Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Qupperneq 28
28 MATUR 23. ágúst 2019
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Ég fór á ketómataræðið í 14 daga og þetta er það sem gerðist
G
óðæri síðustu ára hef-
ur ekki farið framhjá mér.
Á meðan krónan styrkt-
ist þá strekktist jafnframt
á buxnastrengnum. Nú eru efna-
hagshorfurnar orðnar öllu verri
en buxnastrengurinn þrjóskast þó
við. Ég hef sent velmegunarvömb-
inni riftunarbréf og lagt fram út-
burðarbeiðni, en samt þrjóskast
hún við. Þá eru góð ráð dýr, því
góðærið er búið og betra að nýta
gömlu buxurnar áfram en að fjár-
festa í öðrum stærri.
Ketómataræðið svonefnda hef-
ur notið mikilla vinsælda undan-
farið á Íslandi. Hér er um að ræða
álíka æði og þegar Atkinskúrinn
tröllreið hér öllu fyrir árþúsunda-
mótin. Á ketó eru kolvetni slæm
en fita góð. Fita gegn fitu, áhuga-
verð nálgun. Það sem ungur nem-
ur, gamall temur, og ákvað ég að
best væri að leita á náðir reynslu-
bolta í mataræðinu. Ég fann ís-
lenska ketóhópa á Facebook og
fann þar kolvetnasnautt en kær-
leiksríkt samfélag. Mæli ég þá sér-
staklega vel með hópnum Keto
Iceland sem hefur reynst mér
ómetanlegur í þessari matar-
æðistilraun minni.
Fyrsti dagurinn gekk vel fram-
an af. Ég var samt svöng og barðist
af hörku við nammipúkann. Eftir
saðsaman hádegismat leið mér þó
mun betur, fannst ég jafnvel strax
orðin reynd og sjóuð, hafandi jú,
komist í gegnum hálfan sólar-
hring án svo mikið sem gúmmí-
bangsa. Svo fékk ég í magann. Eftir
óþægilegan átakafund við salern-
ið steig ég vongóð á vigtina. Engin
breyting. „Drasl matarræði,“ hugs-
aði ég og arkaði svo inn í eldhús
staðráðin í að fá mér samloku.
En á síðustu stundu snerist mér
hugur. Skynsemin náði aftur yf-
irhöndinni. „Þolinmæði þrautir
vinnur allar,“ sönglaði ég á með-
an ég lokaði mjúkt samloku-
brauðið aftur inni í brauðkassan-
um. Brauðkassinn lokaðist með
lágværum og ljúfum smelli og mér
vöknaði lítillega um augun.
Næstu daga fékk ég almenni-
lega að kynnast því sem kallað er
ketóflensa. Ég var slöpp, hálfutan
við mig og með hausverk. „Hvers
vegna gerir fólk sér þetta? Hvers
vegna geri ég mér þetta?“ var al-
geng spurning í huga mér. En
áfram skyldi þó haldið með smjör-
ið. Bókstaflega. Smjör varð minn
nýi besti vinur. Allt steikt upp úr
smjöri. Ég hélt mér við efnið með
því að tilkynna öllum og ömm-
um þeirra að ég væri á ketó. Það
veitti visst aðhald og kom í veg fyr-
ir alvarleg hliðarspor.
Eftir viku á ketó afréð ég að stíga
loksins á vigtina. Þrjú kílógrömm
farin og það sem meira var,
brjóstin mín flæddu ekki lengur
upp úr brjóstahaldaranum mín-
um eins og köttur sem vill ómög-
lega láta halda á sér, og svo hafði
slaknað á buxnastrengnum. Þess-
ar niðurstöður voru uppörvandi.
En það sem mér þótti samt merki-
legra var að ég var hætt að vera
sami smjattpattinn og áður. Ég
fann eiginlega aldrei fyrir hungri
lengur. Ég borðaði hádegismat og
kvöldmat, fastaði þess á milli.
Það er ákveðið frelsi sem fylgir
því að vera ekki stöðugt að hugsa
um mat. Ekki misskilja mig þó,
ég hugsa samt alveg eitthvað um
mat, en ekki af sama hömlulausa
hungrinu og áður, heldur frem-
ur sem lið í hefðbundnu heimil-
ishaldi. Ég prófaði að gera ketó-
útgáfur af pítsu, kókosbollum,
búðingi, vöfflum og beyglum.
Ég komst líka að því að kúrbít er
hægt að breyta í fínasta spaghet-
tí! Já, spaghettí, svona er heimur-
inn í dag, grænmeti getur orðið
spaghettí. Nálægt vinnustað mín-
um eru fjölmargir veitingastaðir
sem bjóða upp á ketómat, en það
getur verið dýrt að fara daglega
út að borða í hádeginu. Ég þurfti
því að skipuleggja matinn og taka
með mér nesti. Eða ég hefði þurft
þess. Ég er ekki ein af þeim sem
blessuð var með skipulagsnáðar-
gáfu í vöggu. Ég lifi lífinu eftir því
sem ég kalla skipulegt kaos, sem
er fínt orð yfir algera óreiðu. Að
muna eftir nesti virtist vera áskor-
unin sem sigraði mig, og eyddi ég
slíkum fjárhæðum í ketóskyndi-
bita að ég kæri mig ekki um að rifja
það upp. Allt kom þó með heita
vatninu og á viku tvö á ketó tókst
mér í þrígang að muna eftir nesti.
Geri aðrir betur. Vika tvö leið svo
hratt að skyndilega hafði ég lokið
14 dögum á ketó. Þá steig ég aftur
á vigtina. Tvö kíló í viðbót höfðu
gufað upp og ég komin í þá ókunn-
uglegu stöðu að þurfa minna sjálfa
mig á að borða, því ekki fór mikið
fyrir hungrinu.
Svo hver er niðurstaðan eftir
tveggja daga ketókúr:
Ég hef misst 5 kg
Ég er hætt að fá brjóstsviða
Ég er hressari og
framtakssamari
Ég fæ sjaldnar höfuðverk
Ég sef betur
Allt í allt myndi ég kalla þetta
ánægjulega lífsreynslu. Ég get þó
ekki séð fyrir mér að vera á ketó líf-
ið á enda, en ég mun halda þessu
áfram komandi mánuði, leyfa
velmegunarvömbinni að rýrna
og buxnastrengnum að slaka á.
Kveðja, Ketókisi.
Byrjendaráð frá byrjanda
Salta matinn aðeins meira til að hjálpa ketóflensunni að ganga
yfir.
Drekka nóg af vatni, því annars er hætt við ofþornun með tilheyr-
andi óþægindum.
Borða fjölbreytt
Hafa í huga að þó svo kolvetnin séu að mestu úr sögunni þá þarf
að gæta þess að inntaka kalóría fari ekki úr öllum böndum. Allt er
gott í hófi, líka á ketó.
Ekki örvænta þótt lengri salernistúrum fækki. Þetta tekur bara
aðeins lengri úrvinnslutíma en skilar sér á endanum.
M
argir staðir bjóða nú upp
á skyndibita. Einn þeirra
er Black box pizza. Ég
gæddi mér á einni slíkri á
þriðja degi ketó, en fékk svo vægt
áfall þegar ketóhópurinn minn
góði greindi frá því að pítsan væri
ekki ketó, þrátt fyrir að heita ketó
pítsubotn á seðli. Þetta þykir mér
ansi villandi fyrir neytendur. Hins
vegar er pítsan ákaflega bragðgóð.
Ketóhamborgarabrauðin frá
Hamborgarafabrikkunni eru ekki
heldur ketó. Sjokkerandi ég veit.
En það er bara fínasta máltíð að
gera sér veglegan hamborgara,
mínus brauðið. Saknaði brauðsins
ákaflega lítið.
Íslenski framleiðandinn Good
Good framleiðir sykurlausar vör-
ur sem henta í flestum tilvikum
á ketómataræðinu. Til að mynda
hafa sulturnar þeirra vakið mikla
lukku út fyrir landsteinana og
náðu á árinu toppsæti á vinsælda-
lista Amazon.
Uppskrift: Fathead
pítsubotninn frægi
Fathead pítsubotninn nýtur mik-
illa vinsælda meðal ketóliða.
Margir hafa sína eigin útfærslu en
ég ákvað að endingu að styðjast
við uppskrift frá dietdoctor.com.
175 g rifinn ostur
2 msk. rjómaostur
100 g möndlumjöl
1 tsk. hvítvínsedik
1 egg
½ tsk. salt
Aðferð:
Ostar bræddir saman í örbylgju-
ofni eða potti þar til nokkuð sléttur
klumpur myndast. Síðan er gott
að bleyta hendurnar með olíu og
hnoða restinni af hráefnunum
saman við ostaklumpinn. Deigið
á að vera frekar blautt, en sé það
of þurrt er hægt að bæta við eggi.
Að ending er klumpnum hent á
ofnblötu með bökunarpappír,
bökunarpappír einnig settur yfir
svo hægt sé að fletja deigið út án
þess að það klístrist fast við köku-
keflið. Síðan er botninn forbakað-
ur í ofni, í svona 10–15 mínútur við
200 gráðu hita. Þá er botninn tek-
inn út, þínu uppáhaldsáleggi hent
ofan á og svo aftur inn í ofn, þar til
osturinn hefur bráðnað (ca. 10–15
mín).