Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Blaðsíða 12
12 30. ágúst 2019
Raðauglýsingar
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt
um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er
fyrir þá sem stunda nám fjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og
fjölskyldu sinni vegna náms).
• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá
lögheimili fjarri skóla).
Opnað er fyrir umsóknir 1. september 2019.
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur
um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is).
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Jöfnunarstyrkur til náms
Umsóknarfrestur á haustönn 2019 er til 15. október n.k.
Einelti hefur langtímaáhrif
S
aga Emils Jóns er ekki eins-
dæmi og á undanförnum
árum hafa ratað í fjölmiðla
nokkrar frásagnir af ung-
mennum sem hafa framið sjálfsvíg
í kjölfar eineltis.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
afleiðingar eineltis geta haft lang-
tímaáhrif á líf þolanda þess og
mótað líf hans eftir að eineltinu
lýkur. Í nýjum aðstæðum gæti þol-
andinn því enn upplifað höfnun
og tortryggni þó svo að eineltinu
sé lokið. Langtímaafleiðingar geta
þó verið mismunandi og misalvar-
legar. Sem dæmi um langtíma-
afleiðingar er bent á þunglyndi,
kvíða, áfallastreituröskun og lágt
sjálfstraust. Alvarlegasta afleiðing
eineltis er svo sjálfsskaði eða
sjálfsvíg. Þolendur eineltis geta
því í langan tíma þurft að takast á
við sálrænar afleiðingar sem geta
hamlað þeim seinna í lífinu.
Þetta kemur meðal annars
fram í lokaritgerð Önnu Karenar
Ellerts dóttur við Félagsvísindasvið
Háskóla Íslands, en ritgerðin fjall-
ar um langtímaafleiðingar eineltis.
Svipti sig lífi 11 ára
Saga Dagbjarts Heiðar Arnarssonar
vakti þjóðarathygli árið 2012. Dag-
bjartur var aðeins 11 ára þegar
hann féll fyrir eigin hendi, þann 23.
september 2011. Dagbjartur var
næstelstur fimm systkina en hann
var fæddur með alvarlegan hjarta-
galla og glímdi einnig við ADHD
og einhverfu. Hann var fórnarlamb
eineltis alla sína skólagöngu og
hafði gert nokkrar tilraunir til sjálfs-
vígs fyrir 11 ára aldur.
Foreldrar hans, Kaja Emilsdóttir
og Arnar Helgason, stigu fram í við-
tali í Kastljósi árið 2012, í þeim til-
gangi að opna augu fólks fyrir þessu
grafalvarlega samfélagsmeini.
Í febrúar 2017 ræddi Kaja einnig
við DV. Þar kom meðal annars fram
að Kaja hefði sannarlega orðið vör
við þau miklu viðbrögð sem frá-
sögn foreldra Dagbjarts hafði vak-
ið. Taldi hún að mikið vatn hefði
runnið til sjávar á undanförum
árum hvað varðar eineltismál og
umræðuna um sjálfsvíg, sem og
aðstoð til aðstandenda.
„Ég held að þetta hafi að vissu
leyti opnað augu fólks fyrir einelti
og hversu mikil dauðans alvara
það er. Mér finnst hafa orðið
ákveðin vitundarvakning í kjöl-
farið á þessu, eins og fólk sé orðið
meðvitaðra um vandann. Það er
ekki lengur litið á þetta sem bara
einhver „strákapör.“
„Takið utan um börnin ykkar og
ræðið við þau“
Í nóvember 2017 birtist frétt
á Vísi um að sextán ára stúlka á
Húsavík hefði verið lögð í gróft
einelti í átta ár. Líðan hennar varð
svo slæm að hún reyndi hún að
svipta sig lífi. Eftir það hélt hún
samt enn áfram að fá ljót skilaboð
og illkvittnar athugasemdir frá
fólki úti á götu.
Foreldrar hennar, Sigrún Birna
Árnadóttir og Almar Eggertsson,
tjáðu sig um sjálfsvígstilraunina
og eineltið á Facebook til þess að
vekja bæjarbúa til umhugsunar.
Sigrún sagði dóttur sína hafa
áður íhugað sjálfsvíg vegna einelt-
isins.
„Hún hefur einu sinni áður
ætlað að gera þetta. Skrifaði okkur
bréf og lögreglan fann hana uppi í
fjalli hérna heima og talaði lengi
við hana, hún vildi ekki lifa leng-
ur.“
Þá brýndi Sigrún fyrir foreldrum
að ræða við börnin sín um alvar-
leika og afleiðingar eineltis.
„Þau eru að upplifa alls konar,
þau fá að heyra: „Oj, ekki koma
við mig.“ Þetta hefur verið í gangi
síðan ég var ung. Takið utan um
börnin ykkar og ræðið við þau.
Þetta er svo skelfilegt, hún fær
bara ekki séns.“ n