Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 28
28 MATUR 23. ágúst 2019 Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Ég fór á ketómataræðið í 14 daga og þetta er það sem gerðist G óðæri síðustu ára hef- ur ekki farið framhjá mér. Á meðan krónan styrkt- ist þá strekktist jafnframt á buxnastrengnum. Nú eru efna- hagshorfurnar orðnar öllu verri en buxnastrengurinn þrjóskast þó við. Ég hef sent velmegunarvömb- inni riftunarbréf og lagt fram út- burðarbeiðni, en samt þrjóskast hún við. Þá eru góð ráð dýr, því góðærið er búið og betra að nýta gömlu buxurnar áfram en að fjár- festa í öðrum stærri. Ketómataræðið svonefnda hef- ur notið mikilla vinsælda undan- farið á Íslandi. Hér er um að ræða álíka æði og þegar Atkinskúrinn tröllreið hér öllu fyrir árþúsunda- mótin. Á ketó eru kolvetni slæm en fita góð. Fita gegn fitu, áhuga- verð nálgun. Það sem ungur nem- ur, gamall temur, og ákvað ég að best væri að leita á náðir reynslu- bolta í mataræðinu. Ég fann ís- lenska ketóhópa á Facebook og fann þar kolvetnasnautt en kær- leiksríkt samfélag. Mæli ég þá sér- staklega vel með hópnum Keto Iceland sem hefur reynst mér ómetanlegur í þessari matar- æðistilraun minni. Fyrsti dagurinn gekk vel fram- an af. Ég var samt svöng og barðist af hörku við nammipúkann. Eftir saðsaman hádegismat leið mér þó mun betur, fannst ég jafnvel strax orðin reynd og sjóuð, hafandi jú, komist í gegnum hálfan sólar- hring án svo mikið sem gúmmí- bangsa. Svo fékk ég í magann. Eftir óþægilegan átakafund við salern- ið steig ég vongóð á vigtina. Engin breyting. „Drasl matarræði,“ hugs- aði ég og arkaði svo inn í eldhús staðráðin í að fá mér samloku. En á síðustu stundu snerist mér hugur. Skynsemin náði aftur yf- irhöndinni. „Þolinmæði þrautir vinnur allar,“ sönglaði ég á með- an ég lokaði mjúkt samloku- brauðið aftur inni í brauðkassan- um. Brauðkassinn lokaðist með lágværum og ljúfum smelli og mér vöknaði lítillega um augun. Næstu daga fékk ég almenni- lega að kynnast því sem kallað er ketóflensa. Ég var slöpp, hálfutan við mig og með hausverk. „Hvers vegna gerir fólk sér þetta? Hvers vegna geri ég mér þetta?“ var al- geng spurning í huga mér. En áfram skyldi þó haldið með smjör- ið. Bókstaflega. Smjör varð minn nýi besti vinur. Allt steikt upp úr smjöri. Ég hélt mér við efnið með því að tilkynna öllum og ömm- um þeirra að ég væri á ketó. Það veitti visst aðhald og kom í veg fyr- ir alvarleg hliðarspor. Eftir viku á ketó afréð ég að stíga loksins á vigtina. Þrjú kílógrömm farin og það sem meira var, brjóstin mín flæddu ekki lengur upp úr brjóstahaldaranum mín- um eins og köttur sem vill ómög- lega láta halda á sér, og svo hafði slaknað á buxnastrengnum. Þess- ar niðurstöður voru uppörvandi. En það sem mér þótti samt merki- legra var að ég var hætt að vera sami smjattpattinn og áður. Ég fann eiginlega aldrei fyrir hungri lengur. Ég borðaði hádegismat og kvöldmat, fastaði þess á milli. Það er ákveðið frelsi sem fylgir því að vera ekki stöðugt að hugsa um mat. Ekki misskilja mig þó, ég hugsa samt alveg eitthvað um mat, en ekki af sama hömlulausa hungrinu og áður, heldur frem- ur sem lið í hefðbundnu heimil- ishaldi. Ég prófaði að gera ketó- útgáfur af pítsu, kókosbollum, búðingi, vöfflum og beyglum. Ég komst líka að því að kúrbít er hægt að breyta í fínasta spaghet- tí! Já, spaghettí, svona er heimur- inn í dag, grænmeti getur orðið spaghettí. Nálægt vinnustað mín- um eru fjölmargir veitingastaðir sem bjóða upp á ketómat, en það getur