Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 33
Hvert skal leita? 24. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Markmiðið er hröð og
jákvæð þjónustuupplifun
Fyrirtækið Icephone opnaði árið 2014 og býður upp á hraða þjónustu í símaviðgerðum á
öllum símum, símafylgihluti og eldri
uppgerða síma. Einnig býður fyrir-
tækið upp á tölvu- og iPadviðgerðir.
„Hjá Icephone er þetta spurning um
að veita góða, hraða og ekki síst
gegnsæja þjónustu. Okkar markmið
er að viðskiptavinurinn gangi héðan
út ánægður og hefur það gengið
eftir alveg síðan við opnuðum, af
umsögnum á Facebook og Google að
dæma,“ segir Halldór S. Steinssen,
framkvæmdastjóri Icephone.
Slagorðið er 90 mínútna viðgerðir
Snjallsímar eru viðkvæmir og al-
gengt að þeir lendi í vatnsskaða eða
höggskemmdum. Hvorutveggja er
yfirleitt utan ábyrgðar framleið-
anda. „Við fáum talsvert af slíkum
tilfellum til okkar, auk þess sem við
sjáum mikið af símum sem eru með
slappa rafhlöðu. Margir sjá fyrir sér
að vera símalausir í marga daga,
jafnvel vikur þegar kemur að því að
fara með símann í viðgerð. Það er
allt í símanum hjá fólki í dag, vinirnir,
vinnan og samfélagsmiðlarnir þannig
að viðskiptavinurinn má alls ekki við
því að missa tækið í marga daga.
Við fórum því af stað með slag-
orðið 90 mínútna viðgerðir, þannig að
fólk getur jafnvel sinnt erindum sínum
í Kringlunni á meðan við gerum við
símann. 90 mínútna viðgerðir þarf þó
að panta fyrirfram. En ef við fáum til
dæmis iPhone, sem þarf skjáviðgerð,
inn fyrri part dags, þá erum við oftast
að klára viðgerð á tækinu sama dag.
Við erum mest að gera við iPhone
og Samsung, enda eru það algeng-
ustu símarnir á markaðinum. Okkar
markmið er að vera sneggri en hinir
og reyna að klára viðgerð samdæg-
urs eða daginn eftir.“
Tökum ekkert fyrir skoðun ef hún er
innan tímamarka
„Við höfum tekið eftir því að við-
skiptavinir eru oft stressaðir yfir hvað
viðgerð kostar. Kosturinn við okkar
starfsemi er að við tökum ekkert
skoðunargjald ef skoðunin tekur
styttri tíma en 20 mínútur. Við tökum
einfaldega við símanum, greinum
hann fyrir viðskiptavininn og höfum
síðan samband og segjum honum
hvað sé að tækinu og hvað viðgerð
muni kosta. Þá getur viðskipta-
vinurinn ákveðið hvort hann vill láta
gera við símann eða ekki. Íhlutir eru
þó oft dýrir og skjáir eru dýrir. Við
notum original Samsung-íhluti, en
það er meira framboð af íhlutum
frá þriðja aðila í iPhone. Við erum
með ágætis reynslu af okkar birgjum
þannig að við treystum okkur til að
bjóða sex mánaða ábyrgð á þeim
íhlutum sem við notum,“ segir Halldór.
Umhverfisvænn kostur
„Einnig bjóðum við viðskipta vinum,
sem koma til okkar með nýlega Sam-
sung eða iPhone-síma í skoðun vegna
rafhlöðuvandamála, brotins skjás eða
annarra vandamála sem getur verið
kostnaðarsamt að gera við, að kaupa
af þeim símana. Þá gerum við símana
upp og seljum aftur. Þetta er um-
hverfisvænn kostur fyrir þá sem vilja
kaupa notaða síma á lækkuðu verði,
en hentar líka þeim sem vilja frekar
kaupa sér nýjan síma en að láta gera
við gamla símann. Við erum mörg
hver svolítið gíruð í að vera alltaf
með nýjustu týpuna þó að ekkert
sé að eldri símanum, en með þessu
höldum við símanum lengur í notkun.
Uppgerðu símunum fylgir 6 mánaða
ábyrgð.“
Ýmsir símafylgihlutir til sölu
Icephone selur einnig fylgihluti fyrir
síma. „Við seljum hulstur, skjáfilmur,
hleðslutæki, fyrirframgreidd símakort,
vatnshelda poka, höggvarnarsnúrur
og margt fleira. Auk þess erum við
með Popsocket, sem er mjög vinsælt
í dag, en það er sett aftan á símann
til að halda betur á honum eða tylla
honum á borð,“ segir Halldór.
Icephone – Kringlan
Nánari upplýsingar má finna á
icephone.is
Icephone er staðsett í Kringlunni
á bíóganginum og verkstæðið er á
þriðju hæð
Sími: 546-5444
Opnunartími er frá kl. 10–18 alla
daga nema sunnudaga
Facebooksíða: IcePhone Viðgerðir
ICEPHONE KRINGLUNNI: