Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 31
FÓKUS 3123. águst 2019 allt frá Forn-Grikkjum til klám- menningar samtímans,“ segir Íris og heldur áfram. „Ég var 14 ára þegar ég sá könnun um að 20 prósent stúlkna á mínum aldri fróuðu sér en 80 prósent stráka. Mér fannst þessi tölfræði skrít- in þar sem við Ugla Egilsdótt- ir, vinkona mín, höfðum á þess- um tíma talað töluvert um eigin sjálfsfróun. Við gerðum okkar eigin litlu rannsókn í bekknum og spurðum stelpurnar hvort þær fróuðu sér. Engin svaraði beint játandi, en eftir að hafa spjallað svolítið viðurkenndu þær flestar, ef ekki bara allar, að þær hefðu prófað að fróa sér eða gerðu það reglulega. Við rædd- um líka við strákana og viðruð- um þá hugmynd að gera okkar eigin könnun í bekknum. Bekk- urinn var til í það og því sóttum við um að gera þetta verkefni með það markmið að opna á umræðuna og sérstaklega þenn- an mun á kynjunum. Það var talið eðlilegt að strákar fróuðu sér en algjör leyndar- dómur hvort stelpurnar gerðu það, sem er fyndið í ljósi þess hversu fjölbreyttar full- nægingar konur geta fengið. Á þessum tíma vorum við með unga og yndislega kennslukonu en hún var fljót að kalla okkur upp að kennaraborðinu. Við máttum ekki gera þessa könnun. Eftir að hafa mótmælt þessu kallaði hún hvasst yfir bekkinn; „Hver hér inni vill taka þátt í svona könnun?“ Það þorði auðvitað enginn að rétta upp hönd og þar með var hug- myndin skotin niður. Skilaboðin sem sátu eftir voru að ekki mætti tala um kynhegðun kvenna. Síð- an þá hefur þetta efni verið mér hugleikið. Ég held að með opinni umræðu geti konur orðið öruggari með eigið kynlíf, notið þess bet- ur og stundað betra kynlíf. Þetta hefur því einungis jákvæðar af- leiðingar í för með sér.“ Tíu ára algengur aldur Eftir að hafa kafað ofan í þetta sé ég nokkur algeng stef. Konur hafa ýmist ekki þorað að stunda sjálfs- fróun fyrr en á menntaskólaaldri af ótta við að mega það ekki, eða fundist þær litnar hornauga. Svo þær sem uppgötva þægindi á kynfærasvæðinu ungar að aldri en hafa ekki fengið fullnægingu fyrr en um tíu ára aldur. Enn sem komið er finnst mér það algeng- ur aldur, en ég hef enga almenni- lega tölfræði að byggja á. Það sem eftir situr er þessi dulúð um fullnægingu kvenna, fróa stelpur sér? Fá konur full- nægingu yfirhöfuð? Ef ekki, njóta þær þá þess að stunda kynlíf? Svona spurningar koma aldrei hjá strákunum því þar er til staðar vökvi sem sannar að fullnæging hafi átt sér stað. Vissulega eru þetta bara mínar pælingar en ég myndi vilja að þessari dulúð yrði létt af umræðunni um sjálfs- fróun og fullnægingu kvenna. Síðan ég var 14 ára hefur mikið breyst, en samt eigum við langt í land. Ég skil að ekki séu allir til í að ræða þessi mál, en ég lít svo á að skortur á umræðu leiði af sér vandamál. Nýlega heyrði ég sögu af konu sem fróaði sér í kynlífi til að fá fullnægingu, sem vissulega er algengt, en manninum henn- ar fannst það svo mikil móðgun við hann, að hann bannaði henni að gera það. Umræðan þarf því ekki aðeins að eiga sér stað hjá konum heldur er mikilvægt að gagnkynhneigðir karlar taki þátt í umræðunni eða fræðist um mál- efnið vilji þeir stunda kynlíf með konum.“ n „Stefnan er að safna þangað inn sögum sem að endingu munu verða að risastóru safni af sjálfsfróunarsög- um kvenna alls staðar að úr heiminum.