Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 8
8 24. maí 2019FRÉTTIR
Market á þremur stöðum í
Reykjavík og Kópavogi. Hús
leit var gerð í verslununum og
lagt hald á eignir. Samkvæmt
ársreikningum hafði velta fé
lagsins tvöfaldast á einu ári, úr
250 milljónum í 500. Eigend
urnir voru Arkadiusz Niescier og
Arkadiusz Maciej Latowski.
Greint var frá því að fimm Pól
verjar hefðu verið handteknir í
lögregluaðgerðunum. Voru þeir
allir vel þekktir af lögregluyfir
völdum í Póllandi og einhverjir
höfðu setið inni. Einnig höfðu ein
hverjir þeirra hlotið dóma hér á
landi fyrir fíkniefnamisferli.
Karl Steinar sagði mál
ið skýrasta dæmið um
fjölþætta brotastarf
semi sem Íslendingar
hefðu staðið frammi
fyrir.
„Hvorki fugl né
fiskur“
Rannsókn og yfir
heyrslur héldu áfram um vorið
og í júlí var greint frá því að um
fimmtán manns hefðu stöðu sak
bornings í málinu. Seinna urðu
þeir 28. Ekki væru öll málin kom
in til ákærusviðs. Steinbergur
Finnbogason, verjandi annars
eiganda verslunarinnar, sagði hins
vegar við fjölmiðla að málið hefði
minnkað töluvert í umfangi og
væri „hvorki fugl né fiskur miðað
við þá alþjóðlegu skrautsýningu
sem sett var upp og kölluð blaða
mannafundur á sínum tíma.“
Einnig sagði hann að upplýs
ingarnar um fíkniefnafundinn
hefðu verið mjög á reiki. Hvorki
hefðu fundist fíkniefni hér á Ís
landi eða í Póllandi. Verslanir
Euro Market væru einnig enn í
fullum rekstri og enga breytingu
á merkja á rekstrinum fyrir og eft
ir aðgerðirnar, utan þess að posa
kerfinu var lokað tímabundið. Þær
eignir sem lagt hefði verið hald á
væru að mestu íbúðir í Breiðholti
að verðmæti um 200 milljóna en
á þeim hvíldu lán upp á 170 millj
ónir. Haldlagðar eignir væru því í
raun í kringum 30 milljónir.
Þá hafi lögreglan gengið furðu
lega hart fram í málinu og meðal
annars tekið húsleit upp á mynd
band hjá fjölskyldu einni í Kópa
vogi og sent umrætt myndband
út til pólskra fjölmiðla í trássi við
lög. Meðalhófsreglu hafi heldur
ekki verið gætt við gæsluvarðhald
og dómstólar snúið ákvörðunum
lögreglu í tvígang. Velti Stein
bergur því fyrir sér hvort að þjóð
erni mannanna væri að flækjast
fyrir íslensku lögreglunni eða að
lögreglan hefði talið sig þurfa að
standa við stóru orðin eftir „digur
barkalegar lýsingar í byrjun.“
Framsali snúið við
Í október var reynt að framselja
Latkowski, meintan höfuðpaur í
málinu, til Póllands að beiðni þar
lendra yfirvalda. En hann hafði
verið til rannsóknar hér vegna
sömu brota og engin ákæra kom
in fram. Héraðsdómur staðfesti
framsalsúrskurð dómsmálaráðu
neytisins en Landsréttur sneri
honum við. Um þetta leyti sagði
Karl Steinar að málið væri „á loka
metrunum.“ Önnur framsals
beiðni var gerð og farbann yfir
Latkowski framlengt.
Í janúar á þessu ári hafnaði
Landsréttur því að forsvarsmenn
Euro Market fengju fimmtán millj
ónir til baka af fé sem lögreglan
hefði lagt hald á. Voru þetta bæði
bankainnistæður og reiðufé sem
grunur lék á að hefði verið þvætt
að. Höfðu alls 28 milljónir verið
millifærðar frá reikningum í eigu
grunaðra inn á reikninga hjá Euro
Market sem lán en lögreglan taldi
sig hvergi sjá að lánin hefðu ver
ið endurgreidd og skýringar á því
hvaðan peningarnir komu ótrú
verðugar.
Um miðjan maí komst Euro
Marketmálið loksins inn á borð
ákærusviðs Lögreglunnar á höfuð
borgarsvæðinu. Verður þar tekin
ákvörðun um hvort að málið telj
ist fullrannsakað og hvort saksókn
verði gerð. Ekki liggur fyrir hvenær
málið fer frá ákærusviði.
„Allt lúslesið“
Þórður Áskell Magnússon var
dreginn inn í Euro Marketmálið
og sætti ítarlegri rannsókn. Hann
ræddi við DV um málið eftir að
hann opnaði sig nýlega á samfé
lagsmiðlum um reynsluna.
„Fyrir rúmu ári var gerð árás á
heimilið mitt og fyrirtæki af Rann
sóknarlögreglu ríkisins. Ég var
sjálfur í Bandaríkjunum, en ekki
færri en átta lögreglumenn sáu til
þess að samtímis væri farið í fyrir
tækið mitt, bókhald allt fjarlægt,
heimili mitt sett á hvolf, lögreglu
menn fóru með heimild í bank
ann til að brjótast inn í bankahólf
sem ég var með þar á leigu. Teknar
voru myndir af öllum skartgripum
konunnar, erfðaskránni minni, og
allar eigur mínar skráðar. Ríkis
skattstjóra var sent allt með kröfu
um að bókhaldið yrði lúslesið.“
Þórður hefur undanfarna tvo
áratugi rekið löndunarþjónustuna
Djúpaklett ehf. á Grundarfirði
en fyrirtækið sinnir þjónustu við
sjávar útveg, skip og fiskvinnslur.
Forsaga málsins er sú að árið
2013 lánaði Þórður Arek Niescier,
fyrrnefndum eiganda Euro
Market, 18 milljónir í tengslum
við stofnun á bílaleigu. Eiginkona
Þórðar er tengd Arek fjölskyldu
böndum, en þau eru bræðrabörn
og ólust upp saman í Póllandi.
„Arek þessi reyndist Dóru konu
minni alger klettur þegar ég lenti
í mjög alvarlegu mótorhjólaslysi
þann 30. júní 2012, mér var ekki
hugað líf og Arek lánaði okkur
allt sem hann átti á þessum tíma,
Dóra þurfti að borga laun og ýmis
legt og ég var að deyja uppi á spít
ala. Hann átti því stóra hönk upp í
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða
Þórður
Áskell
Magnússon
Hreinsaður af
Ríkisskattstjóra.
Steinbergur
Finnbogason
Verjandi í málinu.
„Daginn sem
þessu lýkur þá
mun ég hefja málsókn
Rannsókn á heimili Allt var
skoðað í þaula.