Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 18
18 FÓKUS 24. maí 2019 aðrir útsölustaðir Epal - Laugavegi 70 EPAL - Harpa Airport fashion - Leifsstöð Reykjavik Raincoats LAUGAVEGUR 62 www.reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com Tónlistarhátíðir íslenska sumarsins Það er enginn skortur á tónlistarhátíðum fyrir tón- leikaglaða Íslendinga í ár, frekar en áður. Hér eru nokkrar af þeim sem haldnar verða yfir íslenska sumarið. Rokkhátíðin Eistnaflug fer fram í fimmtánda sinn í Neskaupstað 10.–13. júlí. Í ár er horfið aftur til upphafs hátíðarinnar og hún færð úr íþróttahúsinu og aftur í Egilsbúð, þar sem hátíðin fór fram árlega til ársins 2014. Munu hátíðargestir því geta þjapp- að sér enn betur saman og nær listamönnum en síðustu ár, en hátíðin er þekkt fyrir vináttu, velvild bæjarbúa, frábæra tónlist af þyngri gerðinni og hér kemst enginn upp með að vera fáviti, sem eru einkunnarorð hátíðar- innar. Fjöldi þekktra hljómsveita mun spila og má þar nefna Dimmu, Sólstafi, Brain Police, Meistara dauðans og engan annan en Páll Óskar, sem setur glimmerið yfir rokkið líkt og árið 2016. Herra Eistnaflug, Birgir Axelsson, mun síðan skella sér í gervi DJ Fahrenheit og loka há- tíðinni. Hjarta Hafnarfjarðar fer fram vikuna 8.–14. júlí í Bæjarbíói, en hátíðin færist í ár framar í dagatalinu og verður vika í stað fjögurra daga helgi. Listamenn eru að mestu úr Hafnarf- irði, en fram koma Á móti Sól, Björgvin Halldórsson, Dimma, Friðrik Dór, Jónas Sig og Vök. Tónleikar fara fram öll kvöld í Bæjarbíói og verður þeim varpað á skjá á útisvæði. Útiböll verða fimmtudag, föstudag og laugardag, DJ, trúba- dorar og alls kyns gleði. Secret Solstice fer fram í sjötta sinn í Laugardal 21.–23 júní og koma þar fram innlendar sem erlendar stór- stjörnur. Í fyrri hópn- um má nefna Hatara, Högna, JóaPé & Króla og Sólstafi, og í erlendu deildinni Black Eyed Peas, Martin Garrix Pussy Riot, Rita Ora og Robert Plant. Nýir eigendur eru að hátíð- inni í ár og verður hún með breyttum áhersl- um, styttri í dagafjölda, auk þess að ljúka fyrr hvert kvöld en áður. Áherslan er lögð á fjöl- skylduvæna skemmtun og fá börn yngri en 12 ára frítt á hátíðina. LungA, listahátíð ungs fólks verður haldin á Siglufirði 19.–21. júlí. Bærinn mun iða af lífi, en markmið Lunga er að efla áhuga ungs fólks á menningu og listum og kjarni hátíðarinnar er fjölbreyttar listasmiðjur undir stjórn þekktra og minna þekktra listamanna. Aron Can, Bríet, Hatari og Mammút eru á meðal þeirra sem koma fram. Hér er taldar upp helstu/stærstu tónlistarhátíðir sumarsins, einnig má benda á fjölda tónlistaratriða á hinum ýmsu bæjarhátíð- um, sem hefjast með Sjóaranum síkáta í Grindavík 30. maí, tónleik- um sem fara fram um allt land, og heimsóknum erlendra stórstjarna til landsins líkt og Duran Duran í júní og Ed Sheeran í ágúst. Innipúkinn fer fram um verslun- armannahelgina 2.–4. ágúst í Reykja- vík, en hátíðin hef- ur verið haldin árlega frá árinu 2002. Ekki er enn búið að tilkynna hverjir koma fram, en fjölbreytni og gleði er ávallt í fyrirrúmi og verður engin breyting í ár. Aðstandendur Inn- ipúkans eiga enn eftir að upp- lýsa hvar hátíðin fer fram í ár, en síðustu ár hefur hún farið fram í Kvos- inni á tónleikastöðun- um Húrra og Gaukn- um. Árin þar á undan hefur hún m.a. farið fram í Iðnó, Grand rokk og í Breiðholti. Boðið er upp á karnivalstemningu að degi til, fata- og myndlistarmark- að, matarvagna og plötusnúða og fjölbreytta tónleikadagskrá á kvöldin. Eistnaflug Innipúkinn DIMMA MYND: ÓLÖF ERLA EINARSDÓTTIR/SVART PÁLL ÓSKAR. LJÓS- MYND: DV/HANNA BIRGIR, DJ FAHRENHEIT, Á MEXÍKÓSKRI SÓLARSTRÖND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.