“ Textinn fær að fljóta hér með. When I masturbate Then I enter myself I have never gotten used to using any toys The best thing is of course to do it in the bath then I can just kind of do it like its Natural- natural you know with the shower head Sometimes I open the computer And play a feminist porno film and put My index and middle finger Gently up against my cunt And rub my clit/rotating slowly But the biggest action happens inside of my Head I got a bank of all sorts of Fantasies Fantasies Sometimes I´m a priestess in the matriarch having powerful sex with my prettiest maiden but when I’m feeling some what under the weather I become a teenage girl, for example, being fucked by an older man who is also my teacher when I masturbate when I masturbate Íris Stefanía les upp úr bókinni í út- gáfusýningu sinni sem haldin var haustið 2018 í Gallerý Port við Laugaveg. Mynd: Búi Aðalsteinsson. Alltaf þegar ég sé konur fróa sér í bíómyndum liggja þær makindalega í rúminu með sængina yfir sér, örlítið rjóðar í kinnum. Ég fróa mér helst alltaf liggjandi á maganum og finnst raunar frekar erfitt að gera það öðruvísi. Ég fæ það mjög auðveldlega með bólfélaga, en það er aldrei alveg eins stórkostlegt og með sjálfri mér, sennilega af því að það að liggja á maganum og þrýsta sér niður í dýnuna er auðvelt fyrir mig, en erfiðara fyrir aðra að komast að. Svo ég ligg yfirleitt á bakinu þegar einhver annar leikur við mig. Ég fæ vissulega fullnægingu, en aldrei eins góða. — Ég var full af ranghugmyndum, sem barn og unglingur, um að sjálfsfróun væri af hinu vonda. Byrjaði í sambandi um 18 ára og fékk aldrei fullnægingu í kynlífi, og vissi í raun ekki hvað það var. Svo giftum við okkur og fórum að gera upp hús og ég var að pússa veggi með juðara og þurfti að halla mér að veggnum og svo fór allt að titra og „kabúmm“ ég fékk mína fyrstu fullnægingu með þessum ótrúlega hætti. Ég prófaði það aftur .. og aftur og naut þess í botn. Hætti svo að nota þetta grófa tæki, en svo keypti maðurinn minn fyrir mig titrara, og ég hef notað slíka síðan. Hef líka notað fingurnar, en það dugar skammt svo nú er það „eggið“ og ég sem eigum góðar stundir saman. — Einu sinni bauð vinkona mín með sér í sumar- bústað. Við vorum svona sirka 12 ára. Þetta var um vetur og þegar það tók að rökkva fórum við í heita pottinn, glænýr með nuddbunum. Það leið ekki á löngu þangað til við snérum baki í hvor aðra með glennta fætur og héldum í bakkann sitthvoru megin. Þetta fannst okkur mjög fyndið og vildum að öllum líkindum vera aðeins lengur þannig en við þorðum hvorugar að fá það. Síðan þá hef ég notað sturtuhausinn. — Tvær vinkonur, kannski um það bil sex ára. Komumst að því að báðum fannst okkur gott að nudda okkur að neðan. Við vissum ekkert um kynlíf, kynfæri eða kynhneigð. Fannst þetta forvitnilegt. Henni fannst betra að nudda fram- an á en mér aftan á. Nudduðum hlið við hlið yfir fötin okkar í hjónarúmi foreldra minna. Engin skömm fylgdi þessu augnabliki en heldur eng- um sagt frá pælingum okkar og uppgötvunum. Kannski var þetta okkar á milli. Kannski fór athyglin bara annað, í leiki og lærdóm æskuár- anna. — Ég las á netinu að sjálfsfróun getur aukið sjálfs- traust og það er svo sannarlega rétt! Ég stunda sjálfsfróun nokkrum sinnum í viku og votta fyrir að það virkar! Sögur af sjálfsfróun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.