Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 24
24 SPORT 24. maí 2019 „Ég fór bara langt niður, en það er búið og gert“ M Y N D : H A N N A /D V Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Ö gmundur Kristinsson hefur verið í atvinnumennsku síð- ustu fimm ár og hefur átt far- sælan feril. Ögmundur fagnar þrítugsafmæli sínu í sumar, hann er á besta aldri þegar kemur að mark- vörslu. Hann ólst upp í Safamýri og er Framari, hefur að mestu vermt bekk- inn hjá íslenska landsliðinu en von- ast eftir tækifæri og trausti innan tíðar. Ögmundur var gestur í hlaðvarpsþætti okkar, 90 mínútum, sem má nálgast í heild á vefnum. Ögmundur var að klára sitt fyrsta tímabil í Grikklandi en hann leikur með AEL Larissa. Markvörðurinn átti frábært tímabil og stærri félög hafa áhuga á að kaupa hann í sumar. „Þetta er mjög sterk deild með mjög sterk- um liðum. Það gleymist aðeins þegar maður hugsar um grísku deildina. Þessi stóru lið eru virkilega góð og virkilega sögufræg í Evrópukeppnum. Það var eiginlega aldrei spurning hvort maður færi þangað,“ segir Ög- mundur um dvölina í Grikklandi. „Þetta er öðruvísi kúltúr, að jafn- aði eru þeir frekar rólegir Grikkirnir, þeir eru bara með kaffibollann sinn á kaffihúsi að slaka á. Svo virðast þeir umturnast svolítið þegar fótboltinn byrjar. Leikmenn og þá sérstaklega dómarar fá að heyra það. Það er gott að búa þarna. Þú þarft að koma þér inn í kúltúrinn, matarvenjur og slíkt, þeir borða seint á kvöldin vegna hit- ans, búðirnar eru lokaðar frá eitt til sex nánast alla daga. Um leið og þú kem- ur þér inn í venjurnar þá er ekki yfir neinu að kvarta.“ Þjálfarinn vildi ekki hleypa honum í jarðarför Í viðtalinu ræðir Ögmundur um dvöl- ina í Hollandi, en hann yfirgaf Excelsi- or síðasta sumar eftir að hafa lent upp á kant við þjálfarann. „Ég kunni vel við þjálfarann og markmannsþjálfar- ann líka. Í nóvember var ég á leiðinni á völlinn og pabbi hringdi í mig. Hann sagði mér að afi hefði verið að deyja,“ segir Ögmundur. Hann ákvað þó að spila leikinn og ræða málið við þjálf- arann eftir hann. „Þetta hafði legið í loftinu og varð þannig séð ekkert sjokk, eða eitthvað svoleiðis. Svo spilaði ég bara leikinn, við töpuðum 3-1 gegn NAC Breda sem var á svipuðum slóðum og við í deildinni og við hefðum kannski átt að vinna. Mörkin sem ég fékk á mig voru vítaspyrna, einn á móti einum og svo eitt þar sem ég hefði getað gert betur, en það var á 90. mínútu. Hvort það var vendipunktur eða ekki veit ég ekki.“ Ögmundur fór á skrifstofu þjálf- arans næsta dag og bað um leyfi til að fara í jarðarför afa síns. „Ég sagði honum að afi hefði verið að deyja. Ég vildi láta hann vita að ég vildi fara heim í jarðarförina, ef að það væri möguleiki. Hann tók eitthvað illa í þetta og eftir það var stirt á milli okkar. Mér fannst asnalegt hvern- ig hann tók í þetta. Það var eins og þetta væri mér að kenna, að ég hefði átt að láta hann vita fyrr sem var ekki möguleiki. Átti ég að segja honum 40 mínútum fyrir leik að þetta hefði verið að gerast?“ Vakti ungur áhuga Ögmundur var ungur að árum þegar stórlið Rangers vildi fá hann, Dav- id Moyes eldri vildi þá fá hann til félagsins en foreldrar Ögmundar stoppuðu það. „Fyrsta atvinnu- mannapæling sem ég fékk var ég í grunnskóla. Það eru fáir sem vita um það. Við vorum í tíunda bekk og fórum í æfingaferð til Skotlands og spiluðum þrjá leiki, þar á meðal við Rangers. Það gekk mjög vel hjá mér í þessum þremur leikjum og sérstak- lega gegn Rangers þótt við töpuð- um, örugglega 4-0 eða 5-0. Það gekk vel. Þá var Moyes eldri þarna á staðnum og hann kom og hitti mig á hótelinu eða þar sem við gistum. Hann spurði hvort ég hefði áhuga á að koma til Rangers. Ég sagði að það hefði ég svo sannarlega, ég var alveg meira en klár og allt það, en foreldrar mínir tóku ekki alveg jafn- vel í það. Að fara út 14 eða 15 ára að elta drauminn. Ég átti að fara í skóla og svoleiðis og sú varð raunin. Ég reyndi ekki að tala þau til. Eftir á að hyggja hefði ég átt að pressa meira á þetta, en ég pældi ekki mikið í því þá. Ég var sáttur í Fram og við að fara í Verzló. Ég var rólegur með þetta.“ Fór langt niður eftir sms frá KSÍ Það vakti talsverða athygli síðasta sumar þegar Ögmundur var ekki í hópi Íslands sem fór á HM, flest- ir töldu öruggt að hann yrði á með- al þeirra 23 leikmanna sem Heimir Hallgrímsson valdi. Það var högg fyrir Ögmund að fá skilaboð um annað. „Ég ætla ekkert að ljúga hvað það varðar, það var mjög erfið- ur dagur. Ég fór langt niður og þetta kom mér á óvart,“ segir Ögmundur. „Ég var búinn að vera fasta maður í fimm eða sex ár og hafði spilað í undankeppninni fyrir HM sem kom liðinu á HM. Leikurinn á móti Finn- um heima, sem var mjög dramat- ískur og mikilvægur þegar upp var staðið, hafði unnist. Þetta var gríðar- lega svekkjandi og það kom mér á óvart. Ég fékk tíðindin í smáskila- boðum. Þetta var alvöru skellur. Ég trúði þessu ekki, ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Ég fór bara langt nið- ur, en það er búið og gert,“ segir Ög- mundur sem er mættur aftur í ís- lenska landsliðið og gæti fengið tækifæri sem fyrsti markvörður, von bráðar. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.