Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Side 36
36 FÓKUS 23. ágúst 2019
Patrekur
Jaime
blæs á
kjafta
sögurnar
Á
hrifavaldurinn Patrek-
ur Jaime nýtur mikilla
vinsælda á Instagram. Hann
lýsir sér sjálfum sem nítján
ára, samkynhneigðum strák á Ís-
landi sem fór út í samfélagsmiðla.
Patrekur er nýjasti gestur Föstu-
dagsþáttarins Fókuss og ræðir
um æskuna, kynhneigð, orðróm,
andlega heilsu og samfélagsmiðla.
Patrekur ólst upp á Akureyri og
segir okkur frá því hvernig hann
var í æsku.
„Ég var ekkert besti krakkinn,
ég var alveg með stæla. Ég hef
alltaf verið með stæla. Ég veit ekki
af hverju. Ég var samt mjög góður
í skóla og er enn þá mjög „bóka-
klár“.
Kom fyrst út sem
tvíkynhneigður
Patrekur segist aldrei hafa komið
beint út sem samkynhneigður,
en hann hafi fyrst komið út sem
tvíkynhneigður þegar hann var
unglingur.
„Ég sagði fólki að ég væri
tvíkynhneigður þegar ég var
fimmtán ára og var enn að átta mig
á hlutunum. Í tíunda bekk í grunn-
skóla var ég hrifinn af einhverjum
strák og það fréttist, en það sagði
enginn neitt við því, því ég var
krakki með stæla,“ segir Patrekur.
Hann segist ekki tengja við upp-
lifun sumra samkynhneigðra vina
sína, sem vissu kynhneigð sína
á barnsaldri. „Ég var alveg mjög
lengi að fatta að ég væri samkyn-
hneigður,“ segir Patrekur.
Sögusagnir um dópneyslu
Það getur tekið á að vera áber-
andi á samfélagsmiðlum og kljást
við athyglina sem því fylgir. Sögu-
sagnir eru Patreki kunnugar og
allra helst sá orðrómur að hann sé
í dópneyslu.
„Þetta byrjaði í MA, þá heyrði
ég það fyrst, að ég væri í spítt-
neyslu. Ég hef aldrei tekið spítt
og hræðist fíkniefni. Ég hef viður-
kennt það og ég reyki alveg gras
af og til, mér finnst það smá eins
og að drekka. Ég fíla það meira en
að drekka. Ég var orðin svo mikil
djammskvísa á tímabili, þar sem
ég var alltaf að drekka allar helgar,
djammaði allar helgar, þetta var
orðið að rútínu með vinahópnum.
Ég nennti því ekki lengur og byrj-
aði að reykja gras af og til í stað
þess að fara niður í bæ og drekka.
Mér finnst það miklu meira næs,
en fólk fór þá að ýkja eins og ég
væri í einhverjum skelfilegum
fíkniefnum,“ segir Patrekur.
„Orðrómurinn var orðinn mjög
grófur á tímabili. Mamma heyrði
af þessu og fjölskylda mín líka.
Þá hugsaði ég að þetta væri orðið
slæmt ef fjölskylda mín væri að
heyra að ég væri í spíttneyslu.“
Skrýtnasti orðrómurinn
Aðspurður hver sé skrýtnasti
orðrómurinn sem hann hafi heyrt
um sig, segir Patrekur það vera
orðróminn um að hann væri í raun
og veru ekki samkynhneigður.
„Það var alveg orðrómur í smá
tíma,“ segir Patrekur og bætir við
að hann viti ekki enn í dag á hverju
þessi orðrómur byggðist.
„Ég vissi ekki hvað ég átti að
segja af því að ég er svo ógeðslega
„gay“ að það meikar engan sens.
Ég var alveg; hvað meinar fólk!
Ég er svo ógeðslega kvenleg-
ur hommi, ég mála mig og geng í
kvenmannsfötum. Ef mér finnst ég
„hot“ í þeim þá fer ég í þau.“
Fáklæddur á Instagram
Aðspurður hvað sé það mest
„sjokkerandi“ sem hann hefur
gert á sínum miðli, verða myndir
af honum fáklæddum Patreki efst
í huga.
