Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 29
Hvert skal leita? 24. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Segja sögur
með ljósmyndum
CREO Ljós er framsækin ljós-myndastofa á Akranesi. „Við förum um allt land og jafnvel
út fyrir landsteinana til að ljósmynda
hvað sem viðskiptavinurinn vill fá
ljósmynd af. Við erum að sjálfsögðiu
einnig í þessu klassíska, þ.e. útskrift-
ar-, fermingar-, brúðkaups- og
tækifærisljósmyndun, hvort sem er í
stúdíói, úti í náttúrunni eða í veislum.
En einnig tökum við að okkur vöruljós-
myndun fyrir fyrirtæki, fasteignaljós-
myndir og fleira. Ef það er hægt að
ljósmynda það, þá tökum við verk-
efnið að okkur með glöðu geði,“ segir
Axel Rafn Benediktsson.
Axel er að sögn aðalljósmyndari
hjá fyrirtækinu en hann er faglærður
ljósmyndari. „Síðasta haust stofnuð-
um við Svanfríður og Sunna ljós-
myndastofuna CREO Ljós. Ég hef þó
starfað við ljósmyndun í hátt í sex ár
núna en ég hef verið að ljósmynda
alveg frá því að ég var lítill pjakkur. Ég
hef alveg ofboðslega gaman af þessu
og það sést líka á myndunum frá mér.
Þegar þú vilt taka góðar ljósmyndir af
fólki, þá er mikilvægt að mynda tengsl
svo að augnablikin verði ekta. Þá fyrst
nærðu að sýna fólk í sínu rétta ljósi.
Sumir ljósmyndarar tala um kúnna
eða viðskiptavini, en sjálfur er ég fljót-
ur að byrja að tala um kúnnana sem
vini mína.“
Bjóða upp á förðun
„Sunna er förðunarfræðingur og því
getum við boðið okkar viðskiptavinum
upp á förðun, bæði í stúdíóinu okkar
og líka ef við erum að taka myndir
í náttúrunni. Svanfríður sér svo um
grafíska vinnslu en hún er alger lista-
spíra og alveg ómetanlegur aðstoða-
maður.“
Eltu brúðhjónin á röndum og náðu
ómetanlegum augnablikum
„Mér finnst fátt skemmtilegra en að
ljósmynda brúðkaup. Þetta er svo
mikill hamingjudagur í lífi fólks og það
er ótrúlegt að fá að upplifa daginn
með brúðhjónunum og fjölskyldu
þeirra og fá að festa minningarnar á
ljósmynd. Það er hægt að fá hefð-
bundinn brúðkaupsmyndapakka hjá
okkur en einnig bjóðum við upp á
svokallaða heimildamyndatöku. Þá
fylgjum við brúðhjónunum eftir allan
daginn, þegar við á, og ljósmyndum
þau næstum eins og papparassar.
Svo erum við eins og fluga á vegg í
veislunni og ljósmyndum allt sem á
vegi okkar verður.
Brúðhjónin fá svo allar myndirnar,
en ekki bara einhverjar ákveðnar sem
við veljum. Þetta gefur brúðhjónun-
um tækifæri til þess að slaka á með
sinni nánustu fjölskyldu án þess að
hafa áhyggjur af því að fylgjast með
og taka myndir af öllum gestunum
líka. Við vorum til dæmis að mynda
brúðkaup þar sem brúðhjónin og
vinahópur þeirra var í þemabúning-
um. Út úr þessu komu hátt í 5.000
ljósmyndir sem við fórum svo í gegn-
um með brúðhjónunum. Þeim fannst
ótrúlega gaman að fá að sjá allt sem
gerðist á meðal gestanna og upplifðu
daginn alveg upp á nýtt. Svo höfum
við einnig hannað bók fyrir brúðhjónin
með vel völdum myndum.“
Ljósmyndaverkefni í útlöndum
„Við bjóðum viðskiptavinum okkar
einnig að fara með þeim út fyr-
ir landsteinana, til að mynda fyrir
brúðkaupsveislur sem haldnar eru í
útlöndum eða þess háttar. Fólki finnst
gott að hafa ljósmyndara með sem
talar íslensku, en það auðveldar öll
samskipti ef fólk talar sama tungu-
mál,“ segir Axel.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni creoljos.is
Ljósmyndastofan er til húsa á
Suðurgötu 57, 300 Akranesi.
Netfang: hello@creoljos.is
CREO LJÓS: