Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 23. ágúst 2019 Patrekur Jaime blæs á kjafta sögurnar Á hrifavaldurinn Patrek- ur Jaime nýtur mikilla vinsælda á Instagram. Hann lýsir sér sjálfum sem nítján ára, samkynhneigðum strák á Ís- landi sem fór út í samfélagsmiðla. Patrekur er nýjasti gestur Föstu- dagsþáttarins Fókuss og ræðir um æskuna, kynhneigð, orðróm, andlega heilsu og samfélagsmiðla. Patrekur ólst upp á Akureyri og segir okkur frá því hvernig hann var í æsku. „Ég var ekkert besti krakkinn, ég var alveg með stæla. Ég hef alltaf verið með stæla. Ég veit ekki af hverju. Ég var samt mjög góður í skóla og er enn þá mjög „bóka- klár“. Kom fyrst út sem tvíkynhneigður Patrekur segist aldrei hafa komið beint út sem samkynhneigður, en hann hafi fyrst komið út sem tvíkynhneigður þegar hann var unglingur. „Ég sagði fólki að ég væri tvíkynhneigður þegar ég var fimmtán ára og var enn að átta mig á hlutunum. Í tíunda bekk í grunn- skóla var ég hrifinn af einhverjum strák og það fréttist, en það sagði enginn neitt við því, því ég var krakki með stæla,“ segir Patrekur. Hann segist ekki tengja við upp- lifun sumra samkynhneigðra vina sína, sem vissu kynhneigð sína á barnsaldri. „Ég var alveg mjög lengi að fatta að ég væri samkyn- hneigður,“ segir Patrekur. Sögusagnir um dópneyslu Það getur tekið á að vera áber- andi á samfélagsmiðlum og kljást við athyglina sem því fylgir. Sögu- sagnir eru Patreki kunnugar og allra helst sá orðrómur að hann sé í dópneyslu. „Þetta byrjaði í MA, þá heyrði ég það fyrst, að ég væri í spítt- neyslu. Ég hef aldrei tekið spítt og hræðist fíkniefni. Ég hef viður- kennt það og ég reyki alveg gras af og til, mér finnst það smá eins og að drekka. Ég fíla það meira en að drekka. Ég var orðin svo mikil djammskvísa á tímabili, þar sem ég var alltaf að drekka allar helgar, djammaði allar helgar, þetta var orðið að rútínu með vinahópnum. Ég nennti því ekki lengur og byrj- aði að reykja gras af og til í stað þess að fara niður í bæ og drekka. Mér finnst það miklu meira næs, en fólk fór þá að ýkja eins og ég væri í einhverjum skelfilegum fíkniefnum,“ segir Patrekur. „Orðrómurinn var orðinn mjög grófur á tímabili. Mamma heyrði af þessu og fjölskylda mín líka. Þá hugsaði ég að þetta væri orðið slæmt ef fjölskylda mín væri að heyra að ég væri í spíttneyslu.“ Skrýtnasti orðrómurinn Aðspurður hver sé skrýtnasti orðrómurinn sem hann hafi heyrt um sig, segir Patrekur það vera orðróminn um að hann væri í raun og veru ekki samkynhneigður. „Það var alveg orðrómur í smá tíma,“ segir Patrekur og bætir við að hann viti ekki enn í dag á hverju þessi orðrómur byggðist. „Ég vissi ekki hvað ég átti að segja af því að ég er svo ógeðslega „gay“ að það meikar engan sens. Ég var alveg; hvað meinar fólk! Ég er svo ógeðslega kvenleg- ur hommi, ég mála mig og geng í kvenmannsfötum. Ef mér finnst ég „hot“ í þeim þá fer ég í þau.“ Fáklæddur á Instagram Aðspurður hvað sé það mest „sjokkerandi“ sem hann hefur gert á sínum miðli, verða myndir af honum fáklæddum Patreki efst í huga. „Fólk er alltaf hissa en svo er það líka svona: „Slay.