Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 26
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
Dreymir þig um að keyra
ekta kappakstursbíl?
GT AKADEMÍAN:
Það eiga margir sér þann draum að finna adrenalínið streyma á ógnarhraða um æðarnar við
það að aka alvöru kappakstursbíl eftir
einhverri af frægustu kappaksturs-
brautum heimsins. Það er vel hægt
að dýfa tánni í þann draum með því
að fá sér flottan kappakstursleik í
tölvuna eða taka í stýrið á gæða Go
Kart-bíl. En það er hægt að komast
enn nær þessum draumi með því
að skella sér í GT Akademíuna, eða
GTA. „Við erum með átta ökuherma
í hæsta gæðaflokki þar sem menn
komast ókennilega nálægt því að
upplifa þennan algerlega óraunhæfa
draum, sem er kannski ekki svo
óraunhæfur í dag,“ segir Hinrik hjá
GTA.
Tilvalið í hópefli og
fyrirtækjakeppnir
Hægt er að samtengja hermana
þannig að ef um er að ræða t.d.
hópefli, geta allir átta keppendurnir
verið saman á brautinni í einu. „Við
höfum haft allt að 24 manna hópa
í fyrirtækjaskemmtunum og hópefli
sem er svona stærsti hópur sem við
getum boðið upp á. Þónokkur fyrir-
tæki hafa verið með mótaraðir hjá
okkur til þess að efla starfsandann og
svo hafa samkeppnisfyrirtæki haldið
keppnir sín á milli. Þetta hefur gefist
ótrúlega vel og allir virkilega ánægðir.
Það eru líka margir sem komast að
því að þeim finnst furðu gaman að
taka í stýrið hjá okkur. Svona ekta
laumuökuþórar.“
Langar þig að prófa að keyra
alvöru kappakstursbíl?
„Í herminum er að finna 60 brautir
sem allar eru lazerskannaðar svo að
þær eru nákvæm eftirmynd af alvöru
brautum, upp á millimetra. Brautirnar
er hægt að aka í mismunandi
lengdum og við mismunandi að-
stæður. Þá er hægt að láta rigna eða
stytta upp, hafa snjókomu, hálku og
fleira. Möguleikarnir eru nær enda-
lausir. Lengsta brautin í forritinu er
25 kílómetra löng og nefnist Nür-
burgring en hana er að finna í vest-
anverðu Þýskalandi. Þess má geta
að það er keppni í gangi hjá GTA um
stysta tímann í 20 kílómetra útgáfu
brautarinnar. Þá keyrirðu í 30 eða
60 mínútur og reynir að ná sem
bestum tíma. Eins og er þá er besti
tíminn 6:30.841, sem er aðeins einni
sekúndu hægari en heimsmethafinn
í hermikappakstri hefur ekið brautina
á. Þannig að það má greinilega enn
bæta metið.“
Ótrúlega raunverulegt
„Að keyra í ökuhermunum okkar er
það allra næsta sem maður kemst
að því að keyra alvöru kappakstursbíl
á ekta kappakstursbraut. Þrír stórir
skjáir eru í kringum ökumanninn sem
situr í sérstökum stól með hreyfi-
búnaði. Stóllinn svarar því sem er að
gerast í bílnum á brautinni. Stóllinn
færist upp, niður og hallar þegar
ökumaðurinn stýrir bílnum. Ökumað-
urinn finnur bókstaflega fyrir því sem
er að gerast í herminum. Einnig fer
sætið til hliðar ef bíllinn missir grip
og þú finnur í stýrinu ef bíllinn læsir
dekkjunum. Þess má geta að GTA
er með úrval af sýndarveruleika-
gleraugum sem hægt er að leigja og
nota á staðnum.
Það eina sem ekki er hægt að líkja
nákvæmlega eftir í herminum er
miðflóttaaflið, þ.e. þegar bíllinn hrað-
ar á sér eða hægir og svo auðvitað
lífshættan, en í herminum er engin
hætta á að slasast ef þú klessir á
eða veltir bílnum. Hermikappakstur
á þessu kaliberi hefur beina
tengingu inn í mótorsport í raun-
heimi. Menn hafa fengið ráðningu
hjá kappakstursliðum út frá því að
hafa staðið sig vel á ökuherma-
mótum; t.d. Jann Mardenborough
sem keppti fyrir Nissan í erfiðasta
kappakstri heims, Le Mans. Einnig eru
mörg kappaksturslið sem nota svona
herma til að æfa ökumenn sína fyrir
kappakstur.
Við stofnuðun fyrirtækið á bak við
GTA fyrir um ári, og einni meðgöngu
seinna, þann 15. desember, opnuðum
við dyrnar. Þetta hefur undið mjög
mikið upp á sig enda margir sem
biðu spenntir eftir því að geta prófað
alvöru ökuhermi hér á Íslandi. Þann
26. maí höldum við fjórða mótið af
sex í mótaröð til Íslandsmeistaratitils.
Sex keppnir til stiga eru haldnar og
átta stigahæstu keppendur keppa til
úrslita um Íslandsmeistaratitil. Stefnt
er að því að fimm efstu ökuþórar
Íslandsmóts taki þátt í Norðurlanda-
móti í hermikappakstri sem haldið
verður í október á vegum Alþjóða
akstursíþróttasambandsins. Kepp-
endur skulu vera meðlimir aksturs-
klúbbs innan AKÍS.
GT Akademían hefur haldið eitt
10 vikna akstursíþróttanámskeið
fyrir ungmenni. Það gekk mjög vel
og tekur einn nemendanna nú þátt
í Íslandsmótinu. Við stefnum á að
halda styttri námskeið nú í sumar.
Markmið námskeiðanna er að kenna
ungmennum undirstöðuatriðin í
mótorsporti, kenna íþróttamanns-
lega hegðun og þær reglur sem eru í
sportinu, svo að þau séu í stakk búin
til að taka þátt í keppnum á netinu og
þegar fram líða stundir, keppnum í
raunheimi.“
Nánari upplýsingar um GT
Akademíuna má nálgast á vefsíð-
unni gta.is
Ármúli 23, 108 Reykjavík
Sími: 537-2400
Vefpóstur: gta@gta.is
Opið alla daga frá 12:00 til 20:00