„Fólk er alltaf hissa en svo er
það líka svona: „Slay.“ Þetta er svo
mikið ég. Fyrsta svona myndin
sem ég deildi var ég í bæði nær-
buxum og bol og mér fannst þetta
ekki það tæpt, en það voru al-
veg 50 þúsund „impress“ á henni
og alveg 1.500 „likes“, og ég var
þá ekki vanur að fá yfir þúsund
„likes“. Eftir það pósta ég af og til
tæpri mynd, fólk kemur þá alltaf til
með að hneykslast smá.“
Einhleypur en samt ekki
Patrekur segist vera einhleypur, en
er með augun á einum ákveðnum
sem hann er að hitta.
Að vera áberandi persónuleiki
á samfélagsmiðlum hefur reynst
fyrri samböndum Patreks erfitt.
„Það er ógeðslega erfitt. Ég er
oftast að deita einhvern og segi
engum frá því, því mér finnst það
eyðileggja alltaf eitthvað þegar
það kemst í ljós,“ segir Patrekur.
„Ég er líka svo mikið með strák-
um sem eru ekki komnir út [úr
skápnum], þegar ég hugsa til baka
þá eru þetta alltaf gaurar sem eru
ekki komnir út og það er alltaf
enn þá erfiðara að vera að fela að
manneskjan sé hommi og svo að
hún sé að deita mig. Það er erfitt.“
Lifir á tekjunum frá samfélags-
miðlum
Samfélagsmiðlar eru fullt starf fyr-
ir Patrek og segir hann það fara eft-
ir hverjum mánuði fyrir sig hvað
hann þéni mikið.
„Það er svo misjafnt, það er það
sem er svona óþægilegt við þetta.
Þú veist aldrei hvað þú ert að fá,“
segir Patrekur.
Þó svo að hann vilji ekki gefa
okkur upp upphæð þá segir hann
að tekjurnar séu nær nokkrum
hundruðum þúsunda en ekki tug-
um þúsunda.
„Ég þarf alveg að geta lifað lúx-
uslífinu,“ segir Patrekur.
Varafyllingar
Eitt af því sem fylgir lúxuslífi Pat-
reks eru varafyllingar. Hann fékk
fyrstu fyllingarnar daginn eftir
átján ára afmælið sitt.
Í lok síðasta árs fór Patrekur
einu sinni í mánuði í þrjá mánuði í
varafyllingar.
„Það var þegar þær urðu al-
veg vel stórar,“ segir hann og vís-
ar í mynd sem hann deildi á
Instagram og skrifaði með henni:
„Lips bigger than your future“, eða
„varir stærri en framtíð þín“.
„Allt sem ég geri, það kemur
alltaf einhvern veginn skandall
út úr því og mér finnst alveg smá
gaman af því að flippa í fólki,
fólk þarf aðeins að slaka á,“ segir
Patrekur.
Fyrir utan að hafa fengið vara-
fyllingar hefur Patrekur látið laga
á sér eyrun, en hann segir þau
hafa verið mjög útstæð áður. Hann
langar að láta gera meira. „Mig
langar að fá mér fyllingar í kinn-
beinin og nefið,“ segir hann.
„Varir stærri en framtíð þín,“
skrifaði Patrekur með þessari
mynd á Instagram.
Greindist með þunglyndi í
byrjun árs
Patrekur Jaime tók sér hlé frá
samfélagsmiðlum í byrjun árs til
að huga að andlegri heilsu sinni.
Hann greindist með þunglyndi
og byrjaði í kjölfarið á lyfjum sem
tók tvo mánuði að byrja að virka
almennilega.
Hann segist hafa þurft að út-
skýra fjarveru sína fyrir fylgjend-
um, en á sama tíma voru sögu-
sagnir um meinta fíkniefnaneyslu
hans í fullum gangi og fjarvera
hans gaf þeim órðrómi byr í
seglinn.
„Í dag líður mér alveg ótrúlega
vel. Ég er mjög hamingjusamur,“
segir Patrekur.
Þú getur horft á viðtalið við
Patrek Jaime í heild sinni á DV.
is eða hlustað á það á Spotify,
Podcast, iTunes og öðrum hlað-
varpsrásum. n
n Lifir á tekjum frá samfélagsmiðlum: „Ég þarf alveg að geta lifað lúxuslífinu“
„Ég var ekkert
besti krakkinn, ég
var alveg með stæla.“
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
M
Y
N
D
: I
N
S
TA
G
R
A
M