Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 12
12 24. maí 2019FRÉTTIR OnePortal er vefgátt sem gerir fyrirtækjum og sveitar- félögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólahringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir Gæða- stjórnun á stóran þátt í góðum árangri fyrirtækja. OneQuality er lausn sem OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneRecords er öug lausn sem auðveldar fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan um mál sem eru í gangi á hverjum tíma. Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála innan fyrirtækisins og notendur geta á einfaldan máta sótt lista yr þau mál sem þeir bera ábyrgð á. Vilt þú koma skjalamálunum í lag? VELJUM ÍSLENST - VELJUM ÍS LE NS KT -V EL JUM ÍSLENSKT - Records Mála- og skjalakerfi Self-Service www.one.is OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is www.one.is . one@one.is sími: 660 8551 . fax: 588 1057 „Eflaust höfum við verið heppin“ Lyfjaskortur getur verið lífshættulegur - Fimm ára dreng margsinnis vantað lyf L yfjaskortur hefur mikið ver- ið til umræðu undanfarna mánuði og ekki að ástæðu- lausu. Læknar segja að hann sé að aukast en Lyfjastofnun seg- ir að mælingar vanti til að sýna að svo sé. Margoft heyrum við frétt- ir af lyfjaskorti líkt og um fréttir af hlutabréfamarkaðinum eða fiski- miðunum sé að ræða. En þetta er mun alvarlegra mál og hefur áhrif á fólk af holdi og blóði. Alma Rut er móðir fimm ára drengs sem lyfja skortur hefur komið illa niður á. Rúna Hauksdóttir Hvannberg er forstjóri Lyfjastofnunar. Alma og Rúna ræddu við DV um málið. Fimm ára með sjaldgæfan sjúkdóm DV hefur áður fjallað um Axel litla Hafsteinsson en hann er með sjaldgæfan ónæmissjúkdóm sem nefnist ADEM. Á íslensku myndi það kallast dreifð bráða heila- og mænubólga. Axel, sem greindist þriggja ára og er nú fimm ára, er sonur Ölmu Rutar Ásgeirsdóttur og Hafsteins Freys Gunnarssonar. Hefur Axel verið inn og út af spít- ölum, lamast tímabundið, misst nær alla sjón og persónuleiki hans breyst. Axel hefur verið á margs konar lyfjum og Alma Rut segir í samtali við DV að þau hafi ekki alltaf verið til í landinu. „Axel er núna á þremur lyfjum. Hann tekur inn sýklalyf tvisvar á dag og flogaveikilyf sömuleiðis. Einnig fer hann tvisvar í mánuði á spítalann og fær lyf í æð. Axel er ekki flogaveikur en hann fékk lífs- hættulegt flog sem hann festist í. Því var hann settur á lyf sem heit- ir Ofiril. Við höfum lent einu sinni í því að flogaveikilyfið var ekki til,“ segir Alma. Má ekki fá hlaupabólu Þar sem Axel er með sjaldgæfan, alvarlegan og undirliggjandi sjúkdóm yrði alvarlegra fyrir hann að fá ýmiss konar veiki sem flest, ef ekki öll börn fá. Hún segir: „Axel má ekki fá hlaupabólu og þarf því bólusetningu við henni. Hlaupabóla getur komið af stað heilabólgum. Bólu- efnið hefur sjaldan verið til síðan um jólin. Hann fékk helminginn af bóluefninu fyrr á þessu ári en vantar enn seinni skammtinn. Við erum alltaf að bíða eftir því á heilsugæslunni en það er aldrei til þar. Við gátum ekki sett Axel í leikskólann í margar vikur þegar hlaupabólan var að ganga þar. Þá var bóluefnið ekki til og hann ekki búinn að fá fyrri bólusetninguna.