Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 40
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
Gullsmiðir Jens hafa frá stofnun fyrirtækisins árið 1964 verið þekktir fyrir djarfa og fram-
sækna hönnun sem þótt hefur áber-
andi í skartgripatísku Íslendinga. „Við
erum stolt af hönnun okkar sem er
innblásin af þeirri ríku sögu og reynslu
sem við höfum öðlast frá upphafi
þessa litla fjölskyldufyrirtækis,“ segir
Ingibjörg Snorra, framkvæmdastjóri
Jens.
Gaman að gleðja
„Við leggjum okkur fram við að kynn-
ast þörfum viðskiptavinanna og veita
þeim framúrskarandi þjónustu. Það
skemmtilega við þennan bransa að í
nánast öllum tilvikum er fólk að leitast
við að gleðja einhvern náinn sér og
það er ofboðslega skemmtilegt að fá
að taka þátt í því. Jólagjafir, ferm-
ingargjafir, útskriftargjafir, afmælis-
gjafir, giftingarhringar, morgungjafir
og önnur tilefni sem eru til þess gerð
að dekra við einhvern sem manni
þykir vænt um. Það er virkilega
gaman að vinna hjá litlu fyrirtæki þar
sem maður snertir á öllum flötum
rekstursins. Mér finnst líka virkilega
gaman að vera í búðunum og vinna
með starfsfólkinu okkar.“
Hjá Jens starfa hæfileikaríkir
hönnuðir með margvíslega menntun
að baki. Berglind Snorra er þriðja
kynslóð gullsmiða, hún er einnig
húsgagna- og vöruhönnuður. Jón
Snorri Sigurðsson hefur starfað
hjá fyrirtækinu frá stofnun þess og
hefur haslað sér völl sem gullsmiður
og skúlptúristi. Feðginin Snorri og
Berglind hafa saman hannað inn-
réttingar og útlit verslananna og
hafa því allar þrjár búðirnar í Kringlu,
í Smáralind og á Granda fengið nýtt
og nútímalegt útlit sem er vert að
skoða. Berglind hefur einnig hannað
fallegar öskjur og umbúðir utan um
skartgripina og gerir það gjöfina enn
glæsilegri.
Einstök úr og norðurljós
„Við vinnum mest með silfur og gull,
íslenska náttúrusteina og dem-
anta. Við erum einnig að handsmíða
gjafavöru sem hefur slegið algjörlega
í gegn og er gaman að geta boðið
upp á í bland við skartgripina. Svo var
að koma glæný úralína frá Jens sem
kallast Norðurljós. Við hönnun úranna
voru gæði höfð í fyrirrúmi. Úrið státar
af svissnesku úrverki og er búið til úr
safírgleri og hágæða stáli. Skífan er
úr svartri perlu sem minnir á norður-
ljósin, sem gerir hana einstaka, þar
sem engar tvær eru alveg eins.“
Hannaðu þitt eigið hálsmen
„Allra vinsælasta nýjungin hjá okk-
ur eru hálsmen sem heitir Gára.
Hálsmenið myndar hring sem táknar
gáru. Gárurnar er hægt að fá í fjórum
stærðum sem hver fellur inn í aðra
eins og gárur á vatni. Gárurnar koma
í margs konar útfærslu með nánast
endalausum samsetningarmöguleik-
um. Þannig er hægt að láta samsetn-
inguna tákna eitthvað persónulegt,
eins og fjölskyldumeðlimi, vini eða
tímamót. Hægt er að fá Gáru úr
mismunandi málmum og með mis-
munandi steinum, svo maður getur
hannað sitt eigið hálsmen.“
Hönnunarrisi í skandinavískri
skartgripagerð
„Við erum líka stolt af því að vera
orðin eini söluaðili Georg Jensen
skartgripa á Íslandi. Í Kringlunni og
Smáralind erum við með glæsi-
legt úrval af tímalausum og fal-
legum skartgripum frá þessum
hönnunarrisa í skandinavískri skart-
gripahönnun.
Hjá Jens starfar gott fólk, sem
sinnir viðskiptavinum okkar og ráð-
leggur á faglegan hátt. Gott starfs-
umhverfi og skemmtileg stemning
einkennir dagana okkar bæði í
búðunum og á verkstæði Jens. Arf-
leifð okkar og saga drífur áfram sköp-
unargáfu okkar og við munum áfram
smíða vandaða skartgripi eftir eigin
hönnun – kynslóð eftir kynslóð.“
Netverslunin okkar https://www.
jens.is/ hefur sótt í sig veðrið
undanfarin ár, vöruúrvalið er gott
og einfalt er að panta í gegnum
vefsíðuna.
„Það eru allir komnir
hingað til að gleðja
einhvern nákominn sér“
JENS: