Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 17
KYNNINGARBLAÐ Sérblaðið 23. ágúst 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Bílasprautun og réttingar Auðuns: Fagurkeri sem réttir bíla og tekur ljósmyndir Bílasprautun og réttingar Auðuns er gæðavottað réttingaverkstæði af Bílgreina- sambandinu og tryggingafélögun- um. „Við bjóðum upp á tjónamat, bílaréttingar og bílasprautun. Einnig koma til okkar einstaklingar með bíla sem þarf að rétta og tökum við að sjálfsögðu alltaf vel á móti öllum viðskiptavinum með bros á vör,“ segir Jón Grétarsson, einn eigenda fyrir- tækisins. Fyrirtækjaafsláttur „Starfsemi okkar gengur aðallega út á að þjónusta tryggingafélögin með sprautun og réttingar á tjóna- bílum, en við sjáum líka um bíla fyrir fyrirtæki. Þá fá fyrirtækin afslátt af þjónustu okkar sem og starfsmenn fyrirtækjanna fyrir einkabíl sinn.“ Laða að sér viðskiptin alls staðar að af landinu Fyrirtækið er byggt á gömlum grunni en það var upphaflega stofnað 1968. „Nýr eigandi kom inn í reksturinn árið 2013 og rek- um við þetta nokkrir saman núna. Sjálfur er ég með meistarapróf og áratuga reynslu í bílaréttingum og bílasprautun. Við erum fimm sem störfum alla jafna á verkstæðinu. Við erum tveir með meistarapróf, tveir eru með sveinspróf og svo er einn lærlingur. Það er alltaf nóg að gera í þessum bransa og við erum líka að fá viðskiptavini alls staðar að af landinu. Hingað kom maður t.d. alla leið frá Raufarhöfn með bílinn sinn. Fólk er einnig að koma frá Ísafirði, Höfn, Egilsstöðum og víðar. Við tökum þessu að sjálfsögðu sem hrósi.“ Ljósmyndun og bílaréttingar: hin fullkomna tvenna Þess má geta að Jón er ekki bara bílaréttingamaður af Guðs náð heldur hefur hann hæfileika á fleiri sviðum. „Sjálfur er ég mikill fagurkeri og áhugamaður um ljós myndun. Ég ferðast um landið með hópi áhugaljósmyndara og tek ljósmyndir af náttúrunni.“ Margir hafa undr- ast það að á vefsíðu fyrirtækisins, bilasprautun.is er að finna dálk með fallegum ljósmyndum af íslenskri náttúru. „Ég er stoltur af þessum ljósmyndum og fannst liggja beint við að hafa þær með. Svo tek ég auðvitað ljósmyndir af verkefnum okkar þegar við á og þær má einnig sjá á síðunni. Þetta gerir vefsíðuna skemmtilegri og ég hef líka séð að dálkurinn hefur góð áhrif á við skiptin.“ Ljósmyndir Jóns má sjá á vefsíðu fyrirtækisins. Nánari upplýsingar má nálgast á bilasprautun.is Auðbrekka 27 – Dalbrekkumegin, 200 Kópavogur Sími 554-2510 Netfang: bilasprautun@bilasprautun.is Jökulsárlón Allar ljósmyndir eru teknar af Jóni Grétarssyni. Hverafell Fagrifoss

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.