Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Page 31
FÓKUS 3123. águst 2019
allt frá Forn-Grikkjum til klám-
menningar samtímans,“ segir
Íris og heldur áfram. „Ég var 14
ára þegar ég sá könnun um að 20
prósent stúlkna á mínum aldri
fróuðu sér en 80 prósent stráka.
Mér fannst þessi tölfræði skrít-
in þar sem við Ugla Egilsdótt-
ir, vinkona mín, höfðum á þess-
um tíma talað töluvert um eigin
sjálfsfróun. Við gerðum okkar
eigin litlu rannsókn í bekknum
og spurðum stelpurnar hvort
þær fróuðu sér. Engin svaraði
beint játandi, en eftir að hafa
spjallað svolítið viðurkenndu
þær flestar, ef ekki bara allar, að
þær hefðu prófað að fróa sér eða
gerðu það reglulega. Við rædd-
um líka við strákana og viðruð-
um þá hugmynd að gera okkar
eigin könnun í bekknum. Bekk-
urinn var til í það og því sóttum
við um að gera þetta verkefni
með það markmið að opna á
umræðuna og sérstaklega þenn-
an mun á kynjunum.
Það var talið eðlilegt að strákar
fróuðu sér en algjör leyndar-
dómur hvort stelpurnar gerðu
það, sem er fyndið í ljósi þess
hversu fjölbreyttar full-
nægingar konur geta fengið.
Á þessum tíma vorum við með
unga og yndislega kennslukonu
en hún var fljót að kalla okkur upp
að kennaraborðinu. Við máttum
ekki gera þessa könnun. Eftir að
hafa mótmælt þessu kallaði hún
hvasst yfir bekkinn; „Hver hér inni
vill taka þátt í svona könnun?“ Það
þorði auðvitað enginn að rétta
upp hönd og þar með var hug-
myndin skotin niður. Skilaboðin
sem sátu eftir voru að ekki mætti
tala um kynhegðun kvenna. Síð-
an þá hefur þetta efni verið mér
hugleikið. Ég held að með opinni
umræðu geti konur orðið öruggari
með eigið kynlíf, notið þess bet-
ur og stundað betra kynlíf. Þetta
hefur því einungis jákvæðar af-
leiðingar í för með sér.“
Tíu ára algengur aldur
Eftir að hafa kafað ofan í þetta sé
ég nokkur algeng stef. Konur hafa
ýmist ekki þorað að stunda sjálfs-
fróun fyrr en á menntaskólaaldri
af ótta við að mega það ekki, eða
fundist þær litnar hornauga. Svo
þær sem uppgötva þægindi á
kynfærasvæðinu ungar að aldri
en hafa ekki fengið fullnægingu
fyrr en um tíu ára aldur. Enn sem
komið er finnst mér það algeng-
ur aldur, en ég hef enga almenni-
lega tölfræði að byggja á.
Það sem eftir situr er þessi
dulúð um fullnægingu kvenna,
fróa stelpur sér? Fá konur full-
nægingu yfirhöfuð? Ef ekki, njóta
þær þá þess að stunda kynlíf?
Svona spurningar koma aldrei
hjá strákunum því þar er til staðar
vökvi sem sannar að fullnæging
hafi átt sér stað. Vissulega eru
þetta bara mínar pælingar en
ég myndi vilja að þessari dulúð
yrði létt af umræðunni um sjálfs-
fróun og fullnægingu kvenna.
Síðan ég var 14 ára hefur mikið
breyst, en samt eigum við langt í
land. Ég skil að ekki séu allir til í
að ræða þessi mál, en ég lít svo á
að skortur á umræðu leiði af sér
vandamál. Nýlega heyrði ég sögu
af konu sem fróaði sér í kynlífi til
að fá fullnægingu, sem vissulega
er algengt, en manninum henn-
ar fannst það svo mikil móðgun
við hann, að hann bannaði henni
að gera það. Umræðan þarf því
ekki aðeins að eiga sér stað hjá
konum heldur er mikilvægt að
gagnkynhneigðir karlar taki þátt í
umræðunni eða fræðist um mál-
efnið vilji þeir stunda kynlíf með
konum.“ n
„Stefnan er að
safna þangað inn
sögum sem að endingu
munu verða að risastóru
safni af sjálfsfróunarsög-
um kvenna alls staðar að
úr heiminum.“
Textinn fær að fljóta hér með.
