Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 10
10 24. maí 2019FRÉTTIR bakið á okkur. Það, sem og það að ég þekki Arek og treysti honum, var ástæða þess að ég lánaði hon- um þessa peninga.“ Líkt og Þórður bendir á var dregin sú ályktun að hann væri að þvo fíkniefnapeninga. Ekki hafi verið horft á þá staðreynd að Þórð- ur lánaði Arek fjármagnið löngu áður en verslanir Euro Market voru stofnaðar. „Þetta á að kallast peninga- þvætti. Ég gaf þessar 18 milljónir árlega upp á skattframtali frá 2013 til 2017. Hver stundar peninga- þvætti og gefur það upp til skatts, ég bara spyr?“ Níu með stöðu glæpamanna Níu einstaklingar sem tengjast Þórði fengu einnig réttarstöðu grunaðs manns í tengslum við rannsókn málsins. Eiginkona hans og synir hans tveir voru köll- uð til yfirheyrslu. Bræður eigin- konu hans og kona annars þeirra voru einnig yfirheyrð en þau voru í vinnu hjá Þórði á árum áður. Þá drógust bókhaldari Þórðar og pólskur vinur hans á Grundarfirði einnig inn í málið. Við yfirheyrslur var eiginkona Þórðar til að mynda spurð hvers vegna þau hjón væru hvort með sinn bankareikninginn. Þá var yngri sonur Þórðar spurður að því hvort að bróðir hans hefði lánað honum 200 þúsund krónur árið 2013. Líkt og Þórður bendir á var auðveldlega hægt að nálgast þær upplýsingar á bankayfirliti sem lögreglan hafði undir höndum. „Bara ég, vinir mínir og þeir sem mér tengjast, níu manns, vor- um með stöðu glæpamanna. Fór- um öll í yfirheyrslu hjá lögreglu með þá stöðu. Sumt fólk bregst ekki vel við slíku, slíkt byggir ekki upp sjálfstraust. Og allt af því að ég lánaði Arek peninga, allt uppgef- ið,“ segir Þórður sem veit til þess að sími hans hafi verið hleraður í tengslum við rannsókn málsins. „Ég er í bisness á Íslandi og á í viðskiptum við mörg af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjunum. Það kemur sér að sjálfsögðu illa fyr- ir mig ef þeir áætla að ég tengist fíkniefnaviðskiptum,“ segir Þórður og bætir við að í kjölfar þess að málið kom upp hafi hann séð sig knúinn að til að hringja í marga af viðskiptavinum sínum. „Ég sagði við þá að ég vildi ekki að þeir myndu frétta þetta utan úr bæ. Ég vildi láta þá vita að ég tengdist þessu máli ekkert.“ Með þykkan skráp Í febrúar síðastliðnum barst Þórði bréf frá Skattrannsóknarstjóra rík- isins þar sem tilkynnt var að rann- sókn málsins væri lokið hjá emb- ættinu. Engin athugasemd gerð við nokkra aðgerð eða færslu. „Ég er ekki viss um að biskupsemb- ættið á Íslandi kæmist í gegnum slíka skoðun.“ Þórður segist vera harðgerð- ur maður eftir að hafa verið í við- skiptum í þrjá áratugi, með við- komu í pólitík. Hann sé því ef til vill með þykkari skráp en margir aðrir. Það sama gildi þó ekki um alla sem fengu stöðu grunaðs manns í málinu. „Ég hef þegar þurft að leggja fram rúmlega þrjár milljónir vegna málsins. Ég bý að því að vera skuldlaus og í góðri stöðu fjárhags- lega. En hvað ef ég væri það ekki? Hvernig hefði ég þá getað staðið undir þessu,“ spyr Þórður. „Ég veit um fólk sem hefur varla farið út úr húsi, það skamm- ast sín svo fyrir að vera bendl- að við fíkniefni og peningaþvætti. Einn drengur sem vann í búðinni hjá Arek mun aldrei ná sér. Hann vinnur svona svipaða vinnu hjá Arek eins og Piotr vinnur hjá mér, sér ekki um peningamál en sér um að vinnan sé framkvæmd. Hann var settur í gæsluvarðhald yfir jólin 2018. Hann sá ekki börnin sín þau jól, hann hefur varla farið út úr húsi eftir að honum var sleppt, talar enn varla við nokkurn mann. Hann mun aldrei ná sér. Vald ber að umgangast með varúð,“ ritaði Þórður meðal annars í fyrrnefndri færslu. Þórður hyggst leita réttar síns í málinu, en það getur hann ekki gert á meðan hann hefur réttar- stöðu grunaðs manns. „Daginn sem þessu lýkur þá mun ég hefja málsókn. Að sjálf- sögðu mun ég gera það. Þetta hlýt- ur að vera fyrsta stóra fíkniefna- málið þar sem engin fíkniefni eru til staðar, enginn kaupandi og engin söluaðili. Miðað við hvernig þetta var presenterað þá var þetta stærsta fíkniefnamál Íslands- sögunnar.“ Þórður bendir á að enn hafi engin ákæra verið gefin út í mál- inu. Á meðan eru allir haldlagð- ir fjármunir í geymslu ríkisins og sömuleiðis eru allar eignir enn frystar. „Það er ljóst að þegar Ríkislög- reglustjóri gefur það út að þessu „máli“ sé endanlega lokið að kröf- ur á ríkissjóð munu nema tugum milljóna, að algeru lágmarki. Bara minn kostnaður er kom- in í um þrjár milljónir. Kostnaður við störf þessara barna hjá Ríkis- lögreglustjóra hlýtur að hlaupa á tugum milljóna einnig, það er gott að vita í hvað skatturinn okk- ar fer. Ég og öll mín fjölskylda er enn með „stöðu grunaðs manns“, og hvenær því lýkur veit engin. Ég ekki bara spái því, ég veit, að engin ákæra verður nokkurn tím- ann gefin út. Þeir fundu „glæpa- mennina“ en eru enn að leita að glæpnum.“ n 3 SKREF BÓKHALDSÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR • Skráningartöflur • Eignaskiptayfirlýsingar • Eftirfylgni EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR ÞARABAKKA 3 S. 578 6800 „Teknar voru myndir af öllum skartgripum kon- unnar, erfðaskránni minni, og allar eigur mínar skráðar. Umfangsmiklar aðgerðir Hús- leit var gerð á heimilum grunaðra. Heimtur úr húsleit Eldhúshnífar og gúmmíhamar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.