Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 28
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ Heilbrigð þarmaflóra er hornsteinn góðrar heilsu VITA BIOSA: Heilbrigð þarmaflóra er ein af grunnstoðum góðrar heilsu. Án hennar getur melting, upptaka og nýting næringarefna ekki gengið eðlilega fyrir sig. Í meltingar­ færunum býr einnig stór hluti ónæmis kerfis okkar og flóran leikur þar stórt hlutverk í að verja okkur fyrir óboðnum gestum sem geta valdið sýkingum og öðrum óskunda. Það er því gríðarlega mikilvægt að hlúa vel að meltingarflórunni. Margt sem getur raskað jafnvægi þarmaflórunnar „Meltingarvandamál eru gríðarlega algeng og líklegt er að ójafnvægi þarmaflórunnar eigi þar oft stóran hlut að máli. Í fullkomnum heimi væri þarmaflóran í fullkomnu jafnvægi án þess að við þyrftum að hafa nokkuð fyrir því, en ótal margt getur komið henni úr jafnvægi. Sýklalyf, hormóna­ lyf, streita, mengun og næringars­ nautt mataræði eru sennilega verstu óvinir þarmaflórunnar og eitthvað ef ekki allt af framantöldu hefur verið hluti af lífi flestra,“ segir Ösp Viðars­ dóttir næringarþerapisti. Rannsóknir hafa sýnt hversu víðtæk áhrif þarmaflóran hefur í líkamanum: Öll þarmastarfsemi veltur á góðri flóru, þ.m.t. upptaka næringarefna, nýting þeirra og úrvinnsla n Ónæmiskerfið – ef þarmaflóran er í ójafnvægi eru varnir líkamans veikari n Geðheilsa – rannsóknir hafa sýnt fram á sterkt tengsl milli ástands þarmaflóru og ýmissa geðrænna vandamála eins og kvíða og þunglyndis n Efnaskipti – þarmaflóran gæti verið áhrifaþáttur í offitu og sykursýki II n Húðin – bólur, exem og önnur húðvandamál geta verið merki um óheilbrigða þarmaflóru Kemur þarmaflórunni í lag Það er ekki að ástæðulausu að Vita Biosa hafa verið mest seldu meltingargerlar í Danmörku í meira en 13 ár. Um er að ræða náttúrulegan góðgerladrykk, unninn úr 19 lífrænt ræktuðum jurtum sem eru gerjaðar með vinveittum gerlum. Við gerjunina margfaldast gerla­ fjöldinn svo úr verður öflugur góð­ gerladrykkur sem nærir og styrkir okkar eigin þarmaflóru. Jurtirnar sem eru notaðar eru: anís, basil, grikkjasmári, dill, einir, fennel, yllir, engifer, hvönn, kerf­ ill, lakkrísrót, oregano, piparmynta, steinselja, kamilla, rósmarín, salvía, netla og timjan. „Notaðir eru sex mismunandi gerl­ ar við gerjunina, en við hana myndast mjólkursýra og svo ediksýra. Útkoman hefur PH gildið 3,5 en þetta lága sýrustig skýrir geymsluþol Vita Biosa og kemur í veg fyrir að skaðlegar örverur geti myndast í vökvanum. Þá geymist drykkurinn í tvo mánuði í kæli eftir opnun.“ Gerlarnir sem við notum eru eftirfarandi: n Bifidobacterium animalis subs. lactis BB12 n Lactobacillus acidophilus LA5 n Lactobacillus paracasei subsp. paracasei L.casei 431 n Lactococcus lactis subsp.lactis n Lactococcus lactis subsp.lactis biovar diacetylactis n Leuconostoc pseudomesenteroides n Streptococcus thermophilus (skað­ laus tegund) Vita Biosa er sykur­, glúten­ og mjólkurlaus vara sem hentar börnum og fullorðnum. Gott er að taka 20–30 ml tvisvar á dag eða oftar í kringum máltíðir. Bragðið er milt og frískandi og örlítið súrt. „Það er til dæmis sniðugt fyrir þá sem vilja ekki drekka Vita Biosa óblandaðan, að blanda hann út í vatn, safa eða út í morgun­ bústið,“ segir Jóhann. Vita Biosa er snilld í morgunbústið! Fæst í heilsuverslunum, apótekum, Fjarðarkaupum og vefverslun Organic.is. ORGANIC:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.