“ Þá hafa staðgengislyf einnig farið illa í hann. „Í eitt ár fékk Axel lyfið Privigen í æð. Svo hætti það að vera til og hann var í staðinn settur á sam- eindarlyfið Nanogam. Hann fær verri aukaverkanir af því og þær vara í lengri tíma. Aukaverkanirn- ar eru ógleði, uppköst, höfuðverk- ur og slappleiki. Það tekur hann yfirleitt um tveimur dögum leng- ur að jafna sig en þegar hann fékk Privigen og þarf hann því að vera tveimur dögum lengur frá leik- skóla. Hann þarf a k þess að taka tvö önnur lyf til að honum líði að- eins betur þegar hann fær a ka- verk- anir en þau eru ekki lyfseð- ilsskyld. Ég veit um fleiri for- eldra sem eru með börn á þessu sama sam- eindarlyfi og þau fá einnig verri aukaverkanir af því. Það er erfitt að sjá barnið sitt fá aukaverkanir af sameindarlyfi þegar þær voru minni af hinu lyfinu.“ Alma segir að fjölskyldan hafi ekki fengið skýringar á því af hverju bóluefnið og Privigen hafi ekki verið til. Eflaust verið heppin Rúna Hauksdóttir Hvannberg, for- stjóri Lyfjastofnunar, segir í samtali við DV að ástæður fyrir lyfjaskorti geta verið margar. Svo sem hökt í framleiðslunni, vandamál varð- andi flutninga, hráefnisskortur, skemmdir og fleira. Hún vill ekki meina að einhver ein ástæða sé al- gengari en önnur en þróunin sé sú á heimsvísu að framleiðsla bæði hráefnis og lokaafurðar sé sífellt að færast á færri staði. Þetta geti valdið keðjuverkandi áhrifum. „Það sem við köllum krítískan lyfjaskort er ð þá er ekkert ann- að til sem hægt er að nota í stað- inn. Þegar m er að ræða lyf sem fáir nota þá eru oft ekki mörg önn- ur úrræði í boði. Skorturinn kemur þá fyrr fram og verður alvarlegri.“ Skipta peningar máli í þessu samhengi? „Nei, það er ekki þannig að skortur sé frekar á dýrum lyfjum og oft eru þetta mjög ódýr lyf sem ekki margir framleiðendur sinna. Stundum aðeins einn og þá er hökt fljótt að segja til sín. Kostnað- urinn sem slíkur er ekki eitthvað sem heildsalar setja fyrir sig og oft eru lyf flutt inn með flugsending- um.“ Nýlega sagðir þú í viðtali að aldrei hefði komið upp alvarlegt atvik eða lífshættulegt atvik vegna lyfjaskorts. Höfum við ekki bara verið heppin og kemur ekki að því einn daginn að illa fari? „Eflaust höfum við verið hepp- in. Þess vegna erum við að vinna svona mikið í þessu. Sömu vanda- mál hafa verið að koma upp í löndunum í kringum okkur og það er settur mikill mannafli og upp- lýsingatækni til að leysa þetta. Lyf- jamarkaðurinn er bara svona, það er stöðugt flæði á vöru og ýmis- legt getur komið upp. Jú, ég tel að eitthvað alvarlegt geti erst, en við reynum að sjá þetta fyrir til þess að geta brugðist við með einhverjum hætti.“ Til eru dæmi um að lyf hafa verið til í einu apóteki á landinu og notendur uppgötvað það fyrir tilvilju . He ur fólk nægt aðgengi að upplýsingum um hvaða lyf séu til í landinu og hvar þau sé að finna? „Nei, þetta má alltaf bæta og þetta er það sem við ráðum mest við. Við hjá Lyfjastofnun erum með lista á vefsíðunni okkar um lyf se ekki eru il í landinu og al- menningur getur sent inn tilkynn- ingar sem hafa reynst hjálplegar. En nýr, betri og uppfærður listi er í vinnslu hjá okkur núna. Allir viðkomandi gætu unnið að því að bæta upplýsingaflæðið, til dæmis hvað varðar lyf sem gætu verið til í einstaka apótekum. Ég veit að í Svíþjóð er sérstakt smáforrit fyrir þetta. Hér vita heildsölurnar best hvaða apótek eru líkleg til að eiga mest af ákveðnum lyfjum og lyfja keðjurnar vita oft hvað er til hjá þeim. En þessar upplýsingar liggja ekki miðlægt fyrir hjá okk- ur í dag.“ n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Greindist með ADEM Axel með foreldrum sínum. Axel Freyr Hafsteinsson Auka- verkanir miklar af sameindarlyfi. Rúna Hauksdóttir Hvannberg Forstjóri Lyfjastofnunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.