú
færð fiðring í magann yfir.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Klárlega að ganga frá og brjóta saman þvottinn.
Besta bíómynd allra tíma?
Eat, pray, love.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Að geta séð fram í tímann.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Að hætta í vinnunni og sambandi til að einbeita mér að nýjum
markmiðum.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
Róaðu þig og slakaðu á.
Hvað getur þú sjaldnast staðist eða ert góð í að
réttlæta að veita þér?
Súkkulaði alla daga – alltaf!
Hvað er á döfinni hjá þér?
Við Eva hjá Norminu erum að fara að halda LIVE event á Hard
Rock með Siggu Dögg, eftir mikla eftirspurn hlustenda, þann 1.
september. Ég veit ekki hvað ég er að spá, þar sem ég get ekki
talað um kynlíf, ég verð svo kjánaleg. En þetta verður fræðandi
hláturskast þar sem við fáum spurningar frá hlustendum og
spyrjum Siggu spjörunum úr. Miðasala er í gangi á tix.is.
Sylvía Briem Friðjónsdóttir
starfar sem vörustjóri og þjálfari hjá
Dale Carnegie en hún stundar nám
í sálfræði samhliða vinnu.
Sylvíu finnst fátt fróð-
legra en að kynna sér
ástæður þess að fólk
hegðar sér á tiltekinn
hátt, en hún heldur
úti hlaðvarpinu
Normið þar sem
áhugasamir geta
kynnt sér umfjöll-
unarefni hennar.
Við fengum Sylvíu
í yfirheyrslu helgar-
innar.
Sylvía Briem
Friðjónsdóttir
„Róaðu
þig og
slakaðu á
M
Y
N
D
: D
V/
EY
Þ
Ó
R