“ Þetta er svo mikið ég. Fyrsta svona myndin sem ég deildi var ég í bæði nær- buxum og bol og mér fannst þetta ekki það tæpt, en það voru al- veg 50 þúsund „impress“ á henni og alveg 1.500 „likes“, og ég var þá ekki vanur að fá yfir þúsund „likes“. Eftir það pósta ég af og til tæpri mynd, fólk kemur þá alltaf til með að hneykslast smá.“ Einhleypur en samt ekki Patrekur segist vera einhleypur, en er með augun á einum ákveðnum sem hann er að hitta. Að vera áberandi persónuleiki á samfélagsmiðlum hefur reynst fyrri samböndum Patreks erfitt. „Það er ógeðslega erfitt. Ég er oftast að deita einhvern og segi engum frá því, því mér finnst það eyðileggja alltaf eitthvað þegar það kemst í ljós,“ segir Patrekur. „Ég er líka svo mikið með strák- um sem eru ekki komnir út [úr skápnum], þegar ég hugsa til baka þá eru þetta alltaf gaurar sem eru ekki komnir út og það er alltaf enn þá erfiðara að vera að fela að manneskjan sé hommi og svo að hún sé að deita mig. Það er erfitt.“ Lifir á tekjunum frá samfélags- miðlum Samfélagsmiðlar eru fullt starf fyr- ir Patrek og segir hann það fara eft- ir hverjum mánuði fyrir sig hvað hann þéni mikið. „Það er svo misjafnt, það er það sem er svona óþægilegt við þetta. Þú veist aldrei hvað þú ert að fá,“ segir Patrekur. Þó svo að hann vilji ekki gefa okkur upp upphæð þá segir hann að tekjurnar séu nær nokkrum hundruðum þúsunda en ekki tug- um þúsunda. „Ég þarf alveg að geta lifað lúx- uslífinu,“ segir Patrekur. Varafyllingar Eitt af því sem fylgir lúxuslífi Pat- reks eru varafyllingar. Hann fékk fyrstu fyllingarnar daginn eftir átján ára afmælið sitt. Í lok síðasta árs fór Patrekur einu sinni í mánuði í þrjá mánuði í varafyllingar. „Það var þegar þær urðu al- veg vel stórar,“ segir hann og vís- ar í mynd sem hann deildi á Instagram og skrifaði með henni: „Lips bigger than your future“, eða „varir stærri en framtíð þín“. „Allt sem ég geri, það kemur alltaf einhvern veginn skandall út úr því og mér finnst alveg smá gaman af því að flippa í fólki, fólk þarf aðeins að slaka á,“ segir Patrekur. Fyrir utan að hafa fengið vara- fyllingar hefur Patrekur látið laga á sér eyrun, en hann segir þau hafa verið mjög útstæð áður. Hann langar að láta gera meira. „Mig langar að fá mér fyllingar í kinn- beinin og nefið,“ segir hann. „Varir stærri en framtíð þín,“ skrifaði Patrekur með þessari mynd á Instagram. Greindist með þunglyndi í byrjun árs Patrekur Jaime tók sér hlé frá samfélagsmiðlum í byrjun árs til að huga að andlegri heilsu sinni. Hann greindist með þunglyndi og byrjaði í kjölfarið á lyfjum sem tók tvo mánuði að byrja að virka almennilega. Hann segist hafa þurft að út- skýra fjarveru sína fyrir fylgjend- um, en á sama tíma voru sögu- sagnir um meinta fíkniefnaneyslu hans í fullum gangi og fjarvera hans gaf þeim órðrómi byr í seglinn. „Í dag líður mér alveg ótrúlega vel. Ég er mjög hamingjusamur,“ segir Patrekur. Þú getur horft á viðtalið við Patrek Jaime í heild sinni á DV. is eða hlustað á það á Spotify, Podcast, iTunes og öðrum hlað- varpsrásum. n n Lifir á tekjum frá samfélagsmiðlum: „Ég þarf alveg að geta lifað lúxuslífinu“ „Ég var ekkert besti krakkinn, ég var alveg með stæla.“ M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is M Y N D : I N S TA G R A M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.