Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Qupperneq 40
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ Gullsmiðir Jens hafa frá stofnun fyrirtækisins árið 1964 verið þekktir fyrir djarfa og fram- sækna hönnun sem þótt hefur áber- andi í skartgripatísku Íslendinga. „Við erum stolt af hönnun okkar sem er innblásin af þeirri ríku sögu og reynslu sem við höfum öðlast frá upphafi þessa litla fjölskyldufyrirtækis,“ segir Ingibjörg Snorra, framkvæmdastjóri Jens. Gaman að gleðja „Við leggjum okkur fram við að kynn- ast þörfum viðskiptavinanna og veita þeim framúrskarandi þjónustu. Það skemmtilega við þennan bransa að í nánast öllum tilvikum er fólk að leitast við að gleðja einhvern náinn sér og það er ofboðslega skemmtilegt að fá að taka þátt í því. Jólagjafir, ferm- ingargjafir, útskriftargjafir, afmælis- gjafir, giftingarhringar, morgungjafir og önnur tilefni sem eru til þess gerð að dekra við einhvern sem manni þykir vænt um. Það er virkilega gaman að vinna hjá litlu fyrirtæki þar sem maður snertir á öllum flötum rekstursins. Mér finnst líka virkilega gaman að vera í búðunum og vinna með starfsfólkinu okkar.“ Hjá Jens starfa hæfileikaríkir hönnuðir með margvíslega menntun að baki. Berglind Snorra er þriðja kynslóð gullsmiða, hún er einnig húsgagna- og vöruhönnuður. Jón Snorri Sigurðsson hefur starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun þess og hefur haslað sér völl sem gullsmiður og skúlptúristi. Feðginin Snorri og Berglind hafa saman hannað inn- réttingar og útlit verslananna og hafa því allar þrjár búðirnar í Kringlu, í Smáralind og á Granda fengið nýtt og nútímalegt útlit sem er vert að skoða. Berglind hefur einnig hannað fallegar öskjur og umbúðir utan um skartgripina og gerir það gjöfina enn glæsilegri. Einstök úr og norðurljós „Við vinnum mest með silfur og gull, íslenska náttúrusteina og dem- anta. Við erum einnig að handsmíða gjafavöru sem hefur slegið algjörlega í gegn og er gaman að geta boðið upp á í bland við skartgripina. Svo var að koma glæný úralína frá Jens sem kallast Norðurljós. Við hönnun úranna voru gæði höfð í fyrirrúmi. Úrið státar af svissnesku úrverki og er búið til úr safírgleri og hágæða stáli. Skífan er úr svartri perlu sem minnir á norður- ljósin, sem gerir hana einstaka, þar sem engar tvær eru alveg eins.“ Hannaðu þitt eigið hálsmen „Allra vinsælasta nýjungin hjá okk- ur eru hálsmen sem heitir Gára. Hálsmenið myndar hring sem táknar gáru. Gárurnar er hægt að fá í fjórum stærðum sem hver fellur inn í aðra eins og gárur á vatni. Gárurnar koma í margs konar útfærslu með nánast endalausum samsetningarmöguleik- um. Þannig er hægt að láta samsetn- inguna tákna eitthvað persónulegt, eins og fjölskyldumeðlimi, vini eða tímamót. Hægt er að fá Gáru úr mismunandi málmum og með mis- munandi steinum, svo maður getur hannað sitt eigið hálsmen.“ Hönnunarrisi í skandinavískri skartgripagerð „Við erum líka stolt af því að vera orðin eini söluaðili Georg Jensen skartgripa á Íslandi. Í Kringlunni og Smáralind erum við með glæsi- legt úrval af tímalausum og fal- legum skartgripum frá þessum hönnunarrisa í skandinavískri skart- gripahönnun. Hjá Jens starfar gott fólk, sem sinnir viðskiptavinum okkar og ráð- leggur á faglegan hátt. Gott starfs- umhverfi og skemmtileg stemning einkennir dagana okkar bæði í búðunum og á verkstæði Jens. Arf- leifð okkar og saga drífur áfram sköp- unargáfu okkar og við munum áfram smíða vandaða skartgripi eftir eigin hönnun – kynslóð eftir kynslóð.“ Netverslunin okkar https://www. jens.is/ hefur sótt í sig veðrið undanfarin ár, vöruúrvalið er gott og einfalt er að panta í gegnum vefsíðuna. „Það eru allir komnir hingað til að gleðja einhvern nákominn sér“ JENS:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.