Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 24
24 SPORT 24. maí 2019
„Ég fór bara
langt niður,
en það er
búið og gert“
M
Y
N
D
: H
A
N
N
A
/D
V
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Ö
gmundur Kristinsson hefur
verið í atvinnumennsku síð-
ustu fimm ár og hefur átt far-
sælan feril. Ögmundur fagnar
þrítugsafmæli sínu í sumar, hann er
á besta aldri þegar kemur að mark-
vörslu. Hann ólst upp í Safamýri og er
Framari, hefur að mestu vermt bekk-
inn hjá íslenska landsliðinu en von-
ast eftir tækifæri og trausti innan tíðar.
Ögmundur var gestur í hlaðvarpsþætti
okkar, 90 mínútum, sem má nálgast í
heild á vefnum.
Ögmundur var að klára sitt fyrsta
tímabil í Grikklandi en hann leikur
með AEL Larissa. Markvörðurinn átti
frábært tímabil og stærri félög hafa
áhuga á að kaupa hann í sumar. „Þetta
er mjög sterk deild með mjög sterk-
um liðum. Það gleymist aðeins þegar
maður hugsar um grísku deildina.
Þessi stóru lið eru virkilega góð og
virkilega sögufræg í Evrópukeppnum.
Það var eiginlega aldrei spurning
hvort maður færi þangað,“ segir Ög-
mundur um dvölina í Grikklandi.
„Þetta er öðruvísi kúltúr, að jafn-
aði eru þeir frekar rólegir Grikkirnir,
þeir eru bara með kaffibollann sinn
á kaffihúsi að slaka á. Svo virðast þeir
umturnast svolítið þegar fótboltinn
byrjar. Leikmenn og þá sérstaklega
dómarar fá að heyra það. Það er gott
að búa þarna. Þú þarft að koma þér
inn í kúltúrinn, matarvenjur og slíkt,
þeir borða seint á kvöldin vegna hit-
ans, búðirnar eru lokaðar frá eitt til sex
nánast alla daga. Um leið og þú kem-
ur þér inn í venjurnar þá er ekki yfir
neinu að kvarta.“
Þjálfarinn vildi ekki hleypa
honum í jarðarför
Í viðtalinu ræðir Ögmundur um dvöl-
ina í Hollandi, en hann yfirgaf Excelsi-
or síðasta sumar eftir að hafa lent upp
á kant við þjálfarann. „Ég kunni vel
við þjálfarann og markmannsþjálfar-
ann líka. Í nóvember var ég á leiðinni
á völlinn og pabbi hringdi í mig. Hann
sagði mér að afi hefði verið að deyja,“
segir Ögmundur. Hann ákvað þó að
spila leikinn og ræða málið við þjálf-
arann eftir hann.
„Þetta hafði legið í loftinu og varð
þannig séð ekkert sjokk, eða eitthvað
svoleiðis. Svo spilaði ég bara leikinn,
við töpuðum 3-1 gegn NAC Breda
sem var á svipuðum slóðum og við í
deildinni og við hefðum kannski átt
að vinna. Mörkin sem ég fékk á mig
voru vítaspyrna, einn á móti einum
og svo eitt þar sem ég hefði getað
gert betur, en það var á 90. mínútu.
Hvort það var vendipunktur eða ekki
veit ég ekki.“
Ögmundur fór á skrifstofu þjálf-
arans næsta dag og bað um leyfi til
að fara í jarðarför afa síns. „Ég sagði
honum að afi hefði verið að deyja.
Ég vildi láta hann vita að ég vildi fara
heim í jarðarförina, ef að það væri
möguleiki. Hann tók eitthvað illa
í þetta og eftir það var stirt á milli
okkar. Mér fannst asnalegt hvern-
ig hann tók í þetta. Það var eins
og þetta væri mér að kenna, að ég
hefði átt að láta hann vita fyrr sem
var ekki möguleiki. Átti ég að segja
honum 40 mínútum fyrir leik að
þetta hefði verið að gerast?“
Vakti ungur áhuga
Ögmundur var ungur að árum þegar
stórlið Rangers vildi fá hann, Dav-
id Moyes eldri vildi þá fá hann til
félagsins en foreldrar Ögmundar
stoppuðu það. „Fyrsta atvinnu-
mannapæling sem ég fékk var ég í
grunnskóla. Það eru fáir sem vita
um það. Við vorum í tíunda bekk og
fórum í æfingaferð til Skotlands og
spiluðum þrjá leiki, þar á meðal við
Rangers. Það gekk mjög vel hjá mér í
þessum þremur leikjum og sérstak-
lega gegn Rangers þótt við töpuð-
um, örugglega 4-0 eða 5-0. Það gekk
vel.
Þá var Moyes eldri þarna á
staðnum og hann kom og hitti mig
á hótelinu eða þar sem við gistum.
Hann spurði hvort ég hefði áhuga
á að koma til Rangers. Ég sagði að
það hefði ég svo sannarlega, ég var
alveg meira en klár og allt það, en
foreldrar mínir tóku ekki alveg jafn-
vel í það. Að fara út 14 eða 15 ára að
elta drauminn. Ég átti að fara í skóla
og svoleiðis og sú varð raunin. Ég
reyndi ekki að tala þau til. Eftir á að
hyggja hefði ég átt að pressa meira
á þetta, en ég pældi ekki mikið í því
þá. Ég var sáttur í Fram og við að fara
í Verzló. Ég var rólegur með þetta.“
Fór langt niður eftir sms frá KSÍ
Það vakti talsverða athygli síðasta
sumar þegar Ögmundur var ekki
í hópi Íslands sem fór á HM, flest-
ir töldu öruggt að hann yrði á með-
al þeirra 23 leikmanna sem Heimir
Hallgrímsson valdi. Það var högg
fyrir Ögmund að fá skilaboð um
annað. „Ég ætla ekkert að ljúga
hvað það varðar, það var mjög erfið-
ur dagur. Ég fór langt niður og þetta
kom mér á óvart,“ segir Ögmundur.
„Ég var búinn að vera fasta maður
í fimm eða sex ár og hafði spilað í
undankeppninni fyrir HM sem kom
liðinu á HM. Leikurinn á móti Finn-
um heima, sem var mjög dramat-
ískur og mikilvægur þegar upp var
staðið, hafði unnist. Þetta var gríðar-
lega svekkjandi og það kom mér á
óvart. Ég fékk tíðindin í smáskila-
boðum. Þetta var alvöru skellur. Ég
trúði þessu ekki, ég vissi ekki hvað
ég átti að gera. Ég fór bara langt nið-
ur, en það er búið og gert,“ segir Ög-
mundur sem er mættur aftur í ís-
lenska landsliðið og gæti fengið
tækifæri sem fyrsti markvörður, von
bráðar. n