verið dýrt að fara daglega út að borða í hádeginu. Ég þurfti því að skipuleggja matinn og taka með mér nesti. Eða ég hefði þurft þess. Ég er ekki ein af þeim sem blessuð var með skipulagsnáðar- gáfu í vöggu. Ég lifi lífinu eftir því sem ég kalla skipulegt kaos, sem er fínt orð yfir algera óreiðu. Að muna eftir nesti virtist vera áskor- unin sem sigraði mig, og eyddi ég slíkum fjárhæðum í ketóskyndi- bita að ég kæri mig ekki um að rifja það upp. Allt kom þó með heita vatninu og á viku tvö á ketó tókst mér í þrígang að muna eftir nesti. Geri aðrir betur. Vika tvö leið svo hratt að skyndilega hafði ég lokið 14 dögum á ketó. Þá steig ég aftur á vigtina. Tvö kíló í viðbót höfðu gufað upp og ég komin í þá ókunn- uglegu stöðu að þurfa minna sjálfa mig á að borða, því ekki fór mikið fyrir hungrinu. Svo hver er niðurstaðan eftir tveggja daga ketókúr: Ég hef misst 5 kg Ég er hætt að fá brjóstsviða Ég er hressari og framtakssamari Ég fæ sjaldnar höfuðverk Ég sef betur Allt í allt myndi ég kalla þetta ánægjulega lífsreynslu. Ég get þó ekki séð fyrir mér að vera á ketó líf- ið á enda, en ég mun halda þessu áfram komandi mánuði, leyfa velmegunarvömbinni að rýrna og buxnastrengnum að slaka á. Kveðja, Ketókisi. Byrjendaráð frá byrjanda Salta matinn aðeins meira til að hjálpa ketóflensunni að ganga yfir. Drekka nóg af vatni, því annars er hætt við ofþornun með tilheyr- andi óþægindum. Borða fjölbreytt Hafa í huga að þó svo kolvetnin séu að mestu úr sögunni þá þarf að gæta þess að inntaka kalóría fari ekki úr öllum böndum. Allt er gott í hófi, líka á ketó. Ekki örvænta þótt lengri salernistúrum fækki. Þetta tekur bara aðeins lengri úrvinnslutíma en skilar sér á endanum. M argir staðir bjóða nú upp á skyndibita. Einn þeirra er Black box pizza. Ég gæddi mér á einni slíkri á þriðja degi ketó, en fékk svo vægt áfall þegar ketóhópurinn minn góði greindi frá því að pítsan væri ekki ketó, þrátt fyrir að heita ketó pítsubotn á seðli. Þetta þykir mér ansi villandi fyrir neytendur. Hins vegar er pítsan ákaflega bragðgóð. Ketóhamborgarabrauðin frá Hamborgarafabrikkunni eru ekki heldur ketó. Sjokkerandi ég veit. En það er bara fínasta máltíð að gera sér veglegan hamborgara, mínus brauðið. Saknaði brauðsins ákaflega lítið. Íslenski framleiðandinn Good Good framleiðir sykurlausar vör- ur sem henta í flestum tilvikum á ketómataræðinu. Til að mynda hafa sulturnar þeirra vakið mikla lukku út fyrir landsteinana og náðu á árinu toppsæti á vinsælda- lista Amazon. Uppskrift: Fathead pítsubotninn frægi Fathead pítsubotninn nýtur mik- illa vinsælda meðal ketóliða. Margir hafa sína eigin útfærslu en ég ákvað að endingu að styðjast við uppskrift frá dietdoctor.com. 175 g rifinn ostur 2 msk. rjómaostur 100 g möndlumjöl 1 tsk. hvítvínsedik 1 egg ½ tsk. salt Aðferð: Ostar bræddir saman í örbylgju- ofni eða potti þar til nokkuð sléttur klumpur myndast. Síðan er gott að bleyta hendurnar með olíu og hnoða restinni af hráefnunum saman við ostaklumpinn. Deigið á að vera frekar blautt, en sé það of þurrt er hægt að bæta við eggi. Að ending er klumpnum hent á ofnblötu með bökunarpappír, bökunarpappír einnig settur yfir svo hægt sé að fletja deigið út án þess að það klístrist fast við köku- keflið. Síðan er botninn forbakað- ur í ofni, í svona 10–15 mínútur við 200 gráðu hita. Þá er botninn tek- inn út, þínu uppáhaldsáleggi hent ofan á og svo aftur inn í ofn, þar til osturinn hefur bráðnað (ca. 10–15 mín).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.