Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Page 17
KYNNINGARBLAÐ
Sérblaðið
23. ágúst 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Bílasprautun og réttingar Auðuns:
Fagurkeri sem réttir
bíla og tekur ljósmyndir
Bílasprautun og réttingar Auðuns er gæðavottað réttingaverkstæði af Bílgreina-
sambandinu og tryggingafélögun-
um. „Við bjóðum upp á tjónamat,
bílaréttingar og bílasprautun. Einnig
koma til okkar einstaklingar með
bíla sem þarf að rétta og tökum við
að sjálfsögðu alltaf vel á móti öllum
viðskiptavinum með bros á vör,“ segir
Jón Grétarsson, einn eigenda fyrir-
tækisins.
Fyrirtækjaafsláttur
„Starfsemi okkar gengur aðallega
út á að þjónusta tryggingafélögin
með sprautun og réttingar á tjóna-
bílum, en við sjáum líka um bíla fyrir
fyrirtæki. Þá fá fyrirtækin afslátt af
þjónustu okkar sem og starfsmenn
fyrirtækjanna fyrir einkabíl sinn.“
Laða að sér viðskiptin alls staðar að
af landinu
Fyrirtækið er byggt á gömlum
grunni en það var upphaflega
stofnað 1968. „Nýr eigandi kom
inn í reksturinn árið 2013 og rek-
um við þetta nokkrir saman núna.
Sjálfur er ég með meistarapróf og
áratuga reynslu í bílaréttingum og
bílasprautun. Við erum fimm sem
störfum alla jafna á verkstæðinu. Við
erum tveir með meistarapróf, tveir
eru með sveinspróf og svo er einn
lærlingur. Það er alltaf nóg að gera
í þessum bransa og við erum líka
að fá viðskiptavini alls staðar að af
landinu. Hingað kom maður t.d. alla
leið frá Raufarhöfn með bílinn sinn.
Fólk er einnig að koma frá Ísafirði,
Höfn, Egilsstöðum og víðar. Við tökum
þessu að sjálfsögðu sem hrósi.“
Ljósmyndun og bílaréttingar: hin
fullkomna tvenna
Þess má geta að Jón er ekki bara
bílaréttingamaður af Guðs náð
heldur hefur hann hæfileika á fleiri
sviðum. „Sjálfur er ég mikill fagurkeri
og áhugamaður um ljós myndun.
Ég ferðast um landið með hópi
áhugaljósmyndara og tek ljósmyndir
af náttúrunni.“ Margir hafa undr-
ast það að á vefsíðu fyrirtækisins,
bilasprautun.is er að finna dálk með
fallegum ljósmyndum af íslenskri
náttúru. „Ég er stoltur af þessum
ljósmyndum og fannst liggja beint
við að hafa þær með. Svo tek ég
auðvitað ljósmyndir af verkefnum
okkar þegar við á og þær má einnig
sjá á síðunni. Þetta gerir vefsíðuna
skemmtilegri og ég hef líka séð að
dálkurinn hefur góð áhrif á við skiptin.“
Ljósmyndir Jóns má sjá á vefsíðu
fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar má nálgast á
bilasprautun.is
Auðbrekka 27 – Dalbrekkumegin,
200 Kópavogur
Sími 554-2510
Netfang:
bilasprautun@bilasprautun.is
Jökulsárlón
Allar ljósmyndir eru teknar
af Jóni Grétarssyni.
Hverafell
Fagrifoss