Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 26
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ Dreymir þig um að keyra ekta kappakstursbíl? GT AKADEMÍAN: Það eiga margir sér þann draum að finna adrenalínið streyma á ógnarhraða um æðarnar við það að aka alvöru kappakstursbíl eftir einhverri af frægustu kappaksturs- brautum heimsins. Það er vel hægt að dýfa tánni í þann draum með því að fá sér flottan kappakstursleik í tölvuna eða taka í stýrið á gæða Go Kart-bíl. En það er hægt að komast enn nær þessum draumi með því að skella sér í GT Akademíuna, eða GTA. „Við erum með átta ökuherma í hæsta gæðaflokki þar sem menn komast ókennilega nálægt því að upplifa þennan algerlega óraunhæfa draum, sem er kannski ekki svo óraunhæfur í dag,“ segir Hinrik hjá GTA. Tilvalið í hópefli og fyrirtækjakeppnir Hægt er að samtengja hermana þannig að ef um er að ræða t.d. hópefli, geta allir átta keppendurnir verið saman á brautinni í einu. „Við höfum haft allt að 24 manna hópa í fyrirtækjaskemmtunum og hópefli sem er svona stærsti hópur sem við getum boðið upp á. Þónokkur fyrir- tæki hafa verið með mótaraðir hjá okkur til þess að efla starfsandann og svo hafa samkeppnisfyrirtæki haldið keppnir sín á milli. Þetta hefur gefist ótrúlega vel og allir virkilega ánægðir. Það eru líka margir sem komast að því að þeim finnst furðu gaman að taka í stýrið hjá okkur. Svona ekta laumuökuþórar.“ Langar þig að prófa að keyra alvöru kappakstursbíl? „Í herminum er að finna 60 brautir sem allar eru lazerskannaðar svo að þær eru nákvæm eftirmynd af alvöru brautum, upp á millimetra. Brautirnar er hægt að aka í mismunandi lengdum og við mismunandi að- stæður. Þá er hægt að láta rigna eða stytta upp, hafa snjókomu, hálku og fleira. Möguleikarnir eru nær enda- lausir. Lengsta brautin í forritinu er 25 kílómetra löng og nefnist Nür- burgring en hana er að finna í vest- anverðu Þýskalandi. Þess má geta að það er keppni í gangi hjá GTA um stysta tímann í 20 kílómetra útgáfu brautarinnar. Þá keyrirðu í 30 eða 60 mínútur og reynir að ná sem bestum tíma. Eins og er þá er besti tíminn 6:30.841, sem er aðeins einni sekúndu hægari en heimsmethafinn í hermikappakstri hefur ekið brautina á. Þannig að það má greinilega enn bæta metið.“ Ótrúlega raunverulegt „Að keyra í ökuhermunum okkar er það allra næsta sem maður kemst að því að keyra alvöru kappakstursbíl á ekta kappakstursbraut. Þrír stórir skjáir eru í kringum ökumanninn sem situr í sérstökum stól með hreyfi- búnaði. Stóllinn svarar því sem er að gerast í bílnum á brautinni. Stóllinn færist upp, niður og hallar þegar ökumaðurinn stýrir bílnum. Ökumað- urinn finnur bókstaflega fyrir því sem er að gerast í herminum. Einnig fer sætið til hliðar ef bíllinn missir grip og þú finnur í stýrinu ef bíllinn læsir dekkjunum. Þess má geta að GTA er með úrval af sýndarveruleika- gleraugum sem hægt er að leigja og nota á staðnum. Það eina sem ekki er hægt að líkja nákvæmlega eftir í herminum er miðflóttaaflið, þ.e. þegar bíllinn hrað- ar á sér eða hægir og svo auðvitað lífshættan, en í herminum er engin hætta á að slasast ef þú klessir á eða veltir bílnum. Hermikappakstur á þessu kaliberi hefur beina tengingu inn í mótorsport í raun- heimi. Menn hafa fengið ráðningu hjá kappakstursliðum út frá því að hafa staðið sig vel á ökuherma- mótum; t.d. Jann Mardenborough sem keppti fyrir Nissan í erfiðasta kappakstri heims, Le Mans. Einnig eru mörg kappaksturslið sem nota svona herma til að æfa ökumenn sína fyrir kappakstur. Við stofnuðun fyrirtækið á bak við GTA fyrir um ári, og einni meðgöngu seinna, þann 15. desember, opnuðum við dyrnar. Þetta hefur undið mjög mikið upp á sig enda margir sem biðu spenntir eftir því að geta prófað alvöru ökuhermi hér á Íslandi. Þann 26. maí höldum við fjórða mótið af sex í mótaröð til Íslandsmeistaratitils. Sex keppnir til stiga eru haldnar og átta stigahæstu keppendur keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitil. Stefnt er að því að fimm efstu ökuþórar Íslandsmóts taki þátt í Norðurlanda- móti í hermikappakstri sem haldið verður í október á vegum Alþjóða akstursíþróttasambandsins. Kepp- endur skulu vera meðlimir aksturs- klúbbs innan AKÍS. GT Akademían hefur haldið eitt 10 vikna akstursíþróttanámskeið fyrir ungmenni. Það gekk mjög vel og tekur einn nemendanna nú þátt í Íslandsmótinu. Við stefnum á að halda styttri námskeið nú í sumar. Markmið námskeiðanna er að kenna ungmennum undirstöðuatriðin í mótorsporti, kenna íþróttamanns- lega hegðun og þær reglur sem eru í sportinu, svo að þau séu í stakk búin til að taka þátt í keppnum á netinu og þegar fram líða stundir, keppnum í raunheimi.“ Nánari upplýsingar um GT Akademíuna má nálgast á vefsíð- unni gta.is Ármúli 23, 108 Reykjavík Sími: 537-2400 Vefpóstur: gta@gta.is Opið alla daga frá 12:00 til 20:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.