Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Side 18
18 30. ágúst 2019FRÉTTIR „Þetta fyrirtæki er Íslandi til skammar“ n Átt við kílómetramæla n Háar fjárhæðir rukkaðar fyrir litlar dældir n Sakaðir um dónaskap og þjófnað B ílaleigan Green Motion Iceland ehf. var borin þung­ um sökum í fjölmiðlum fyrr á árinu fyrir að hafa átt við kílómetrastöðu bílaflota síns. Að sögn framkvæmdastjóra fyrirtæk­ isins, Rún ars Lauf ars Ólafs sonar, hafði slíkt verið gert því viðskipta­ vinir leigunnar vantreystu mik­ ið eknum bílum, en að kaupend­ ur bílanna hafi í öllum tilvikum verið upplýstir um raunverulega kílómetrastöðu bifreiðanna. Sam­ kvæmt afsölum sem Rúnar afhenti blaðamanni mbl.is var kaupend­ um greint frá því að skipt hefði ver­ ið um mælaborð og því væri kíló­ metrafjöldi rangur. Green Motion er jafnframt ein þeirra bílaleiga sem ekki eru í Samtökum ferða­ þjónustunnar. Green Motion Iceland er hluti af alþjóðlegu keðjunni Green Motion, sem hefur verið harðlega gagnrýnd af viðskiptavinum fyrir að starfrækja bíræfna svikamyllu, meðal annars hefur verið fjall­ að um málið hjá The Guardian. Í þeirri umfjöllun þótti það grun­ samlegt að laun fyrir skoðunar­ menn voru auglýst sem ár­ angurstengd, en starfið felur ekki í sér sölumennsku. Árni Snævarr, starfsmaður hjá Sameinuðu þjóðunum og fyrrver­ andi fréttamaður, segir farir sín­ ar ekki sléttar af viðskiptum við Green Car á Sikiley. Hann er ekki sá eini sem hefur álíka umkvart­ anir gegn fyrirtækinu, en gífurleg­ ur fjöldi viðskiptavina segir sömu söguna, og lenti jafnvel í verri reynslu. Margar slíkar sögur liggja fyrir á netinu um viðskipti við úti­ bú Green Motion á Íslandi. Slæm reynsla í Sikiley „Á bílaleigunni lagði starfsmað­ ur mjög að mér að taka tryggingu frá bílaleigunni og sagði að „ allir gerðu það“. Þetta var altrygging var mér tjáð og ég hugsaði með mér að best væri að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur. Sjálfsábyrgð 300 evrur,“ segir Árni í samtali við blaðamann. Hann lét undan þrýstingi og keypti trygginguna. Þegar á hólminn var komið reyndist tryggingin fyrir ótrúlega tilviljun ekki ná yfir skemmdirn­ ar sem leigan hélt fram að hefðu til komið á meðan Árni hafði bíl­ inn til umráða. Meint skemmd reyndist vera einni álfelgu. „Hún er svo lítil að engin leið er að sjá hana á ljósmynd nema stækka myndina,“ segir Árni. Þegar hann maldaði í móinn brást starfsmað­ ur leigunnar ókvæða við. „Hann varð mjög æstur og sakaði mig um að hafa eyðilagt bílinn. Neitaði hann mér síðan um að skrifa und­ ir eða sjá eyðublaðið um skilin og sagði að ég yrði ekki keyrður upp á völl heldur yrði að taka leigubíl.“ Síðar fékk Árni tilkynningu um að skemmdirnar hefðu reynst fleiri. Viðgerð á felgunni myndi kosta 450 evrur og viðgerð vegna tveggja annarra skemmda 300 evr­ ur. Árni reyndi að ná samkomu­ lagi við Green Motion og fá frekari skýringar á skemmdum og við­ gerðarkostnaði. Þá kom á daginn að sjálfsábyrgðin væri í raun 200 evrur, en engu að síður voru 300 evrur rukkaðar á kortið hans. „Hvaða tryggingafélag hefði tryggt mig var aldrei svarað. Og engar skýringar gefnar á þessum dýra hjólkoppi sem var utan við all­ ar tryggingar. Þetta er bersýni­ lega viðskiptamódel fyrirtækisins. Leigja bíla út ódýrt og láta svo við­ skiptavininn blæða fyrir alls kyns smáatriði. Það er dapurlegt til þess að vita að þetta fyrirtæki kom­ ist upp með fjárplógsstarfsemi af þessu tagi og með ólíkindum að yfirvöld og Neytendasamtök láti þetta viðgangast. Samkvæmt frá­ sögnum á Tripadvisor virðist fyrir­ tækið einna grófast á Íslandi.“ Sláandi frásagnir óánægðra viðskiptavina Fjölmargir viðskiptavinir útibús Green Motion á Íslandi hafa lýst slæmri reynslu sinni af fyrirtækinu á vefsíðum á borð við Tripadvisor, Google reviews, Trustpilot og þar eftir götum. Frásagnirnar eiga margt sameiginlegt og lúta flestar að því að viðhaft sé trygginga­ svindl með þeim hætti að hart sé lagt að viðskiptavinum að kaupa kostnaðarsama tryggingu frá Green Motion, án tillits til ferðatrygginga viðkomandi. Án tryggingar þarf að greiða 300 þús­ und krónur í tryggingargjald. Bíl­ arnir eru sagðir skítugir og í slæmu ástandi og margir hafa greint frá því að kveikt hafi verið á vélarljósi við afhendingu sem starfsmenn hafi beðið viðskiptavini að líta bara framhjá. Hjól á bílum hafa verið svo slitin að bílar hafi í reynd verið ólöglegir í akstri. Viðskiptavinir sjálfir gera út­ tekt á bílnum við afhendingu, þeir forsjálu taka myndir og eiga sem sönnunargagn þegar starfs­ menn bílaleigunnar vilja rukka fyrir skemmd sem var til staðar við afhendingu, hinir þurfa að greiða óhóflegan kostnað vegna viðgerð­ ar og jafnvel er öll tryggingin sem þeir lögðu fram tekin og gott betur. Í umsögnunum er einnig kvartað yfir dónalegu starfsfólki, óáreiðan­ legri skutlu til og frá flugvelli og lélegri viðskiptamannaþjónustu sem svari illa eða alls ekki erind­ um viðskiptavina. Einnig virð­ ast viðskiptavinir hafa lent í því að panta og greiða fyrirfram fyrir bílaleigubíl sem reynist svo ekki til taks þegar á hólminn var komið. Einn óánægður viðskiptavin­ ur greindi frá því í Facebook­hópi fyrir ferðamenn á Íslandi að hann hafi kvartað yfir fyrirtækinu til Neytendasamtakanna, lögreglu og höfuðstöðva fyrirtækisins. „Einn starfsmanna þeirra kom til okkar þegar við vorum að fara og sagði að við ættum að skilja eft­ ir slæma umsögn um fyrirtækið á Tripadvisor. Hann sagði fyrirtækið alltaf beita þessum bellibrögðum því fólk hafi enga leið til að færa sönnur fyrir máli sínu því bílarnir eru yfirleitt í svo slæmu ástandi þegar tekið er við þeim, síðan séu ferðamenn yfirleitt að flýta sér upp á flugvöll þegar þeir skila bílnum og hafa ekki tíma til að standa í ves­ eni,“ segir í einni umsögn. „Þetta er svikamylla,“ segir í annarri og svona yfirlýsingar má lesa víða. Við leyfum hér óánægðum við­ skiptavinum að eiga lokaorðin: „Green motion eru þjófar,“„Ekki treysta Green Motion bílaleig­ unni,“ „Varist Green Motion bíla­ leiguna. Þetta fyrirtæki er Íslandi til skammar.“ n „Yfirlýsing: Green Motion á Íslandi er partur af alþjóðlegu keðjunni Green Motion International sem starfar í yfir 40 löndum og hefur um 420 þjónustustaði. Starfs- hópurinn á Íslandi einblínir á að veita bestu þjónustu sem í boði er og gerir sitt besta til að fylgja þeim reglum sem settar eru af Green Motion International. Við erum með mjög góða ferla sem eru búnir til í þeim tilgangi að gefa viðskiptavininum algjöra hugarró þegar leigt er bíl hjá okk- ur. Í þeim óheppilegu tilfellum þegar viðskiptavinur tjónar bíla- leigubíl er notast við CABAS kerf- ið sem er viðurkennt og stutt af ís- lensku tryggingafélögunum. Til að bæta reynslu viðskiptavinarins bjóðum við honum að bæta við alla þá valkosti sem þörf er á til að tryggja bílinn, þær tryggingar eru hannaðar til að skila hugarró og öryggi fyrir okkar viðskiptavini. Sem alþjóðlegt merki reynum við eftir fremsta megni að gera okkar besta til að bæta þjónustuna okkar og reynslu viðskiptavinar- ins. Nýlega á þessu ári, í svari við kröfum viðskiptavina okkar, færð- um við okkur í nýtt og mun stærra skrifstofurými sem er nær flugvell- inum og einnig fjölguðum ferð- um rútunnar okkar til og frá flug- vellinum. Nýja afhendingarstöðin okkar er ein sú stærsta á landinu með nútímalegri biðstofu, fríum veitingum ásamt sér leikherbergi fyrir börnin. Við erum einnig að koma með á markaðinn nýja tæknimöguleika sem eru hann- aðir til að styrkja stöðu viðskipta- vinarins, það inniheldur sjálfs- afgreiðslustöðvar og glænýtt app sem setur allt leiguferlið, frá því að skrá upplýsingar, staðfestingu á vegabréfum og ökuskírteinum, afhendingu bílsins, skoðun bílsins og skil bílsins, algjörlega í hendur viðskiptavinarins sem leyfir við- skiptavininum að stýra ferðinni. Kær kveðja Green Motion Iceland“ Erla Dóra erladora@dv.is „Varist Green Motion bílaleiguna. Þetta fyrir­ tæki er Íslandi til skammar. Árna finnst sláandi að svona viðskiptahætt- ir séu stundaðir á Íslandi. Mynd af meintri skemmd að aftan. Enn í dag hefur Árna ekki tekist að koma auga á hana. Skemmdin dýra á álfelgunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.