Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 25
KYNNINGARBLAÐ 24. maí 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Hvert skal leita? Við byrjuðum að bjóða Firmavörn+ fyrir ríflega ári og viðtökurnar hafa satt að segja verið frábærar,“ segir Elsa Einarsdóttir, sölustjóri Securitas, um leið og hún opnar appið sem fylgir þjónustunni til að sýna okkur helstu nýjungarnar og virknina. „Snjalltækjavæð- ingin, kröftugir innviðir og hröð þróun öryggisstaðla hjá okkur og samstarfsaðilum okkar gera okk- ur kleift að bjóða fyrirtækjum af öllum stærðum upp á hluti sem fyrir fáeinum árum sáust aðeins í Bond-myndum og voru kannski bara á færi stórfyrirtækja að setja upp og nýta.“ Auðveld yfirsýn „Hjartað í Firmavörn+ er app og hugbúnaður frá Alarm.com sem er eitt fremsta og öruggasta fyrirtæki heims á þessu sviði og þjónar milljónum notenda um allan heim,“ segir Elsa. Appið og stjórnborð Firmavarnar+ gefur yfirsýn yfir allt það sem tengist kerfinu, bæði skynjara, mynda- vélar og stjórnbúnað tækja. „Sjáðu,“ segir Elsa og sýnir okkur skjáinn með Ωstjórnborðinu, „hér sé ég að bak dyrnar eru lokaðar og læstar og hér sést að þær voru opnaðar síðast klukkan tíu mínútur yfir ellefu í morgun. Svo getum við litið inn hjá sölu- deildinni með því að smella á myndavélina hér og séð hvað er í gangi. Og ef við værum veitinga- staður eða matvælafyrirtæki þá gætum við skoðað hitastigið í kælunum eða frystiklefanum og hvort ofninn er nokkuð að ofhitna. Þetta er hægt að gera hvar sem stjórnandinn er stadd- ur og hefur það augljósa kosti þegar um er að ræða fyrirtæki með fleiri en eina starfsstöð, til dæmis. Og í Firmavörn+ er hægt að fá margvíslegar skýrsl- ur og yfirlit úr kerfinu sem geta auðveldað viðhald verkferla og hjálpað til við að lækka rekstrar- kostnað.“ Öryggi á heimsmælikvarða Þegar Elsa sýnir okkur rauntíma- spilun úr myndavélum úr næsta rými í fyrirtækinu vakna auðvitað spurningar um öryggi þessara upplýsinga. Getur ekki hver sem er hakkað sig inn í þetta? „Nei, það er af og frá,“ segir Elsa. „Öll gögn sem fara á milli í kerfinu eru dulkóðuð og eins örugg og hugs- ast getur í þjónustu af þessu tagi. Við heyrum stundum af fólki sem kaupir sér myndavél á netinu, tengir hana og hleður niður hugbúnaði sem er langt frá því að vera læstur á neinn hátt. Það fólk gæti allt eins búið í glerhúsi eða sent út beint í opinni dagskrá á netinu. Öryggisstaðlar Alarm. com eru með því strangasta sem gerist og mikill munur á þeim og því sem fylgir með ódýrasta bún- aðinum á Alibaba.“ Elsa bætir svo við að kerfið sé alger bylting í aðgengismálum, því auðvelt sé að stofna nýja notendur og klæðskerasauma hvaða rýmum þeir hafi aðgang að og á hvaða tíma sólarhringsins. Eins er auð- velt að láta starfsfólk sem hættir hjá fyrirtækinu „skila lyklunum“ með því að loka á aðgang þeirra með fáeinum smellum í stjórn- borðinu. Sameinar öryggi og þægindi Það hafa orðið miklar breytingar á öryggisþjónustu undanfarin misseri með tilkomu Firmavarn- ar+ og einstaklingsþjónustunum Heimavörn+ og Sumarhúsavörn+. Elsa leggur áherslu á að app og stjórnborð á netinu sé frábær viðbót við hefðbundna öryggis- þjónustu, en komi ekki í staðinn fyrir hana. „Virðið fyrir viðskiptavini okkar er bæði hagræðið og yfirsýnin sem fæst með Firmavörn+ og svo auðvitað þjónustan og öryggið sem stjórnstöð Securitas veitir og þangað berast líka öll boð um frávik. Ef stjórnandi fyrirtækis fær boð frá kerfinu um að gluggi sé opinn þá getur hann stopp- að útkall öryggisvarða og lokað glugganum sjálfur. En í þeim tilvikum sem eitthvað alvarlegra er á ferðinni virkjast viðbragðsá- tak Securitas og öryggisbílar fara á vettvang samkvæmt fyrirfram ákveðnum ferlum. Það gerir lítið gagn að geta séð það alla leið frá Tenerife að vatnslögnin fór í sundur á lagernum í Kópavogi ef enginn er til að fara strax á stað- inn og forða tjóni,“ segir Elsa og okkur er ekki alveg ljóst hvort hún er að gera að gamni sínu eða hvort þetta hefur gerst í alvör- unni. En það er ljóst að betra er að taka enga áhættu. Firmavörn+ slær í gegn hjá fyrirtækjaeigendum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.