When I masturbate
Then I enter myself
I have never gotten used to using any toys
The best thing is of course to do it in the bath
then I can just kind of do it like its
Natural- natural
you know with the shower head
Sometimes I open the computer
And play a feminist porno film and put
My index and middle finger
Gently up against my cunt
And rub my clit/rotating
slowly
But the biggest action
happens inside of my
Head I got a bank of all
sorts of
Fantasies
Fantasies
Sometimes I´m a priestess in the matriarch
having powerful sex with my
prettiest maiden
but when I’m feeling some what
under the weather
I become a teenage girl,
for example,
being fucked by an older
man who is also my teacher
when I masturbate
when I masturbate
Íris Stefanía les upp úr bókinni í út-
gáfusýningu sinni sem haldin var haustið
2018 í Gallerý Port við Laugaveg.
Mynd: Búi Aðalsteinsson.
Alltaf þegar ég sé konur fróa sér í bíómyndum
liggja þær makindalega í rúminu með sængina
yfir sér, örlítið rjóðar í kinnum. Ég fróa mér helst
alltaf liggjandi á maganum og finnst raunar
frekar erfitt að gera það öðruvísi. Ég fæ það
mjög auðveldlega með bólfélaga, en það er
aldrei alveg eins stórkostlegt og með sjálfri mér,
sennilega af því að það að liggja á maganum
og þrýsta sér niður í dýnuna er auðvelt fyrir mig,
en erfiðara fyrir aðra að komast að. Svo ég ligg
yfirleitt á bakinu þegar einhver annar leikur við
mig. Ég fæ vissulega fullnægingu, en aldrei eins
góða.
—
Ég var full af ranghugmyndum, sem barn og
unglingur, um að sjálfsfróun væri af hinu vonda.
Byrjaði í sambandi um 18 ára og fékk aldrei
fullnægingu í kynlífi, og vissi í raun ekki hvað
það var. Svo giftum við okkur og fórum að gera
upp hús og ég var að pússa veggi með juðara
og þurfti að halla mér að veggnum og svo fór
allt að titra og „kabúmm“ ég fékk mína fyrstu
fullnægingu með þessum ótrúlega hætti. Ég
prófaði það aftur .. og aftur og naut þess í botn.
Hætti svo að nota þetta grófa tæki, en svo
keypti maðurinn minn fyrir mig titrara, og ég hef
notað slíka síðan. Hef líka notað fingurnar, en
það dugar skammt svo nú er það „eggið“ og ég
sem eigum góðar stundir saman.
—
Einu sinni bauð vinkona mín með sér í sumar-
bústað. Við vorum svona sirka 12 ára. Þetta var
um vetur og þegar það tók að rökkva fórum við í
heita pottinn, glænýr með nuddbunum. Það leið
ekki á löngu þangað til við snérum baki í hvor
aðra með glennta fætur og héldum í bakkann
sitthvoru megin. Þetta fannst okkur mjög fyndið
og vildum að öllum líkindum vera aðeins lengur
þannig en við þorðum hvorugar að fá það. Síðan
þá hef ég notað sturtuhausinn.
—
Tvær vinkonur, kannski um það bil sex ára.
Komumst að því að báðum fannst okkur gott
að nudda okkur að neðan. Við vissum ekkert
um kynlíf, kynfæri eða kynhneigð. Fannst þetta
forvitnilegt. Henni fannst betra að nudda fram-
an á en mér aftan á. Nudduðum hlið við hlið yfir
fötin okkar í hjónarúmi foreldra minna. Engin
skömm fylgdi þessu augnabliki en heldur eng-
um sagt frá pælingum okkar og uppgötvunum.
Kannski var þetta okkar á milli. Kannski fór
athyglin bara annað, í leiki og lærdóm æskuár-
anna.
—
Ég las á netinu að sjálfsfróun getur aukið sjálfs-
traust og það er svo sannarlega rétt! Ég stunda
sjálfsfróun nokkrum sinnum í viku og votta fyrir
að það virkar!
Sögur af sjálfsfróun